Fréttablaðið - 11.08.2010, Síða 2
2 11. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
DÝRAHALD Íbúar á Vopnafirði eru
margir hræddir við hundinn Brúnó,
sem er af gerðinni franskur mastiff.
Þetta kemur fram í fundargerð heil-
brigðisnefndar Austurlands.
Heilbrigðisnefndin hafði, í bréfi til
eigendanna, hvatt til þess að hundur-
inn yrði aflífaður eftir að hann glefs-
aði í hinn 22 ára gamla Daða Peters-
son. Eigendurnir voru jafnframt
beðnir um að hafa múl á hundinum
þegar hann væri utandyra á meðan
þeir íhuguðu beiðni nefndarinnar.
Nú er annað hljóð komið í strokk-
inn. Heilbrigðiseftirlitið ætlar ekki
að fylgja tilmælunum eftir og Brúnó
er ekki með múl. Það þykir fórnar-
lambinu slæmt.
Rúnar Guðjón Einarsson, eigandi
Brúnós, segir málið hafa verið blásið
upp. Brúnó sé ljúf skepna sem eng-
inn þurfi að óttast.
„Ég fer alltaf með hundinn niður
á bryggju þegar ég er í landi. Þetta
var á sjómannadaginn þegar strák-
ur sem var í koddaslag kemur haug-
blautur, með handklæði vafið um sig,
upp úr sjónum. Hann gengur í áttina
að mér þar sem ég stóð með hundinn
í taumi. Ég vara strákinn við, segi
honum að hundurinn sé hræddur við
hann, en hann hlustar ekki og það
endar með því að hundurinn glefsar
til hans,“ segir Rúnar. „Þá hringdi
einhver í lögregluna.“
Rúnar segist vel skilja að fólk geti
verið hrætt við Brúnó, hann sé stór
hundur. „En það er ekki til blíðari
skepna. Hann gerir engum mein. Við
eigum tvo páfagauka og einn kött og
þeim lyndir vel við Brúnó.“
Að sögn Helgu Hreinsdóttur,
starfsmanns Heilbrigðiseftirlits
Austurlands, ætlar eftirlitið ekki að
fylgja tilmælum um aflífun eftir,
enda hafi aðeins verið um tilmæli að
ræða. Hún vildi að öðru leyti ekki
tjá sig um málið og benti á Þorstein
Steinsson, sveitarstjóra á Vopna-
firði.
Þorsteinn var nýkominn úr fríi
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. Hann sagðist ætla að fara
yfir málið með eigendunum fari
þeir ekki að tilmælunum. „Við leyf-
um hundahald með ákveðnum skil-
yrðum og við lítum það alvarlegum
augum séu þau ekki virt,“ segir Þor-
steinn. Frásögn Daða af atvikinu er
í flestu samhljóða frásögn Rúnars.
Daði segist hafa orðið skíthræddur
við hundinn eftir atvikið.
„Hann er álíka stór og hestur,“
segir Daði sem hlaut þó ekki skaða
af glefsinu. Hann hafði ekki heyrt af
því að heilbrigðisnefndin ætlaði ekki
að fylgja tilmælunum eftir. „Mér
finnst það slæmt,“ segir Daði sem
óttast að Brúnó geti valdið öðrum
skaða. kristjan@frettabladid.is
Brúnó vekur hræðslu
meðal Vopnfirðinga
Hundur glefsaði í mann á Vopnafirði. Heilbrigðisnefnd Austurlands vildi láta
aflífa dýrið en snerist hugur. Fórnarlambinu er brugðið og óttast að hundurinn
eigi eftir að valda öðrum skaða. Ekki til blíðari skepna, segir eigandinn.
ATVINNULÍF Verulega hefur hægt
á fjölgun örorkulífeyrisþega á
þessu ári, segir á vef Samtaka
atvinnulífsins (SA).
„Fjöldi örorkulífeyrisþega
var 15.842 hinn 1. júlí síðastlið-
inn en hann var 15.677 í ársbyrj-
un þannig að fjölgunin á árinu
nemur 165 einstaklingum á
fyrri hluta ársins. Þetta er mikil
breyting frá fyrri árum þar sem
örorkulífeyrisþegum fjölgaði um
500 til 1.300 árlega á árabilinu
2004-2009,“ segir á vefnum.
