Fréttablaðið - 04.08.2010, Qupperneq 46
42 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
ÞYNNKUBANINN
LÁRÉTT
2. bjálfi, 6. mannþvaga, 8. rá, 9. tal,
11. samanburðartenging, 12. eggja-
rauða, 14. gleði, 16. í röð, 17. þrí, 18.
tæki, 20. til, 21. frumeind.
LÓÐRÉTT
1. magi, 3. klaki, 4. brjósthimna, 5.
gæfa, 7. sáluhjálp, 10. uppistaða, 13.
fæðu, 15. hlið, 16. svif, 19. fíngerð
líkamshár.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fífl, 6. ös, 8. slá, 9. mál,
11. en, 12. blómi, 14. unaðs, 16. áb,
17. trí, 18. tól, 20. að, 21. atóm.
LÓÐRÉTT: 1. vömb, 3. ís, 4. fleiðra, 5.
lán, 7. sálubót, 10. lón, 13. mat, 15.
síða, 16. áta, 19. ló.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 470 þúsund krónur á mánuði.
2 Á þarnæsta ári, 2012.
3 Um 16 þúsund manns.
Hljómsveitin Sin Fang, sem áður hét Sin Fang
Bous, spilar á tónlistarhátíð í Brasilíu 6. og 8.
ágúst. Hátíðin nefnist Rojo-Nova og fer fram í
borginni Sao Paulo.
„Tónleikarnir eru í listasafni. Þetta er hátíð
sem er í gangi í mánuð,“ segir Sindri Már Sig-
fússon, sem er einnig forsprakki hljómsveit-
arinnar Seabear. Sóley Stefánsdóttir úr Sea-
bear kemur einnig fram á hátíðinni en hún,
Seabeaer og Sin Fang eru á mála hjá þýska
útgáfufyrirtækinu Morr Music. „Það var haft
samband við plötufyrirtækið sem ég og Sóley
erum hjá. Þeir vildu fá einhverja hljómsveit
frá Morr,“ útskýrir Sindri, sem var staddur
í Englandi á leiðinni út þegar blaðamaður
ræddi við hann.
Sindri hlakkar til tónleikanna en flugið í
gær var samt ekkert til að hrópa húrra yfir.
„Þetta eru einhverjir tíu eða ellefu tímar. Við
vorum að skoða þetta á landakorti og þetta er
rétt hjá Afríku. En það hefur enginn af okkur
nokkurn tímann komið til Suður-Ameríku
þannig að þetta er dálítið spennandi.“
Hópurinn kemur aftur heim á mánudaginn
og fer síðan strax aftur til Evrópu þar sem
Seabear mun spila á nokkrum tónlistarhátíð-
um. Hljóðblöndun á annarri plötu Sin Fang fer
síðan fram um miðjan september og er platan
væntanleg í búðir fyrir jól.
En hvers vegna styttirðu nafnið í Sin Fang?
„Ég veit það ekki. Þetta gerðist bara að sjálfu
sér. Það er enginn Bous þannig að þetta datt
bara út. Þetta var of flókið.“
- fb
Spila á brasilískri tónlistarhátíð
SINDRI MÁR Sindri Már Sigfússon kemur fram sem Sin
Fang á tónlistarhátíð í Brasilíu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Ég verð rosalega þunn sjálf en
fyrir mig er það að vera stabíll
í drykkju að fá sér vel að borða
áður en maður fer að sofa.“
Sigríður Garðarsdóttir puttalingur
„Ég fór í atvinnuviðtal í byrj-
un sumars og fékk svo að vita að
ég væri ráðin fyrir stuttu,“ segir
Auður Alfífa Ketilsdóttir, sem er
nýráðin ritstjóri Stúdentablaðsins,
en þegar Fréttablaðið náði af henni
tali var hún að koma til Reykjavík-
ur eftir sumarlanga dvöl í Reykjar-
firði á Hornströndum án síma og
netsambands.
„Aðstandendur Stúdentaráðs
hringdu bara í NMT-símann hans
pabba til að ná í mig og færa mér
þessar gleðifregnir,“ segir Fífa,
eins og hún er alla jafna kölluð.
Hún hlakkar til að takast á við
starfið sem hún tekur formlega
við þann fyrsta september næst-
komandi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Fífa vinnur við fjölmiðlun en hún
starfaði um tíma sem blaðamað-
ur á dagblaðinu 24 stundum og var
annar umsjónarmaður þáttarins
Óþekkt á sjónvarpstöðinni NFS.
Þátturinn var spjallþáttur með
feminínsku ívafi sem Fífa sá um
ásamt Kristínu Tómasdóttur, vin-
konu sinni. „Ég hef áhuga á því að
vinna í fjölmiðlum enda finnst mér
gaman að geta látið í mér heyra og
viðrað mínar skoðanir.“
Aðspurð hvort feminísk slag-
síða verði á Stúdentablaðinu undir
hennar stjórn stendur ekki á svari.
„Ja, ég ætla rétt að vona það. Það
hefur verið svo gegnum tíðina að
ritstjórar hafa getað mótað blað-
ið eftir sinni hugsjón og það er nú
þannig að feminíska sjónarhornið
smitast út í allt sem maður gerir
og segir. Það verða allavega jöfn
kynjahlutföll í ritstjórninni,“ segir
Fífa og bætir við hlæjandi að hún
voni að blaðið taki ekki allt í einu
á sig einhverja karlrembumynd.
„Það væri falleinkunn fyrir mig.“
Fífa er enn sem komið er ekki
búin að ráða til sín ritstjórn en fer
í það á næstu vikum. „Ég er enginn
allsráðandi á blaðinu og vil vinna
með skemmtilegu og kúl fólki sem
er með góðar hugmyndir,“ segir
hún og auglýsir hér með eftir fólki
innan háskólasamfélagsins til að
sækja um að starfa við blaðið.
