Fréttablaðið - 18.08.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 18.08.2010, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 18. ágúst 2010 3 ATH – NÝJA VARAN STREYMIR INN – SAMA GÓÐA VERÐIÐ teg. SARA - virkilega góðar í stærðum S,M,L,XL á kr. 2.990,- Laugavegi 178 - Sími: 551 2070 Sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, Lokað á laugardögum í sumar Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Vertu vinur teg. MAJA - glæsilegar blúndubuxur í stærðum S,M,L,XL á kr. 2.990,- teg. NELA - mjög fl ottar í stærðum S,M,L,XL á kr. 2.990,- 1.990 • 3.990 • 4.990 AÐEINS ÞRJÚ VERÐ Í BÚÐINNI 50—70% AFSLÁTTUR NÝ SENDING AF SKOKKUM BEINT Á ÚTSÖLUNA Sími 534 0073 Erum með opið á lau. kl. 11—16 Frá bænum Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði er boðið upp á svokallaðan þúfnagang sem eru gönguferðir upp að Níphólstjörn sem er fyrir ofan bæinn. Þátttak- endur ganga á sauðskinnsskóm og hafa með sér nesti í mal. Hugmyndina að þúfnagöngu á sauð- skinnsskóm eiga þær systur Laufey, Kristjana og Halldóra Skúladætur frá Stóru-Tjörnum í Ljósavatns- skarði en þær hafa saumað yfir þrjátíu pör af sauðskinnsskóm í ýmsum stærðum. „Við höfum farið nokkrar kynn- ingargöngur í sumar og svo nokkr- ar alvöru sem hafa tekist mjög vel,“ segir Laufey. „Það kemur í ljós að það er ekki erfitt að ganga á þess- um skóm heldur bara skemmtileg upplifun og fólk er mjög ánægt með ferðirnar.“ Gangan tekur um tvo tíma, áð er á leiðinni og borðað þjóðlegt nesti svo sem flatbrauð með silungi, soðið brauð, hangikjöt og ástarpungar sem göngufólk ber í mal á bakinu. Laufey segir að gönguferðunum verði haldið áfram fram á haustið eftir veðri en ekki sé gott að ganga á skinnskónum í blautu. Á döfinni eru berjatínsluferðir og einnig geta skólar bókað styttri ferðir fyrir skólakrakka. Næsta sumar verður svo farið á fullt fyrir alvöru. „Við saumum í allan vetur til að eiga nóg af skópörum fyrir næsta sumar,“ segir Laufey en þær syst- urnar eru einnig með heimasíðu í smíðum kringum þúfnaganginn sem fer í loftið á næstunni. Þang- að til geta áhugasamir skráð sig í göngurnar með því að hringja í Stóru-Tjarnir í síma 464 3327. - rat Þúfnagangur á sauðskinns- skóm með þjóðlegt nesti Laufey Skúladóttir ásamt göngugörpum í þúfnagangi á sauðskinnsskóm. MYND/JÓNAS REYNIR HELGASON „Þarna voru verkfræðinemar frá 23 löndum samankomnir, á þriðja þúsund talsins og allir snillingar. Þeir voru að sýna bíla sem þeir höfðu sjálfir hannað og fram- leitt og voru auðvitað stoltir af. Keppnin var haldin á Silverstone- kappakstursbrautinni, í nágrenni London, þar sem enska Grand Prix-keppnin er haldin og marg- ar gamlar kempur úr þeim heimi voru að skoða bílana. Seinni nótt- ina af tveimur sem við Íslending- arnir gistum í ferðinni vorum við á tjaldstæði með nemendunum og þar var þvílík stemning. Liðin voru með samkomutjöld, allir á röltinu á milli og mikið spjall í gangi á ótal tungumálum.