Þar segir jafnframt að í ljósi
mikils langtímaatvinnuleysis
hefði mátt búast við aukningu í
nýgengi örorku, en þess sjái ekki
enn stað. „Ef til vill má rekja
þessa þróun til forvarnarstarfs
Starfsendurhæfingarsjóðs.“ - óká
Minni áhrif af atvinnuleysi:
Hægari fjölgun
í hópi öryrkja
UMHVERFISMÁL Heildarmagn
úrgangs hér á landi hefur síð-
ustu ár aukist umfram íbúa-
fjölgun, að því er fram kemur í
drögum Umhverfisstofnunar að
landsáætlun um úrgang til árs-
ins 2020.
„Árið 1995 var magn úrgangs
rúm 1.500 kílógrömm á íbúa á
ári en var komið í tæp 1.800 kíló
á íbúa árið 2007. Hrein aukning
á magni úrgangs á þessum 13
árum, þar sem magnaukning
vegna fólksfjölgunar kemur til
frádráttar, var því um fimmt-
ungur,“ segir í drögunum.
Nýjustu gögn eru hins vegar
sögð benda til að heildarmagn
úrgangs hafi dregist verulega
saman frá síðustu mánuðum
ársins 2008 og endurspegli
það breytt efnahagsástand og
neyslumunstur. - óká
Dregið hefur aftur úr rusli:
Úrgangur hefur
aukist umfram
íbúafjölgun
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín, for-
sætisráðherra Rússlands, klifr-
aði í gær upp í flugstjórnarklefa í
flugvél sem notuð er í baráttunni
við eldana miklu þar í landi og tók
virkan þátt í slökkvistarfinu sem
aðstoðarflugstjóri vélarinnar.
Pútín hefur verið áberandi í
rússneskum fjölmiðlum þar sem
hann tekur þátt í baráttunni við
eldana, sem kostað hafa tugi
manns lífið undanfarnar tvær
vikur og eyðilagt heimili þúsunda
manna. Tjónið er metið á hundruð
milljóna króna. - gb
Enn brennur í Rússlandi:
Pútín kemur til
bjargar Rússum
PÚTÍN Í FLUGSTJÓRNARKLEFANUM For-
sætisráðherrann í eldlínu átakanna.
NORDICPHOTOS/AFP
Blíðir og viðkvæmir
Franskir Masstiff hundar eru á vefnum hvuttar.net sagðir af frönskum
ættum, blíðir og viðkvæmir sem myndi sterk bönd við eigenda sinn og
séu yfirleitt mjög góðir með börnum. „Franski Masstiff er [...] almennt ekki
árásargjarn [...] Hann geltir lítið sem ekkert.
„Áslaug, ætlarðu að hjóla í
þjófana?“
Já, ég ætla að grilla þá.
Áslaug Snorradóttir, kokkur og sjónvarps-
kona í þættinum Fagur fiskur í sjó, sem
sýndur er í Ríkissjónvarpinu varð fyrir
því leiðinlega óláni í síðasta mánuði að
uppáhaldshjóli hennar var stolið. Reið-
hjóli sonar hennar var stolið á sama tíma.
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-
ráðherra, segist ósammála Samkeppniseftirlit-
inu um að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráð-
herra sé skaðlegt samkeppni. Gylfi Magnússon,
efnahags- og viðskiptaráðherra, tekur undir
gagnrýni Samkeppniseftirlitsins á frumvarpið.
„Þetta snýst um þá framleiðslustýringu sem
við höfum í þessum greinum og þann ríkis-
stuðning sem þarna er á ferðinni, að þeir fjár-
munir nýtist með skilvirkum hætti,“ segir
Steingrímur.
Gylfi Magnússon var stjórnarformaður Sam-
keppniseftirlitsins í fimm ár. Hann segir sínar
skoðanir í þessum málum ekki fjarri því sem
Samkeppniseftirlitið hefur haldið fram en það
gerði alvarlegar athugasemdir við frumvarpið.
