Fréttablaðið - 11.08.2010, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 11. ágúst 2010 9
DÝRALÍF Hafið er viðamikið verkefni í fjórtán
löndum þar sem leitast verður við að finna
tegundir froskdýra sem gætu verið, eða eru, í
útrýmingarhættu. Verkefnið á að standa yfir í
rúma tvo mánuði.
Froskdýr eru þau dýr sem eru í mestri
útrýmingarhættu, en einn þriðji tegunda frosk-
dýra á á hættu aðdeyja út. Ástæður útrým-
ingar froskdýra eru að miklu leyti komnar til
vegna eyðingar á kjörlendi þeirra, með þurrk-
un votlendis og eyðingu skóga. Margar teg-
undir hafa þó einnig orðið að bráð sveppasjúk-
dómi, sem fyrirfinnst í vatni.
Doktor Robin Moore, forgangsmaður verk-
efnisins, telur að þrátt fyrir að tölulegar líkur
séu á útdauða froskdýra, gætu um 100 frosk-
tegundir komið í leitirnar, en doktor Moore
fann fyrir nokkru frosktegund í Ekvador sem
ekki hafði sést í tólf ár. Með verkefninu, sem
aldrei hefur verið unnið áður, verður því hægt
að áætla betur hversu margar frosktegundir
eru í útrýmingarhættu, eða eru útdauðar. Með
þessari vitneskju verður því einnig auðveld-
ara að koma í veg fyrir að hinar ýmsu frosk-
tegundir verði í útrýmingarhættu, jafnframt
verður leitast við að vernda þær tegundir sem
eru nú þegar í hættu. - jbá
GROWLING GRASS-FROSKUR Froskar af
ýmsum tegundum eru í einna mestri
útrýmingarhættu af dýrum heims.
Froskaleiðangur í fjórtán löndum – sá fyrsti sinnar tegundar:
Frosktegundir í mestri útrýmingarhættu
STJÓRNSÝSLA Jón Bjarnason land-
búnaðarráðherra hyggst setja
reglugerð um merkingu erfða-
breyttra matvæla. Að því er fram
kemur í tilkynningu frá land-
búnaðarráðuneytinu mun reglu-
gerðin kveða á um skyldu til að
merkja sérstaklega allar matvör-
ur sem seldar eru hér á landi og
innihalda hráefni úr erfðabreytt-
um lífverum.
Stuðst verður við samsvar-
andi reglur Norðmanna og mun
ný reglugerð taka gildi fljót-
lega, með nauðsynlegum aðlög-
unartíma fyrir framleiðendur og
söluaðila. Þetta er í samræmi við
samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar, en þar er því lýst yfir
að tryggja skuli „að erfðabreytt
matvæli séu merkt þannig að
neytendum sé ljóst innihald mat-
væla við innkaup.“
Nýjar reglur um matvæli:
Skylt verður að
merkja erfða-
breytt matvæli
LANDBÚNAÐUR Landssamtök sauð-
fjárbænda verða með sjö kynn-
ingarfundi víðs vegar um landið í
næstu viku.
Á vef samtakanna, saudfe.is,
segir að á fundunum verði fjallað
um möguleika bænda til að auka
tekjur sínar. Einnig verður rætt
um það hvaða áherslur í ræktun-
arstarfi og meðhöndlun lamba á
haustin geta haft á búreksturinn.
Á fundunum verður enn fremur
fjallað um störf samtakanna, við-
miðunarverð þeirra á sauðfjáraf-
urðum og stöðuna á mörkuðum.
Fyrsti fundurinn verður á sveita-
hótelinu Hraunsnefi í Borgarfirði
klukkan tólf á mánudaginn. - th
Sauðfjárbændur funda:
Ræða leiðir til
að auka tekjur
LÖGREGLUMÁL Tólf ökumenn voru
teknir fyrir ölvunarakstur og
fimm fyrir akstur undir áhrifum
fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu
um síðustu helgi.
Átta karlar og fjórar konur
voru tekin fyrir ölvunarakstur,
flest á sunnudag. Þrír ökumann-
anna höfðu þegar verið sviptir
ökuleyfi. Einn þeirra sem óku
undir áhrifum fíkniefna hafði
þegar verið sviptur ökuleyfi
og var með barn sitt í bílnum.
Annar ökumaður var einnig án
ökuleyfis. - þeb
Ökumenn teknir um helgina:
Undir áhrifum
með barn í bíl
LÖGREGLAN Flestir voru teknir í Reykja-
vík en einnig þrír í Kópavogi og einn í
Hafnarfirði.
FR
ÉT
TA
B
LA
IÐ
/A
P
VESTFIRÐIR Fornleifarannsóknir á
Strákatanga við Steingrímsfjörð
hafa haldið áfram í sumar.
Búið er að fletta ofan af kumli
úr heiðni sem þar fannst síð-
asta sumar. Á vefnum strandir.
is er greint frá því að þar virðist
vera hleðsla með bátslagi utan um
kumlið með þremur hólfum.
Það eru Strandagaldur og Nátt-
úrustofa Vestfjarða sem unnið hafa
að rannsóknunum. Auk kumlsins,
sem er frá landnámstímanum, hafa
fundist þar ummerki eftir erlenda
hvalveiðimenn. - th
Fornminjar á Strákatanga:
Kuml úr heiðni
og hvalveiðistöð
Lán til góðra verka
Til 1. desember verður boðið upp á allt að 2 milljóna
króna óverðtryggt lán á 5,80% vöxtum til 5 ára. Lánið er
veitt gegn framvísun reikninga fyrir vöru- og þjón ustu-
kaupum sem tengjast framkvæmdunum.
- 5,80% óverðtryggðir vextir
- Allt að 2 milljóna króna lán með veði í fasteign
eða 1 milljón án veðs
- Engin lántökugjöld
- Umsóknarfrestur er til 1. desember
Framkvæmdalán
Í boði eru verðtryggð eða óverðtryggð lán með breyti-
legum vöxtum á sömu kjörum og bjóðast við kaup á
fasteign. Lánað er til endurbóta innan- og utanhúss,
t.d. endurnýjunar á þaki, lögnum eða innréttingum, til
lóðaframkvæmda, hellulagningar eða smíði sólpalla.
- Vextir ákvarðast af hlutfalli veðsetningar
- Lágmarkslánsfjárhæð er 500.000 krónur
- Lánstími til allt að 30 ára
- Engin lántökugjöld til 1. desember
LÁN | landsbankinn.is | 410 4000
N
B
I
h
f.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
0
0
5
Hagstæð lán til
framkvæmda
Landsbankinn leggur sitt af mörkum til hvatningarátaksins Allir vinna og býður viðskiptavinum
hagstæð lán til framkvæmda og endurbóta á íbúðarhúsnæði. Engin lántökugjöld eru tekin
til 1. desember.