Fréttablaðið - 11.08.2010, Page 8
8 11. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
embættismanna sjávarútvegsráðu-
neytisins á þeim tíma, að óbeint
geti erlendir aðilar átt 49,9 pró-
sent í íslensku sjávarútvegsfyrir-
tæki sem stundar bæði útgerð og
frumvinnslu. Í umræðum á þingi
taldi Árni jafnframt að ekki væri
tilefni til að rýmka heimildirn-
ar, heldur láta á það reyna hvaða
möguleikar til fjárfestinga væru
raunverulega fyrir hendi, en hann
sagði þær „tiltölulega lítið“ nýttar
á þeim tíma.
Það má að síðustu velta fyrir sér
af hverju þetta mál rís svo hátt
núna í umræðunni og raun ber
vitni. Er það vegna þess að íslensk-
ur útgerðarmaður fer þessa leið og
talar um eignarhald fyrirtækisins
með skýrum hætti? Er það vegna
þess að hann er að reyna að kaupa
kvóta og aðrir sem eiga hagsmuna
að gæta vekja athygli á eignarhaldi
fyrirtækisins?
Flestir virðast þó þeirrar skoð-
unar að það sé réttur skilningur
hjá Stormsmönnum og lögfræði-
stofunni Logos, sem vann lögfræði-
álitið fyrir fyrirtækið, að bein og
óbein eignaraðild megi vera 49
prósent og aldrei hærri. Það er
hins vegar sjálfsagt að eignarhald
erlendra fyrirtækja sé kannað,
eins og nefnd um erlenda fjárfest-
ingu er falið að gera. Einnig hvern-
ig fylgst er með eignarhaldi sjáv-
arútvegsfyrirtækja í þessu ljósi.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur notað þessa mynd til að útskýra
lögin um eignarhald í greininni. Engum dylst sá skilningur að
óbeint eignarhald geti orðið 49 prósent.
Ísl. lögaðili; útgerðarfyrirtæki
og/eða frumvinnla að öllu
leyti í íslenskri eigu.
B er ísl. lögaðili og á
5-100% hlutafé í A.
0-25% hlutafé í B
er í erlendri eign.
75-100%
hlutafjár í B er
í íslenskri eign
og raunveru-
legt ísl. yfirráð.
Minni en 49% hlutafjár í D er í
erlendri eign.
Meira en 51% hlutafjár í D er í
innlendri eign og raunveruleg
ísl. yfirráð.
Erl.
F
Erl.
B
A D
Skýring ráðuneytis á eignarhaldi
Eignarhald útlendinga í
íslenskum sjávarútvegi er
orðið hitamál að nýju eftir
að kínverskir fjárfestar
keyptu sig inn í Storm Sea-
food. Lögspekingar efast
ekki um að fjárfesting
Storms sé lögleg. Þeir segja
lögin hins vegar illa skrifað
torf.
Gylfi Magnússon, efnahags- og
viðskiptaráðherra, hefur falið
nefnd um erlenda fjárfestingu
að kanna hvort það samræm-
ist lögum að kínverskir fjárfest-
ar hafi með óbeinum hætti eign-
ast rúmlega 43 prósenta hlut í
sjávarútvegsfyrirtækinu Storm-
ur Seafood. Fyrirtækið lét vinna
lögfræðiálit vegna fjárfesting-
arinnar. Niðurstaðan er að kaup
kínversku fjárfestanna samræm-
ist lögum. Málsmetandi menn, og
meðal þeirra Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra, efast
hins vegar um að um lögmætan
gjörning sé að ræða og telur það
vera yfir allan vafa hafið að eign-
arhald í veiðum og frumvinnslu sé
ekki löglegt.
En hvað segja lögin og í hverju
liggur hin ólíka túlkun á því
hvað er löglegt/leyfilegt og hvað
ekki? Lög um númer 46/1996 um
erlenda fjárfestingu virðast taka
af allan vafa um að bein og óbein
eign útlendinga getur orðið allt að
49 prósent. Dæmi með greinar-
gerð sem fylgdi lagafrumvarpinu
á sínum tíma virðist jafnframt
draga þetta fram með óyggjandi
hætti.
Fjárfestirinn, Kadoorie-fjöl-
skyldan, á 25 prósent í tveimur
eignarhaldsfélögum sem aftur
eiga í Storm Seafood. Uppsafnað
óbeint eignarhald er 43 prósent,
en 57 prósent eru í eigu Steindórs
Sigurgeirssonar sjávarútvegs-
fræðings. Svo virðist sem eignar-
hald Kadoorie-fjölskyldunnar sé
því vel innan þeirra marka sem
íslensk lög segja til um.
Þeir lögspekingar sem Frétta-
blaðið ræddi við um málið voru
sammála um að lögin væru mjög
óskýr en jafnframt að það liggi
fyrir að óbein fjárfesting upp að
49 prósentum sé lögleg. Einn við-
mælandi sagði að lögin gætu ekki
verið óskýrari og spyr: Af hverju
er þetta svona óskýrt? Ekkert sé
því til fyrirstöðu að greina með
skýrum hætti hver takmörk á
eignarhaldi útlendinga eigi að
vera í lögum; meðferð skattamála
og fleira.