Ýmsir Sjálfstæðismenn hafa lýst yfir óánægju
með frumvarpið en báðir fulltrúar flokksins
í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd studdu
nefndarálit þess efnis að samþykkja bæri frum-
varpið. Annar fulltrúinn, Einar K. Guðfinnssson
segir frumvarpið ekki fela í sér neinar grund-
vallarbreytingar á landbúnaðarkerfinu, heldur
úrræði til að fylgja eftir gildandi lögum. Ólína
Þorvarðardóttir, sem var sá eini af þremur full-
trúum Samfylkingarinnar í nefndinni sem skrif-
aði undir álitið, segir að efasemdir séu uppi um
frumvarpið innan þingflokks Samfylkingar-
innar. Hún segir þó að engin eðlisbreyting fylgi
þessu frumvarpi frá gildandi lögum og að inni í
frumvarpinu séu ýmis atriði til bóta, það þurfi
þó að skoða nánar. - mþl
Kurr innan Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar vegna frumvarps til búvörulaga:
Deilt um ágæti mjólkurfrumvarps
MJÓLK ER GÓÐ Frumvarp landbúnaðarráðherra um
búvörulög hefur sætt gagnrýni út frá samkeppnis- og
neytendasjónarmiðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNMÁL Neytendasamtökin
birtu í gær umsögn þar sem þing-
menn eru hvattir til þess að fella
nýtt frumvarp til búvörulaga og
það sagt vinna gegn hagsmunum
bænda og neytenda.
Samtök verslunar og þjónustu
höfðu áður tjáð sig um frumvarpið
en í áliti þeirra sagði að með frum-
varpinu væri verið að innleiða
algjöra einokun við vinnslu og
markaðssetningu á mjólkurafurð-
um á Íslandi. - mþl
Gagnrýna mjólkurfrumvarp:
Mjólkurfrum-
varpið gagnrýnt
BRÚNÓ Rúnar Guðjón segir að Brúnó sé ljúfur. Maðurinn sem Brúnó glefsaði
í óttast að hundurinn, sem hann segir vera á stærð við hest, eigi eftir að valda
öðrum skaða. MYND/ÚR EINKASAFNI
STJÓRNSÝSLA Aðallögfræðingur
seðlabankans, Sigríður Logadótt-
ir, segir að engin fyrirvari hafi
verið gerður um notkun viðskipta-
ráðuneytisins á tölvupósti sem
hún sendi lögfræðingi ráðuneyt-
isins, en hann fjallaði um heimild
til gengistryggingar lána og var
endursögn á minnisblaði Sigríðar
sama efnis.
Hins vegar hafi lögfræðiálit Lex
um þetta ekki átt að fara víðar en
til lögfræðings viðskiptaráðu-
neytisins, enda tíðkist ekki að
utanaðkomandi álit sé notað af
öðrum en þeim sem pantar það.
Bæði í minnisblaðinu og lögfræði-
álitinu er reifað að bann sé við
því að verðtryggja skuldbinding-
ar í íslenskum krónum á grund-
velli gengis erlendra gjaldmiðla.
Þetta kom einnig fram í tölvu-
póstinum, að sögn Sigríðar.
Gylfi Magnússon viðskipta-
ráðherra sagði um lögfræðiálit-
ið á RÚV í gær að það væri „mjög
óvenjulegt fyrirkomulag“ að Seðla-
bankinn hafi ákveðið „að upplýsa
ekki ráðherra um þetta og afhenda
lögfræðingi í viðskiptaráðuneyt-
inu þetta með þessum formerkj-
um“. Sjálfur hafi hann
ekki heyrt af því fyrr en síðsum-
ars eða um haustið.
Arnór Sighvatsson, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans, segir
að hann og aðallögfræðingur hafi
verið sammála um það á sínum
tíma að senda álitið til viðskipta-
ráðuneytisins: „Það var aldrei
ákveðið að upplýsa ekki. Það var
ákveðið að upplýsa með þessum
hætti.“
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra sagði í gær
óeðlilegt að upplýsingarnar
hefðu ekki verið kynntar henni.
Hún hefur óskað eftir skýring-
um bankans vegna þessa.
Seðlabankastjóri, Már Guð-
mundsson, segir að hann hafi
ekki verið í bankanum á þessum
tíma en muni kanna málið
nánar og svara forsætis-
ráðherra. - kóþ
Aðstoðarbankastjóri vildi að upplýsingar um gengislán færu til ráðuneytisins:
Engin leynd yfir tölvupósti
ARNÓR SIGHVATSSONGYLFI MAGNÚSSON
SPURNING DAGSINS