Fréttablaðið - 11.08.2010, Blaðsíða 6
6 11. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
SLYS Tveggja ára stúlka brennd-
ist alvarlega þegar hún féll í frá-
rennsli frá hvernum Strokki á
mánudagskvöld. Einar Tryggva-
son sjúkraflutningamaður býr á
svæðinu og gat mætt á staðinn og
hlúð að stúlkunni áður en læknir
og sjúkrabíll komu.
Stúlkan var á ferð með for-
eldrum sínum, en fjölskyldan er
spænsk og á ferðalagi hér á landi.
Hún var á göngustíg við Geysis-
svæðið þegar hún hrasaði um band
sem afmarkar göngustíginn og féll
fram fyrir sig. Hún var flutt inn
í starfsmannahús á svæðinu og
þaðan hringdi starfsfólk í Einar,
sem er í sumarleyfi frá sjúkra-
flutningunum en rekur golfvöll
á svæðinu. Hann hringdi svo á
sjúkrabíl og lækni frá Laugarási.
Hægt var að sinna stúlkunni
ágætlega á staðnum að sögn Ein-
ars þar sem til var brunagel og
fleiri nytsamlegar sjúkravörur.
Stúlkan var svo flutt með sjúkra-
bíl á slysadeild Landspítalans og
þaðan á gjörgæslu, þar sem hún
liggur enn. Hún hlaut annars stigs
bruna á höndum, brjósti og í and-
liti. Þyrla Landhelgisgæslunnar
var í viðbragðsstöðu um tíma og
ætlaði að fljúga á móti sjúkrabíln-
um ef þess gerðist þörf. - þeb
Skemmtistaður/matsölustaður
Tælenskur matsölustaður og sér skemmtistaður
á besta stað miðsvæðis í Reykjavík til sölu
saman eða sitt í hvoru lagi. Öll leyfi og langtíma
leigusamningar. Góður rekstur og tækifæri,
upplýsingar í síma 660 3770 eða 6976333.
GEYSIR Stúlkan var með foreldrum
sínum að skoða Geysissvæðið þegar
hún féll ofan í og brenndist illa.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sjúkraflutningamaður í sumarfríi var fyrstur á slysstað og hlúði að stúlku:
Brenndist illa við fall í Strokk
MENNTUN Um þrjátíu ný leikskóla-
pláss verða til í Norðlingaholti í
haust þegar ný deild við leikskól-
ann Rauðhól verður opnuð.
Norðlingaskóli hefur hingað til
verið í húsnæðinu sem nýja deild-
in verður í, en hann færist nú yfir
í nýja skólabyggingu. Því verður
gerð leikskóladeild úr þremur
samliggjandi stofum í húsinu fyrir
elstu börnin á leikskólanum.
Verið er að kanna hvort foreldr-
ar í hverfinu, sem hafa fengið leik-
skólapláss í Árbæ, vilji nýta sér
nýju plássin. Þá hafa leikskólar og
þjónustumiðstöðvar í Árbæ verið
látnar vita þar sem plássin munu
hafa áhrif á innritun þar. - þeb
Ný deild í Norðlingaholti:
30 ný leikskóla-
pláss verða til
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hefur fengið sex
nýjar myndavélar til umráða. sem
notaðar verða við umferðareftirlit.
Tryggingafélagið Sjóvá gaf lög-
reglunni myndavélarnar í tilefni
af 50 ára afmæli umferðardeildar
lögreglunnar. Sérstakt hóf var
haldið í höfuðstöðvum lögreglunn-
ar í síðustu viku og afhenti for-
stjóri Sjóvár, Lárus Ásgeirsson,
þær þá. Sagði hann það sameigin-
lega hagsmuni allra að lögreglan
geti unnið störf sín af nákvæmni
og nýtt nýjustu tækni. - þeb
Lögreglan fékk gjöf frá Sjóvá:
Sex nýjar eftir-
litsmyndavélar
SIGLUFJÖRÐUR Boranir eftir heitu vatni í
Skarðdal lofa góðu.
SIGLUFJÖRÐUR Tilraunaboranir
Rarik eftir heitu vatni í Skarðdal
við Siglufjörð hafa gengið vel.
Þetta kemur fram á siglo.is.