Fífa er ekki alveg búin að móta
stefnu Stúdentablaðsins enn þá en
það er í bígerð „Ég er með skjal
í tölvunni minni sem heitir Hug-
myndir fyrir stúdentablað. Það
eru nokkrar línur komnar á blað,“
segir Fífa dularfull en viðurkennir
að hún vilji að blaðið verði pólitískt
og gagnrýnið og að háskólasamfé-
lagið verði í brennidepli. „Þetta
verður samt ekki leiðinlegt blað,“
lofar Fífa við að lokum.
alfrun@frettablaðið.is
AUÐUR ALFÍFA KETILSDÓTTIR: VONA AÐ ÞAÐ VERÐI FEMINÍSK SLAGSÍÐA
Ætlar að stýra pólitísku
og gagnrýnu Stúdentablaði
NÝTT STARF Auður Alfífa Ketilsdóttir, sem er nýráðin ritstjóri Stúdentablaðsins ætlar að sjá háskólanemum fyrir skemmtilegu
lestrarefni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Mér líður eins og föðurlandssvik-
ara að vera ekki með súpu. Mér
finnst eins og það sé nánast þegn-
skylda að gera þetta,“ segir Svan-
hildur Hólm, framkvæmdastjóri
þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Hún og eiginmaður hennar,
sjónvarpsmaðurinn Logi Berg-
mann Eiðsson, ætla ekki að bjóða
almenningi upp á fiskisúpu á föstu-
daginn, kvöldið fyrir Fiskidaginn
mikla á Dalvík. Í staðinn ætla þau
að bjóða gestum upp á kaffi, auk
þess sem hljómsveitin Hvanndals-
bræður kemur í heimsókn, eins
og undanfarin ár. Og núna verð-
ur sjálfur Magni Ásgeirsson með
þeim í för.
Svanhildur og Logi eignuðust
dótturina Hrafnhildi fyrir fjórum
mánuðum og hún þarf á óskiptri
athygli þeirra að halda í ár. „Hrafn-
hildur er bara fjögurra mánaða og
þetta er alveg þriggja daga vinna,“
segir Svanhildur, sem fékk um eitt
þúsund manns í heimsókn í fyrra.
Þá eldaði hún um 150 lítra af fiski-
súpu fyrir glorsoltna gestina. „Við
höfum gert þetta síðan við keypt-
um okkur hús á Dalvík. Við kom-
umst að þeirri niðurstöðu að ef
við ætluðum einhvern tímann að
sleppa þessu þá væri það árið sem
við værum með fjögurra mánaða
dóttur,“ segir hún.
Svanhildur ætlar reyndar að
elda fiskisúpu þennan dag en
aðeins fyrir nána vini og ætt-
ingja. „Við verðum með gesti úti
í garði sem ég hef venjulega séð
minna af og aðallega þá til að ná í
skottið á þeim til að láta þá brytja
niður grænmetið. Núna ætla ég að
gefa fólki að borða og tala við það,“
segir hún. „Ég læt mig jafnvel
dreyma um að smakka fiskisúpu
í öðrum húsum því það er fullt af
fólki sem býr líka til fiskisúpu sem
ég hef aldrei farið til.“
- fb
Bjóða upp á kaffi í stað súpu á Fiskideginum
ENGIN FISKISÚPA Í ÁR Svanhildur Hólm og Logi Bergmann leyfa gestum að smakka
fiskisúpuna sína. Almenningur fær ekki að njóta súpunnar í ár.
- vélar
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta
Tónleikar Ragga Bjarna
og hljómsveitarinnar
Retro Stefson á
Innipúkanum
tókust með miklum
ágætum. Fyrst var
talið í gamla Ragga
Bjarna-slagarann
Vertu ekki að horfa
og eftir það söng
Raggi Smells Like
Teen Spirit í útgáfu Milljónamær-
inganna ásamt fleiri góðum lögum.
Eftir uppklapp var síðan komið
að laginu Ó, vertu sæt við mig,
sem sló rækilega í gegn á meðal
„púkanna“.
Hreystimennið og rithöfundurinn
Þorgrímur Þráinsson auglýsti eftir
starfi almannatengils á Facebook-
síðu sinni á dögunum. Færslan birt-
ist á sama tíma og fregnir bárust
af háum launum almannatengla
hér á landi í tengslum við útgáfu
álagningarseðilsins og
því um góðlátlegt grín
að ræða hjá Þorgrími.
Sannleikurinn er sá
að kappinn hefur í
nógu að snúast þessa
dagana og er með verk-
efni fram á mitt
næsta ár. Hann
þarf því ekki að
hafa áhyggjur af
atvinnuleysi á
næstunni.
Fréttir af umdeildri skipun Runólfs
Ágústssonar í starf umboðsmanns
skuldara hafa teygt sig til Danmerk-
ur. Þar er veitingamaðurinn Friðrik
Weisshappel afar ósáttur og
raunar svo ósáttur að hann sendi
Árna Páli Árnasyni félagsmála-
ráðherra tölvupóst þar sem hann
sagði ráðninguna lykta af pólitískri
greiðasemi. „Ég hef verið harður
stuðningsmaður stjórnarinnar en
er geysilega vonsvikinn
með þessa ráðningu
sem sýnir að mínu mati
að lítið hefur breyst,“
sagði Friðrik í bréfinu
og bætti við að allir
sem hann talaði
við um málið í ferð
sinni til Íslands á
dögunum hefðu
verið á sama
máli. - fb / afb
FRÉTTIR AF FÓLKI