Málið er auðvitað ekki nýtt
af nálinni og kom til dæmis til
umræðu á Alþingi árið 2000, eins
og Mörður Árnason alþingismaður
bendir á á heimasíðu sinni. Þá var
rætt um hvort rétt væri að rýmka
heimildir útlendinga í lögum til
fjárfestinga hér. Þáverandi sjávar-
útvegsráðherra, Árni M. Mathie-
sen, lét á þeim tíma gera athugun á
erlendu eignarhaldi í sjávarútvegi
sem leiddi í ljós, að mati hans og
Lög um fjárfestingu sögð illa skrifað torf
FARSÆLL Á VEIÐUM Því verður að svara hvort erlend fjárfesting veldur röskun í greininni. Fara störf úr landi eða arður af veiðunum? Er betra að útgerðir taki lán til að
byggja upp fyrirtæki en að fá erlent hlutafé sem greitt er beint til landsins sem fjárfesting?
FRÉTTASKÝRING: Er erlent eignarhald í íslenskum sjávarútvegi ólöglegt?
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Í 1. tölul. 1. mgr. laganna um erlenda
fjárfestingu er ítrekað fortakslaust bann við
beinni fjárfestingu erlendra aðila í fiskveið-
um og frumvinnslu sjávarafurða. Hins vegar
er lagt til að heimiluð verði óbein fjárfesting
í þessum greinum innan ákveðinna marka.
Í athugasemdum með frumvarpinu, sem
óbreytt varð að lögum, er tekið eftirfarandi
dæmi: [D, E, F og G eru þau fyrirtæki sem
stunda sjávarútveg. A, B og C eru eignar-
haldsfélög – þannig geta útlendingar átt allt
að 49%]
Sjávarútvegsfyrirtækið A er í eigu tveggja
lögaðila, B og C. Bæði B og C verða að
uppfylla það skilyrði að vera íslenskir
lögaðilar undir íslenskum yfirráðum. Hins
vegar mega erlendir aðilar eiga með beinum
hætti allt að 25% af hlutafé eða stofnfé í B
og C. Ef hvorki B né C eiga meira en 5% af
hlutafé eða stofnfé í A getur þetta hlutfall
þó farið upp í 33% af hlutafé eða stofnfé.
B og C geta verið hvers konar lögaðilar, t.d.
hlutabréfasjóðir. Íslenskir lögaðilar, t.d. D, E, F
og G, sem eiga hlutafé eða stofnfé í B og C,
verða að uppfylla það skilyrði að vera undir
íslenskum yfirráðum.
Í skilgreiningunni á íslenskum lögaðila
undir íslenskum yfirráðum felst að erlendir
aðilar mega ekki eiga meira en 49%
hlutafjár eða stofnfjár í D, E, F og G. Þessir
lögaðilar verða þó jafnframt að uppfylla það
skilyrði að íslenskir aðilar fari þar með meiri-
hluta atkvæðisréttar og hafi þar raunveruleg
yfirráð.
Eignarhald Storms Seafood er hins vegar
einfaldara, bara A og B, sem eru Skiphóll
og Austmenn sem eiga eitt félag (D) Storm
Seafood (sjá skýringarmynd).
Kadoorie (HK)
Steindór
Sigurgeirsson
Austmenn ehf.
Skiphóll ehf. Stormur Seafood ehf.
25%
25%
75%
75%
100%
Erlend fjárfesting í lögum nr. 46/1996
134.999
124.999
15.6" HD LED Diamond
Intel Core i3-330M 2.13GHz
4GB DDR3 1066MHz
512MB INTEL HD skjástýring
320GB SATA 5400RPM
Windows 7 Home Premium 64-bit
Innbyggð 1.3MP HD
1280x1024
AS5551-2805
AMD Athlon II Dual-core P320
4GB(2x 2GB)DDR3-1066
15.6" WXGA (1366 x 768)
CineCrystal TFT LCD
ATI Radeon HD4250 skjástýring
500GB 5400rpm SATA diskur
Draft-N Wireless LAN
Vefmyndavél, kortalesari,hdmi
Rafhlaða 2,5klst
Windows 7 Home Premium 64-bit
99.999
Acer S5534-1121
AMD Athlon 64 X2 Dual-Core L310
4GB(2x 2GB) DDR2-667
15.6" WXGA (1366x768) Acer
CineCrystal TFT LCD
ATI Radeon HD 3200 skjástýring
320GB SATA 5400rpm diskur
Draft-N Wireless LAN
Vefmyndavél, kortalesari
Rafhlaða 3,5klst
Windows 7 Home Premium
79.999
Acer AS5532-5509
AMD Athlon 64 TF-36
2GB DDR2-667
15.6" WXGA (1366x768)
high-brightness TFT LCD
ATI Radeon HD 3200 skjástýring
320GB SATA diskur
Draft-N Wireless LAN
Vefmyndavél, kortalesari
Rafhlaða 2,5klst
Windows 7 Home Premium
Allir se
m kaup
a
fartölv
u hjá B
T í ágú
st og
septem
ber far
a í pot
t og
verður
einn h
eppinn
dregin
n út 1.
októb
er og
fær ha
nn fart
ölvuna
sína
endurg
reidda
!
Vaxtalausar raðgreiðslur
mán9 aða
til allt a
il ll ð
Vax
tala
usar
rað
grei
ðslu
r
m n
aá
ða
9
ti
l all
t að
i
l ll
Vaxtalausar raðgreiðslur
aða
mán9
til allt að
il ll
Vaxtalausar raðgreiðslur
amánað9
til allt að il ll