Nokkur skortur hefur verið á
heitu vatni á Siglufirði undanfar-
in ár. Dæmi eru um að fyrirtæki
í bænum hafi þurft að loka fyrir
heita vatnið eða nota minna af
því þar sem hitaveituholurnar í
Skútudal hafa ekki haft undan.
Í Skarðdal voru boraðar tvær
70 metra djúpar holur til hita-
mælingar. Vísindamenn eru að
lesa úr niðurstöðunum en bráða-
birgðaniðurstöður eru jákvæðar.
- th
Skortur á heitu vatni:
Tilraunaboran-
ir á Siglufirði
STJÓRNSÝSLA Forsætisráðherra
hefur skipað Rögnu Árnadóttur,
dóms- og mannréttindaráðherra í
stað Jóns Bjarnasonar, sjávar- og
landbúnaðarráðherra, til þess að
taka ákvörðun um skipun í emb-
ætti skrifstofustjóra auðlinda-
skrifstofu sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytisins.
Hrannar B. Arnarsson, aðstoð-
armaður forsætisráðherra, segir
að þarna sé verið að fara að
stjórnsýslulögum því Jón Bjarna-
son sé vanhæfur sökum þess að á
meðal umsækjenda um starfið er
núverandi aðstoðarmaður hans,
Jóhann Guðmundsson.
Jón Bjarnason ráðherra:
Vanhæfur til
að skipa í starf
Fjórtán fóru of hratt
Lögreglan á Seyðisfirði tók fjórtán
ökumenn fyrir of hraðan akstur um
helgina. Sá sem hraðast ók var á 132
kílómetra hraða þar sem hámarks-
hraði er 90. Flestir voru teknir á
sunnudag við eftirlit við Háreksstaði á
Jökuldalsheiði.
LÖGREGLUMÁL
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
HANDBOLTI Stöð 2 Sport tilkynnti
í gær að stöðin hefði tryggt sér
útsendingarrétt frá næstu tveim-
ur heimsmeistarakeppnum í hand-
bolta. Kaupverðið á efninu er trún-
aðarmál.
Næsta keppni fer fram í Svíþjóð
í janúar og íslensku silfurstrák-
arnir verða þar í eldlínunni ásamt
öðrum bestu handboltalandsliðum
heims.
„Við munum gera þetta af mynd-
arbrag og til að mynda sýna alla
leiki mótsins í beinni útsendingu.
Það verður einnig þáttagerð um
mótið og leikir aðgengilegir eftir
pöntun. Svo verða einhverjir leik-
ir sýndir í háskerpu,“ segir Pálmi
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
dagskrársviðs 365 miðla.
Þjóðin hefur hingað til getað
fylgst með strákunum okkar í
opinni dagskrá á RÚV en verða
leikir liðsins í læstri dagskrá á
Stöð 2 Sport?
„Blekið var að þorna á samn-
ingnum og það hefur ekki verið
tekin nein ákvörðun um hvort
við læsum dagskránni eður ei.
Það mun koma í ljós síðar,“ segir
Pálmi.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
beindi því til Katrínar Jakobsdótt-
ur menntamálaráðherra, í síðdegi-
stúvarpi Rásar 2 í gær, að hún hlut-
ist til um að leikir landsliðsins á
komandi heimsmeistaramóti verði
að sýna í ólæstri dagskrá.
Í viðtalinu sagði Páll að það
væri á færi menntamálaráðherra
að fara fram á að íþróttaviðburð-
ir á borð við þennan verði að vera
sýndir í opinni dagskrá. „Í evr-
óputilskipun um sjónvarp, sem
Ísland er aðili að, er gert ráð fyrir
því að einstök lönd geti sett á lista
íþróttaviðburði sem ekki má læsa í
áskriftarsjónvarpi,” sagði Páll.
„Ef það er eitthvað í íslensku
íþróttalífi sem ætti heima á
þessum lista er það væntan-
lega íslenska handboltalandslið-
ið í úrslitakeppni á heimsmeist-
aramóti,” bætti útvarpsstjóri við
og sagði það á færi menntamála-
yfirvalda að setja saman lista af
þessu tagi. „Og ef það er einhvern
tíma tilefni til að setja svona lista
saman á Íslandi hlýtur það að vera
núna.” - hbg
Heimsmeistaramótið í handbolta fer af RÚV og yfir á Stöð 2 Sport:
Óvíst hvort HM verði í læstri dagskrá
YFIR Á STÖÐ 2 SPORT Strákarnir okkar
verða í beinni á Stöð 2 Sport í janúar.
