Fréttablaðið - 11.08.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.08.2010, Blaðsíða 4
4 11. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is KÍNA, AP Aurskriðurnar í Kína hafa kostað að minnsta kosti 700 manns lífið en óttast er að hundruð eða þúsundir manna að auki hafi farist. Í bænum Zhouqu fundu björgunarmenn, sem notuðu hendurnar til að grafa eftir fólki í leðjunni, 52 ára mann sem hafði verið fast- ur í rústum íbúðarhúss í meira en fimmtíu klukkustundir. Meira en þúsund manns er saknað þar. Í Pakistan sneri Asif Ali Zardari forseti aftur heim í gær eftir að hafa brugðið sér í Evrópuferð í síðustu viku, þegar flóðin þar í landi voru í hámarki. Flóðin þar hafa staðið í hálfan mánuð og kostað meira en 1.500 manns lífið. Talið er að nærri fjórtán milljónir manna þar þurfi á aðstoð að halda. Síðast í gær flúðu þúsundir manna frá borginni Muzaffargah í Punjab- héraði eftir að stjórnvöld gáfu út viðvaranir um að hætta væri á flóðum þar. Í Kasmír-héraði á Indlandi hafa íbúar einnig tekist á við skyndiflóð, sem orðið hafa að minnsta kosti 165 manns að bana. Hundruð húsa eyðilögðust og þúsundir her- manna unnu að því að hreinsa vegi og fjar- lægja húsarústir. - gb GENGIÐ 10.07.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 197,2144 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 117,29 117,85 184,8 185,7 154,39 155,25 20,719 20,841 19,553 19,669 16,433 16,529 1,3651 1,3731 179,17 180,23 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR SAMGÖNGUMÁL Rúmlega sex pró- sentum meiri umferð var um vegi landsins um síðustu helgi en sömu helgi í fyrra. Umferðin var þó töluvert minni en um verslun- armannahelgina. Umferð um Dalvík, þar sem Fiskidagurinn mikli var haldinn, var þó tæpum fimm prósentum minni en um sömu helgi í fyrra. Síðustu ár hefur umferð dreg- ist saman helgina eftir verslun- armannahelgi. Umferðin nú var þó heldur meiri á öllum mæli- punktum en undanfarið. Helgin var önnur helgin í röð þar sem umferð var meiri en í fyrra, sem var metár. - þeb Meiri umferð í heildina: Minni umferð um Dalvík UMFERÐ Heldur færri keyrðu um Dalvík um helgina en á sama tíma í fyrra. Þó var helgin vinsælli ferðahelgi í heildina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL BJÖRN Rússneskar sprengjuflugvélar af TU-95 gerð eru stundum kallaðar Birnir. UTANRÍKISMÁL „Tvær óauðkenndar vélar flugu í tvígang um íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið miðviku- daginn 28. júlí,“ segir í tilkynningu Varnarmálastofnunar í gær. Talið er að um TU-95 rússneskar sprengjuflugvélar, svokallaða Birni, hafi verið að ræða. „Um tíma lá leið vélanna um íslenska efnahagslögsögu, bæði vestan af landinu þegar þær flugu til suðurs og svo aftur austan við Ísland eftir að vélarnar höfðu snúið við og flugu til norðausturs. Vél- arnar geta borið kjarnorkuvopn, en staðfestar upplýsingar liggja ekki fyrir um búnað vélanna,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Þetta er í annað sinn sem rússneskar herflugvélar fljúga um íslenska eftirlitssvæðið á árinu. - óká Birnir í íslenskri lofthelgi: Óauðkenndar vélar flugu yfir NORÐURLÖND Norræna ráðherra- nefndin rannsakar nú hversu miklu af matvælum er hent úr verslunum árlega. Markmiðið er að kynna niðurstöðurnar í lok þessa árs. Árlega er hent gífurlegu magni af matvælum úr verslunum, ýmist vegna rangra innkaupa eða að varan er útrunnin. Kemur það niður á umhverfinu og kostar gífurlegar fjárhæðir. Reiknað er með að niðurstöður muni leiða í ljós hve miklu magni af matvæl- um sé fargað í hverju landi fyrir sig og að lagt verði mat á afleið- ingar þess að draga úr því. - sv Rannsókn á vöru í verslunum: Miklu magni fargað árlega VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 24° 26° 26° 22° 24° 27° 21° 21° 24° 23° 30° 32° 34° 18° 23° 16° 21° Á MORGUN 5-10 m/s, hvassast NV-til. FÖSTUDAGUR Hæglætis veður. 