Fréttablaðið - 04.08.2010, Síða 42

Fréttablaðið - 04.08.2010, Síða 42
38 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI „Nú hefst ballið á ný og við fáum heldur betur prógramm eftir versló,“ segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Vals. Íslenski boltinn byrjar að rúlla á ný eftir hlé með leik Breiðabliks og Vals í Pepsi-deild karla í kvöld. Það var æfing hjá Valsmönnum á sunnudaginn en annars segist Gunnlaugur ekki hafa haft mjög strangar reglur um verslunar- mannahelgina. „Ég lagði áherslu á að menn yrðu í lagi á sunnudag- sæfingunni og það gekk eftir.“ Valur hefur ekki unnið deildar- leik síðan 14. júní og segir Gunn- laugur að sínir menn séu meðvitað- ir um það. „Það er kominn nokkuð langur tími síðan við sigruðum og menn eru staðráðnir í því að fara í leikinn á morgun til að ná þeim sigri inn. Það er engin spurning.“ „Breiðablik hefur skorað flest mörk í deildinni og spilað skemmti- legasta boltann. Það er eitt af þeim liðum sem náði að vinna okkur í fyrri umferðinni og við verðum að kvitta fyrir það,“ segir Gunn- laugur. Það eru allir tilbúnir í slaginn hjá Valsmönnum fyrir utan Reyni Leósson sem tekur út leikbann. Hjá Breiðabliki er meiðslalistinn einnig tómur en Guðmundur Pét- ursson og Olgeir Sigurgeirsson í banni. Alfreð Finnbogason skoraði annað marka Kópavogsliðsins þegar það vann Val 2-0 á útivelli í fyrri umferðinni og vonast hann að sjálfsögðu eftir öðrum sigri í kvöld. „Þetta er tækifæri fyrir okkur að komast aftur á toppinn þar sem við eigum að vera.“ Blikar eru þremur stigum á eftir toppliði ÍBV eftir að hafa tapað fyrir Fram í síðustu umferð. „Það koma alltaf einhver skakkaföll í 22 liða móti og við bjuggumst alveg við því. En nú erum við búnir að fá góða hvíld og ætlum að koma til- búnir. Menn voru skynsamir um verslunarmannahelgina og héldu sig á þurru landi.“ Eins og fram kom í Fréttablað- inu í gær er Kristinn Jónsson, bak- vörður Blikaliðsins, stoðsendinga- hæstur í deildinni. „Kristinn er búinn að spila frábærlega í sumar og er að mínu mati ekki búinn að fá nægilega athygli fyrir það. Þeir sem skora virðast alltaf fá alla athyglina. Hann er búinn að leggja upp nokkur á mig svo frammistaða hans hefur ekkert farið fram hjá mér,“ segir Alfreð. - egm Pepsi-deild karla hefst að nýju í kvöld eftir hlé með leik Breiðabliks og Vals: Menn voru skynsamir og héldu sig á þurru landi Á FULLU Alfreð Finnbogason og félagar hans í Breiðabliki mæta Valsmönnum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Guðmundur Ársæll Guð- mundsson hefur verið hækkaður upp í A-hóp dómara en hann dæmir sinn fyrsta leik í Pepsi- deild karla annað kvöld þegar KR tekur á móti Stjörnunni. Guð- mundur er 37 ára fasteignasali og dæmir fyrir Hauka. „Það er verið að verðlauna hann fyrir góða frammistöðu í 1. deildinni og góða ástundun,“ segir Gylfi Þór Orrason, formað- ur dómaranefndar KSÍ. A-dómar- ar eru því orðnir tólf. „Garðar Örn Hinriksson hætti eftir síðasta sumar og við ákváð- um að bíða með að hækka mann í hans stað og sjá hvernig málin myndu þróast. Nú hafa þrír dóm- arar verið að glíma við meiðsli og aðrir í verkefnum erlendis svo við þurftum að bæta við,“ segir Gylfi. Annars er Gylfi sáttur við dóm- gæsluna í sumar. „Ég er sér- staklega ánægður með hvernig hegðun í boðvangi er orðin betri. Eftir síðasta tímabil töldum við að leggja þyrfti áherslu á að bæta hana og það hefur tekist vel.“ - egm Nýr dómari í A-flokk: Fasteignasali á KR-vellinum GYLFI ÞÓR Formaður dómaranefndar KSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Fernando Torres segir að afstaða sín gagnvart Liver- pool hafi ekkert breyst frá því að hann gekk til liðs við félagið. Hann er enn staðráðinn í að spila með félaginu og vinna titla. „Ég er virkilega ánægður með að vera kominn aftur,“ sagði Tor- res sem sneri aftur til æfinga hjá Liverpool sem heimsmeistari eftir frábært gengi Spánverja á HM í sumar. Mikil óvissa var um framtíð hans eftir slæman árangur Liver- pool á síðasta tímabili en Torres líst vel á liðið nú. „Þetta er besta félagið á Englandi og vænting- arnar eru alltaf miklar. Það er stefnan hjá Liverpool að vinna alla titla. Þetta var erfitt á síð- asta tímabili en ég er viss um að við getum bætt okkur á næsta,“ sagði Torres. - esá Fernando Torres: Hefur ekkert breyst hjá mér FERNANDO TORRES Segist hæstánægður í herbúðum Liverpool. NORDIC PHOTOS/GETTY 700.00 ÞÚ TALDIR RÉTT: 700 MILLJÓNIR F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.