MYND/DIENER
VÍSINDI, AP Vísindamenn í Belgíu
hafa birt niðurstöður rannsókna,
þar sem leitað var í mænuvökva
fólks eftir ákveðnum prótínum
sem grunuð eru um að eiga þátt í
Alzheimersjúkdómnum.
Í ljós kom að þessi ákveðnu prót-
ín, amyloid og tau, var ekki aðeins
að finna í 90 prósentum þeirra
Alzheimersjúklinga sem tóku þátt
í rannsókninni, heldur einnig í 72
prósentum þeirra þátttakenda sem
mælst hafa með væg einkenni heila-
bilunar. Að auki var þau að finna í
36 prósentum þeirra þátttakenda,
sem heilbrigðir töldust.
Á hverju ári er talið að um millj-
ón manns byrji að fá væg einkenni
heilabilunar, sem skilgreinast alvar-
legri en eðlileg elliglöp án þess þó að
greinast sem Alzheimersjúkdómur.
Athygli lækna beinist nú meðal
annars að því að greina hverj-
ir úr þessum hópi eiga eftir að fá
Alzheimersjúkdóminn eða önnur
alvarleg vitglöp. Mænustunga er
aðeins ein þeirra aðferða, sem
farið er að nota til þess að fá vís-
bendingar um þetta.
Ljóst þykir að Alzheimersjúk-
dómurinn byrjar að herja á heila
einstaklinga að minnsta kosti ára-
tug áður en fyrstu minnistruflana
verður vart. Þetta vekur vonir um
að hægt verði að hægja á þróun
hans, ef byrjað er að gefa lyf nógu
snemma.
Enn er þó deilt um nákvæmni
greiningar sem byggð er á mænu-
stungu. Rannsóknir á látnu fólki
sýna að fjórðungur þeirra, sem
deyja í hárri elli án nokkurra
elliglapa, eru með prótínið amyl-
oid í mænuvökva.
„Það síðasta sem við viljum er
að segja einhverjum að hann muni
fá Alzheimersglöp ef hann fær þau
síðan ekki,“ segir Marilyn Albert,
vísindamaður við Johns Hopkins-
háskólann í Bandaríkjunum.
Margir læknar telja þó viss-
ara að bíða ekki eftir greiningu.
Samkvæmt rannsókn, sem birt-
ist í tímaritinu Neurology í síð-
ustu viku, byrja 70 prósent þeirra
lækna, sem spurðir voru, að gefa
lyf við Alzheimer fljótlega eftir að
væg einkenni heilabilunar grein-
ast, í þeirri von að hægja megi á
þróun Alzheimers – jafnvel þótt
ekki sé vitað hvort lyfin bera nokk-
urn árangur.
- gb
Greina Alzheimer
með mænustungu
Vísbendingar um Alzheimersjúkdóminn er oft að finna í mænuvökva fólks
nokkru áður en fyrstu einkenna verður vart. Margir læknar freistast til að gefa
lyf áður en greining liggur fyrir, í þeirri von að hægja á sjúkdómnum.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
A
FP
TEKIST Á VIÐ ELLIGLÖPIN
Deilt er um nákvæmni
greiningar sem byggð er á
mænustungu.
Ók undir áhrifum fíkniefna
Lögreglan á Akureyri handtók karl-
mann á þrítugsaldri laust fyrir klukkan
níu í gærmorgun grunaðan um akstur
undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi
af því var gerð húsleit á heimili
mannsins þar sem fundust rúmlega
250 grömm af kannabisefnum. Annar
maður var handtekinn í kjölfarið
en þeim var sleppt að yfirheyrslum
loknum.
Kynna nýliðaþjálfun
Kynningarfundur um nýliðaþjálf-
un Hjálparsveitar skáta í Reykjavík
verður haldinn í hjálparsveitarhúsinu
Malarhöfða 6 klukkan átta að kvöldi
þriðjudagsins 7. september. Þeir sem
fæddir eru á árinu 1992 eða fyrr geta
tekið þátt í nýliðaþjálfun HSSR.
BJÖRGUNARSVEITIR
KJÖRKASSINN
Ætti að skikka bændur til að
girða sauðfé sitt af?
Já 80,7
Nei 19,3
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú siglt til Eyja úr Land-
eyjahöfn?
Segðu skoðun þína á Vísi.is