Fréttablaðið - 11.08.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 11.08.2010, Blaðsíða 34
22 11. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is > Eiður talar ekki við íslenska fjölmiðla Eiður Smári Guðjohnsen var hvergi sjáanlegur við upphaf morgunæfingar íslenska A-landsliðsins í fótbolta í gær en KSÍ bauð þá íslenskum fjölmiðlum aðgengi að lands- liðsmönnunum. Eiður Smári tók engu að síður þátt í æfingunni. Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi landsliðsins, tjáði blaðamanni Fréttablaðsins að Eiður Smári myndi ekki veita íslenskum fjölmiðlum viðtal á æfingunni. Þegar Ómar var spurður út í það hvort þetta „fjölmiðlabann“ stærstu knattspyrnustjörnu landsins myndi halda áfram fram yfir leikinn við Liechten- stein var svarið að þeir tækju bara eina æfingu fyrir í einu. Sölvi Geir Ottesen verður væntanlega í sviðsljósinu í kvöld þegar íslenska landsliðið mætir Liechtenstein í æfingaleik á Laugardals- vellinum en leikurinn hefst klukkan 19.30. Sölvi Geir er að fara að spila sinn fyrsta landsleik sem leikmaður FCK frá Kaupmanna- höfn en hann hefur byrjað vel með dönsku meisturunum á þessu tímabili. „Við erum ekki búnir að tapa leik, erum á toppnum í dönsku deildinni og erum komnir áfram í næstu umferð í Meistaradeildinni. Þetta byrjar vel hjá okkur. Ég er búinn að fá að spila alla leikina og það er búið að ganga mjög vel til að byrja með,“ sagði Sölvi fyrir æfingu landsliðsins í gær. Sölvi hefur verið í byrjunarliðinu í þremur síðustu landsleikj- um þar sem Ólafur Jóhannesson hefur getað valið úr öllum leikmönnum. „Ég er fullur af sjálfstrausti og vil alltaf spila. Maður verður að gera sitt á æfingunum til að sýna sig fyrir þjálfaranum. Ég er búinn að spila síðustu leiki með landsliðinu en ég veit ekki hvaða hugmyndir hann hefur núna,“ segir Sölvi. Ísland mætir nú Liechtenstein annað árið í röð í æfingaleik en liðið vann 2-0 í leik liðanna í fyrra. „Það er ekkert lið sem við getum mætt með hálfum hug. Við þurfum að koma hundrað prósent inn í þennan leik til þess að ná sigri. Ég veit voðalega lítið um lið Liechtenstein en við eigum að vinna þetta lið ef við spilum góðan leik,“ segir Sölvi. Íslenska landsliðið er ekki enn búið að fá á sig mark á þessu ári en leikurinn í kvöld er sá fimmti á árinu 2010. „Það eru ekki bara þeir fjórir öftustu og markmaðurinn sem hafa verið að standa sig vel í varnarleiknum. Allt liðið er að vinna vel saman bæði varnarlega og sóknarlega. Það er vonandi að við höldum áfram þessum sterka varnarleik,“ segir Sölvi en íslenska landsliðið fékk síðast á sig mark í 1-1 jafntefli á móti Lúxemborg 14. nóvember 2009 eða fyrir 375 spilamínútum síðan. SÖLVI GEIR OTTESEN: AÐ STANDA SIG VEL MEÐ FC KAUPMANNAHÖFN OG ÍSLENSKA LANDSLIÐINU Ég er fullur af sjálfstrausti og vil alltaf spila FÓTBOLTI Landslið Liechtenstein hefur ekki unnið landsleik síðan það sigraði Ísland 3-0 hinn 17. október 2007. Sá dagur er svartur dagur í íslenskri knattspyrnusögu. Síðan þá hefur liðið spilað átján FIFA-leiki, tapað sextán þeirra og gert tvö jafntefli, á móti Aserbaíd- sjan og Finnlandi. Meðal þessara sextán ósigra er 2-0 tap á móti Íslandi á La Manga í fyrra þar sem Arnór Smárason og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk Íslands. Þjóðirnar hafa alls mætt fimm sinnum, Ísland hefur unnið fimm leiki en Liechtenstein náði jafntefli í Laugardal og vann heimaleikinn þegar þjóðirnar lentu saman í und- ankeppni EM 2008. Markatalan í leikjunum fimm er 11-4 Íslandi í vil. - óój Landslið Liechtenstein hefur ekki unnið leik í þrjú ár: Unnu síðast Íslendinga *V ik un a 9. -1 6. á g ús t 20 10 . G ild ir e kk i m eð ö ð ru m t ilb o ð um . 58·12345 | www.dominos.is Stór Margarita á ef þú sækir.* Auka álegg á miðstærð af pizzu...... 200 kr. Auka álegg á stóra pizzu.................. 250 kr. Breiðablik komst áfram í Meistaradeild Evrópu: Algjörlega geðveikt FÓTBOLTI Breiðablik komst áfram í 32-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 3-3 jafntefli við franska liðið Juvisy í gær. Blikar náðu öðru sæti síns riðils með sjö stig. Það var besti árangur allra liða í riðlakeppninni sem lentu í öðru sæti Blikar komust því áfram með sigurvegurum riðlanna. Breiðablik komst yfir þegar rangstöðugildra gestanna klikkaði illa og staðan var 1- 0 í hálfleik þrátt fyrir fjölda dauðafæra Juvisy. Gestirnir skoruðu tvö mörk með skömmu millibili í seinni hálfleik en skoruðu svo skrautlegt sjálfsmark og jöfnuðu. Þær komust aftur yfir en karakter Blikastelpna var frábær