14 14 14 12 16 13 15 15 16 15 11 7 4 5 2 8 3 3 2 1 7 1 17 14 14 17 18 15 15 14 17 17 FER AÐ RIGNA Í NÓTT Það verða breytingar í veðri til morguns. Það þykknar heldur upp vestan til á land- inu en á morgun má búast við vætu á vesturhelmingi landsins. Svipað veður á föstudag en Austurland lítur einna best út fyrir ferðalanga hvað þurrviðri og sól varðar. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður ÁRÉTTING Björgunarfólk í þremur Asíuríkjum leitar að fólki á lífi eftir gríðarmikil flóð: Sjö hundruð látnir í Kína eftir gríðarleg flóð LEITAÐ AÐ FÓLKI Í EÐJUNNI Björgunar- fólk í norðvestanverðu Kína býr sig undir leit. N O R D IC PH O TO S/ A FP AKUREYRI Akureyrarbær hefur lagt fram tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir sunnanverðan miðbæinn. Stendur til að reisa útibú frá veit- ingastaðnum KFC og nýja leigu- bílastöð við Hafnarstræti. Skipu- lagsstjóri lagði fram endurskoðaða tillögu á bæjarstjórnarfundi í júní og var hún samþykkt með átta atkvæðum gegn tveimur. Hafin er undirskriftasöfnun á net- inu til að mótmæla þessum aðgerð- um á vefsíðunni www.betriakur- eyri.com. Þar segir að ótvírætt sé að fyrirhuguð skyndibita- og elds- neytissala stingi verulega í stúf við sögulega götumynd Akureyrar „en um er að ræða lengstu röð húsa í sama stíl sem við eigum frá Græna hatti alveg að Brynju og jafnvel lengra,“ segir á heimasíðunni. Pétur Bolli Jóhannesson, skipu- lagsstjóri Akureyrarbæjar, segir að sú hugmynd að fá KFC í miðbæ Akureyrar hafi upphaflega komið frá Akureyringum sjálfum. „Það var komin mikil pressa á bæjarapparatið frá íbúum að fá KFC hingað,“ segir hann. „Það var meira að segja stofnuð Facebook- síða um málið.“ Pétur segir að til- lagan sé partur af mun stærra verkefni. Stendur meðal annars til að flytja Bifreiðastöð Oddeyr- ar (BSO) frá horni Strandgötu og Drottningarbrautar í Hafnar- stræti. „Leigubílastöðin þarf hugsan- lega að víkja fyrir nýju skipulagi í miðbænum,“ segir Pétur og bætir við að ný bæjarstjórn sé að hugsa öll mál upp á nýtt ásamt skipulags- nefnd bæjarins og hugmyndin um síki í miðbænum sé eitthvað sem verið sé að endurskoða. Andrea Hjálmsdóttir og Sigurð- ur Guðmundsson bæjarfulltrú- ar mótmæltu tillögunni. Andrea segir að í tillögunni séu mjög veik útlitsviðmið og þau verði að skýra mun betur. „Ég tel að bensínafgreiðsla og skyndibitastaður á þessu svæði brjóti algjörlega í bága við umhverfið,“ segir hún. „Það er með ólíkindum að það sé ekki hægt að finna BSO stað í nágrenni við bensínstöð sem er til staðar því þær eru alveg ótrúlega margar nú þegar.“ Andrea segir að mikilvægt sé að vernda bæjarmyndina og bæjar- yfirvöld eigi að skipuleggja bæinn frekar en einstaka fyrirtæki og verktakar. „Þetta snýst um útlit og að varð- veita ímynd bæjarins,“ segir Andr- ea. „Gömul hús, kirkjan og leikhús- ið er það sem ferðafólk vill sjá. Ekki auglýsingaskilti og strompa Kentucky Fried Chicken.“ sunna@frettabladid.is KFC skemmi sögulega götumynd Akureyrar Til stendur að byggja veitingastað KFC og bensínstöð við Hafnarstræti á Akur- eyri. Undirskriftasöfnun er hafin til mótmæla. Hugmyndin kom upphaflega frá íbúum, segir skipulagsstjóri. Á skjön við skipulagsmynd, segir bæjarfulltrúi. NÝTT SKIPULAG Á AKUREYRI Rúmlega fimmhundruð manns höfðu skrifað undir mótmæli á heimasíðunni betriakureyri.com í gærkvöldi. MYND/BETRIAKUREYRI.COM Í blaðinu í gær var sagt að miðaverð með Herjólfi milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja hefði verið „um 3.000 krónur“. Nákvæm tala er 2.660 krónur. LEIKHÚS KFC BENSÍNSTÖÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.