“ Þannig lýsir Arnar Freyr Lár- usson upplifun sinni af Form- ula Student-keppninni en hann er upphafsmaður að því að Háskóli Íslands tekur þátt í keppninni á næsta ári. Því fór hann þangað nú í sumar ásamt rafmagnsverk- fræðinemanum Andrési Gunnars- syni, Helga Þór Ingasyni, dósent í véla- og iðnaðarverkfræði við HÍ, og Stuart Maxwell, fulltrúa keppn- innar hér á landi. Arnar Freyr er búinn með tvö ár í verkfræðideild HÍ og sérgreinin er vélaverkfræði. Eitt ár er eftir í BS-gráðuna. Það ár ætlar hann meðal annars að nota til að smíða kappakstursbíl ásamt fleirum úr deildinni. „Ég hef verið að undir- búa þetta í ár og hvetja fólk til að taka þátt,“ lýsir hann. „Við erum 25 núna sem erum komin á blað en sú tala á eflaust eftir að breytast.“ Arnar segir keppt í flokki bens- ínbíla og rafmagnsbíla í Form- ula Student og HÍ verði með raf- magnsbíl. „Við erum byrjuð að hanna og pæla í kerfunum sem síðan verða sett saman í einn bíl. Þetta er mikil þróunarvinna og allt verður að hanna innan ákveðinna skorða. Allar teikningar þurfa að vera til staðar þegar við kynnum bílinn og við verðum að sýna fram á þreytuþol ákveðinna hluta út frá tölvuprófunum. Mörg lið fá ekki að keppa því þau standast ekki örygg- iskröfur.“ Formula Student-keppnin byrj- aði í Bandaríkjunum á áttunda ára- tugnum og hefur þróast í að verða alþjóðleg að sögn Arnars Freys. „Við förum til Englands aftur,“ segir hann. „Það er ofskráning í þessa keppni en við fengum að fara fremst í röðina.“ gun@frettabladid.is Fór á keppni í hönnun og smíði kappakstursbíla Verkfræðineminn Arnar Freyr Lárusson fór til Englands nýlega að fylgjast með keppninni Formula Stud ent þar sem lið frá tækniháskólum úr ýmsum heimshornum reyndu kappakstursbíla úr eigin smiðju. Íslenska liðið sem fór að kynna sér keppnina: Arnar Freyr, Andrés Gunnarsson, Helgi Þór Ingason og Stuart Maxwell. MYND/ÚR EINKASAFNI „Það var þvílík stemning. Liðin með samkomutjöld, allir á röltinu á milli og mikið spjall í gangi á ótal tungumálum,“ segir Arnar Freyr sem er nýkominn af Formula Student. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Tvær gönguferðir verða farnar um næstu helgi á vegum Ferða- félags Akureyrar. Gengið verður á Kaldbak og Skersgnípu og Hreppsendasúlur undir farar- stjórn. Sex tinda ferð verður farin á Kald- bak og Skersgnípu, laugardag- inn 21. ágúst næstkomandi. Geng- ið verður upp með Grenjárgili og hefðbundna leið upp Kaldbak. Þaðan verður ferðinni heitið norð- ur, komið við á Útburðarskála- hnjúki, ónefndum tindi, Svínár- hnjúki, Þernu og Skersgnípu. Þá liggur leiðin niður Ausugil að Látra- strönd en alls er leiðin um 25 kíló- metra löng og hentar vönu göngu- fólki og lausu við lofthræðslu. Hreppsendasúlur verða gengn- ar sunnudaginn 22. ágúst og lagt á fjallið vestan við neyðarskýlið á Lágheiði. Gengið upp á súlurnar þaðan sem útsýni er til allra átta. Sama leið er gengin til baka og er þessi ganga við hæfi flestra. Fararstjórar í göngunum verða Friðfinnur Gísli Skúlason og Gunn- ar Halldórsson en nánari upplýs- ingar um verð og tímasetningar er að finna á heimasíðu ferðafélags- ins, www.ffa.is. Sex tinda ganga Ferðafélag Akureyrar stendur fyrir skemmtilegri göngu um helgina.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.