Fréttablaðið - 18.08.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ironman er 3,8 kílómetra sund,
180 kílómetra hjól og svo hlaupum
við 42,2 kílómetra,“ segir Hálfdán
Freyr Örnólfsson rafvirki, sem
var að koma frá Kaupmannahöfn
þar sem hann keppti í Ironman um
helgina.
Hálfdán segist hafa tekið ákvörð-
unina um að taka þátt í keppninni
í desember. „Frændi minn plataði
frænku mína til að taka þátt með
sér og þegar ég vissi að þau ætluðu
bæði gat ég eiginlega ekki annað
en tekið áskoruninni líka.“
Þau þrjú settu sér strax það
markmið að klára keppnina þó
að þau hefðu einungis átta mán-
uði til þess að undirbúa sig. „Ég
hef kennt þolfimi í Hress í Hafn-
arfirði, það er svona minn grunn-
ur og svo hef ég farið í sund. Við
æfðum mjög mikið saman en við
vorum með svipaðan bakgrunn,
hvorki búin að hjóla svo mikið né
hlaupa. Ég þurfti minna að spá í
sundið en flestir þurfa að leggja
áherslu á það. Við vorum með eina
til tvær æfingar á dag fram á vor,
þá voru nánast alltaf tvær æfing-
ar á virkum dögum og allt upp í
sjö, átta tíma æfingar á laugardög-
um og þriggja til fjögurra á sunnu-
dögum.“
Keppnin sjálf fór fram á sunnu-
daginn síðasta og var Hálfdán
mjög ánægður með árangurinn.
„Mér gekk alveg fáránlega vel, ég
var á rétt rúmlega tólf tímum með
þetta. Frænka mín kom svo aðeins
seinna en frændi minn eyðilagði
dekk og þurfti að hætta keppni,
þannig að hann heltist úr lestinni.
Keppnin fór þannig fram að við
byrjuðum á að synda í svona lóni
og það var bara tekinn hringur
þar. Svo hjóluðum við upp í sveit
og tókum tvo hringi þar og loks
hlupum við með strandlengjunni
þrjár umferðir áður en við komum
í mark.“
Hálfdán segist bara vera alveg
í skýjunum með að hafa lokið
keppninni. „Það var bara eitthvað
sem sagði mér að ég gæti þetta.
Þetta náttúrulega er svolítið meira
en meðaljón ætti að hugsa sér að
geta gert en það er allt hægt ef við
viljum það. Ég veit ekki hvað ég
geri næst. Ætli ég byrji ekki bara
á að slaka á og einbeita mér að ein-
hverju öðru en ég væri alveg til í
að takast á við eitthvað þessu líkt
aftur. Ég er opinn fyrir nýjum
áskorunum og fyrst ég gat þetta
held ég að það sé voða fátt sem
stoppar mig.“ emilia@frettabladid.is
Voða fátt sem stoppar mig
Hálfdán Freyr Örnólfsson kom heim í gær frá Kaupmannahöfn þar sem hann keppti í Ironman um helg-
ina. Hann var himinlifandi yfir árangrinum og útilokar ekki að hann takist á við eitthvað svipað síðar.
Hálfdán var ekki nema rétt rúma 12 tíma að synda 3,8 kílómetra, hjóla 180 kílómetra og hlaupa 42,2 kílómetra. MYND/ÚR EINKASAFNI
KRAMHÚSIÐ býður upp á ýmis námskeið fyrir börn frá þriggja
ára aldri og unglinga. Meðal þess sem hefur verið vinsælt í Kram-
húsinu eru breikdansnámskeið.
Bæjarlind 6 - Eddufelli 2
Sími 554-7030 Sími 557-1730
www.rita.is
Kíkið á heimasíðuna okkar www.rita.is
Langerma viscose bolur
Verð 2.900 kr. - fl eiri litir
Leggings - 7/8 lengd - viscose
Litur; svart og hvítt. Verð 1.990 kr.
Gallapils á 5.900 kr.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari
ÚTSÖLULOK
Opið mánud. – föstud.
frá kl 11 – 18
Lokað á laugardögum
40%50%
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
AÐEINS 3 DAGAR EFTIR
2 fyrir 1 af öllum jökkum
2 fyrir 1 af öllum peysum
2 fyrir 1 af öllum buxum
2 fyrir 1 af öllum kjólum
2 fyrir 1 af öllum vestum
2 fyrir 1 af öllum bolum
2 fyrir 1 af öllum skóm.