og liðið jafnaði með góðu marki Berglindar Þorvaldsdóttur. „Leikurinn var eins og við bjuggumst við, miklu erfðari en hinir tveir. Við bárum kannski aðeins of mikla virðingu fyrir þeim og þær voru lengst af með yfirhöndina,“ sagði Harpa eftir leikinn. „En við gáfumst aldrei upp og það hefði verið auðvelt að detta niður eftir að þær komust tvisvar yfir. En þetta var frábært og við hefðum jafnvel getað stolið sigrinum í lokin. Við erum líka ánægðar og þakklátar fyrir stuðninginn, síðan ég kom í Breiðablik held ég að ég hafi aldrei séð jafn marga á kvennaleik. Þetta var algjörlega geðveikt,“ sagði Harpa. - hþh FÓTBOLTI Íslenskt U21 árs landslið hefur aldrei komist í lokakeppni stórmóts í knattspyrnu. Liðið kemst skrefi nær því markmiði með sigri á Þjóðverjum í dag. Liðin gerðu 2- 2 jafntefli í fyrri leiknum en þau mætast í Kaplakrika í undankeppni EM klukkan í dag Það var létt yfir liðinu á Loft- leiðum í gær, skotin gengu fram og aftur á milli manna. Jóhann Berg Guðmundsson reyndi að koma sér inn í viðtalið og köll um að stjörn- unar í liðinu væru alltaf kallaðar í viðtal heyrðust um matsalinn. „Hópurinn er mjög þéttur, við erum allir góðir vinir og spjöllum mikið saman,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Liver- pool. Hann sagðist að vísu sakna þess að enginn væri með Playstat- ion-tölvu á hótelinu. „Hólmar Örn hefur síðan verið að reyna að halda því fram að hann sé góður í borð- tennis. En það kom svo á daginn að hann getur hreinlega ekkert,“ sagði Gylfi Sigurðsson og hvatti félaga sinn þar með til að halda sig við fótboltann. Leikurinn í dag er lykilleikur í riðlinum. Með sigri skilja Íslendingar andstæðinga dagsins eftir . Tékkar eru efstir og í góðri stöðu en tapi Ísland í dag skapast mikil spenna um tvö efstu sætin. Efsta liðið fer beint í úrslitakeppnina en liðið í öðru sæti í umspil. Gylfi segir að leikurinn sé sá mikilvægasti sem íslenskt U21 árs landslið hafi spilað. „Ef við stönd- um saman og náum einu eða þrem- ur stigum erum við í dauðafæri að komast í lokakeppnina. Það væri frábær árangur,“ segir hann en ungmennaliðið hefur fengið meiri athygli en A-landsliðið sem mætir Liechtenstein í vináttuleik í kvöld. „Mér finnst jákvætt að við fáum meiri athygli og ég vona að fólk mæti frekar á leikinn okkar en vin- áttuleik hjá A-liðinu,“ sagði Gylfi. „Við eigum skilið að fá athyglina. Við höfum verið að spila vel og náð góðum úrslitum.“ Guðlaugur segir að lykilatriði sé að liðið haldi boltanum vel og láti Þjóðverjana elta sig en ekki öfugt. „Við leggjum allir hart að okkur í þessu verkefni og vonandi verður þetta okkar dagur. Við berjumst allir fyrir heildina.“ Í fyrri leiknum kom íslenska liðið Þjóðverjum á óvart með því að pressa þá hátt á vellinum. Gylfi segir að svipað verði upp á teningnum í dag. „Þeim gekk ekki vel að ráða við okkur þá. Að sjálfsögðu ætlum við að pressa þá líka núna, við erum á heimavelli og við ætlum að sækja. Þetta er ekkert flókið, við þurfum bara að nýta færin okkar,“ segir Gylfi. Frítt er á leikinn í dag sem hefst klukkan 16.15. hjalti@frettabladid.is Við eigum skilið að fá athyglina Ísland getur tryggt sér að minnsta kosti umspilsleiki um sæti í lokakeppni EM með sigri á Þjóðverjum í dag. Hópurinn er samstilltur og innstilltur á sigur. GÓÐ STEMNING Það var létt yfir strákunum á æfingu í gær og þeir eru að sama skapi innstilltir á sigur í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Úrslit gærdagsins: Meistaradeild kvenna í Evrópu: Breiðablik - Juvisy Essonne 3-3 1-0 Harpa Þorsteinsd. (18.), 2-2 sjálfsmark (70.), 3-3 Berglind Þorvaldsd. (84.). Pepsi-deild kvenna: Þór/KA-Fylkir 3-1 1-0 Mateja Zver (30.), 2-0 Rakel Hönnu- dóttir (47), 3-0 Vesna Smiljcovic (88.), 3-1 Laufey Björnsdóttir (97.). Stjarnan-Valur 2-2 1-0 Laura King (15.), 1-1 Dagný Brynjars- dóttir (30.), 2-1 Lindsey Schwartz (45.), 2-2 Kristín Ýr Bjarnadóttir (71., víti). KR-Haukar 1-1 0-1 Sara Jordan (44.), 1-1 Agnes Árnad. (80.) FH-Grindavík 5-0 1-0 Liliana Martins (2.), 2-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (11.), 3-0 Martins (59.), 4-0 Aldís (65.), 5-0 Margrét Sveinsdóttir (76.) Upplýsingar frá heimasíðunni Fótbolti.net. Staðan í deildinni: Valur 14 10 3 1 56-12 33 Þór/KA 14 9 1 4 41-19 28 Breiðablik 13 8 2 3 27-17 26 Stjarnan 14 6 5 4 28-14 23 Fylkir 14 7 2 5 25-18 23 KR 14 6 4 4 18-15 22 Grindavík 14 4 2 8 10-25 14 Afturelding 13 4 1 8 11-39 13 FH 14 3 1 10 17-45 10 Haukar 14 1 2 11 9-38 5

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.