Fréttablaðið - 31.08.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 31.08.2010, Blaðsíða 2
2 31. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við UMFERÐ Umferðarljós á gatna- mótum Miklubrautar og Grens- ásvegar verða óvirk frá klukk- an tíu í dag og í um klukkustund meðan á endurbótum stendur. Á meðan verður umferðarstjórn í höndum lögreglu. Hraði við gatnamótin verð- ur þá takmarkaður við 30 kíló- metra á klukkustund, auk þess sem einungis verður hægt að beygja til hægri af Grensásvegi inn á Miklubraut. Hvorki verður hægt að aka þvert yfir Miklu- braut, né beygja til vinstri. Í tilkynningu frá Reykjavíkur- borg eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða hraðatak- markanir. - sh Ljós stórra gatnamóta óvirk: Biðja ökumenn að sýna aðgát LÖGREGLUMÁL Sakborningur í morðmálinu í Hafnarfirði verður tekinn til yfirheyrslu síðar í þessari viku, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns á höfuð- borgarsvæðinu. Hinn grunaði situr í gæslu- varðhaldi og einangrun á Litla-Hrauni. Nokkrar sendingar lífsýna hafa verið sendar til rannsóknar í Svíþjóð, sú síðasta í gærmorgun. Um er að ræða sýni af morð- vettvangi og af þeim sem hafa verið hand- teknir vegna málsins. Vonast er til að fyrstu niðurstöður rannsókna berist í þessari viku eða í byrjun þeirrar næstu. Meðal gagna sem lögregla byggir á er far eftir skó í eigu sakborningsins sem fannst á morðvettvangi. Skófarið virðist passa við blóðugt skó far sem fannst á heimili Hannesar heitins Helgasonar eftir ódæðið. Þá fannst blóð á skóm sakborningsins, sem reynt hafði verið að þvo af. Þegar lögregla handtók sakborninginn síð- astliðinn fimmtudag, var það gert á grunni nýrra gagna í málinu sem studdu grun um að hann ætti aðild að morðinu á Hannesi. Í kjölfar handtökunnar nú var gerð ítarleg húsleit á heimili mannsins og hald lagt á til- tekna muni sem þar var að finna. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að unnusta Hannesar hafi gist á heimili sak- borningsins nóttina örlagaríku. - jss Lífsýni úr rannsókninni á morði Hannesar Þórs Helgasonar síðast send í greiningu til Svíþjóðar í gærmorgun: Grunaður morðingi verður brátt yfirheyrður VETTVANGUR Mikill fjöldi lífsýna hefur verið tekinn á vettvangi morðsins. Lárus, eruð þið ekki á stór- græða á lauginni og syndið í peningum? „Við troðum marvaðann í peninga- málum en syndum í hamingju og gleði.“ Lárus Á. Hannesson er forseti bæjar- stjórnar á Stykkishólmi. Þar er sundlaugin svo vinsæl að stundum þarf að hleypa inn í hollum. Bílþjófar handteknir Fimm manns voru handteknir síðdegis í gær í nokkuð umfangs- mikilli lögregluaðgerð, eftir að sást til stolinnar bifreiðar á Bústaðavegi. Í bílnum reyndust vera fimm tæplega tvítug ungmenni og því þurfti að kalla til nokkra lögreglubíla til að ferja fólkið á lögreglustöð. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. LÖGREGLUFRÉTTIR ORKUMÁL Katrín Júlíusdóttir iðn- aðarráðherra fundaði í gær um stöðu álversuppbyggingarinnar í Helguvík með fulltrúum Norður- áls, orkufyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Þar krafðist ráð- herra útskýringa á því hvað það væri sem tefði verkefnið. Óvissan um málið væri óþolandi fyrir þá sem byggja svæðið. Hart var lagt að málsaðilum, Magma, HS ork u og Norðuráli, að reyna að ná sáttum í málinu sem allra fyrst. Stefnt er að því að hópurinn fundi aftur eftir um mánuð. Unnið verður að lausn málsins í millitíð- inni. - sh Ræða óvissu um Helguvík: Funda aftur eftir mánuð NEYTENDUR Ferðalangur sem keypti pakkaferð til Berlínar í apríl í vor á að fá alla ferðina endurgreidda en ekki aðeins flugið eins og Expressferðir vildu. Þetta er nið- urstaða Neytendastofu. Lilja Hilmarsdóttir, rekstrar- stjóri hjá Expressferðum, sem er í eigu Iceland Express, segir ekki tímabært að tjá sig um niðurstöðu Neytendastofu. Farið verði yfir málið með lögfræðingum í dag. Umrædd ferð átti að vera til Berlínar 16. apríl. Þar var ætlunin að gista á hóteli í þrjár nætur. Lilja segir að allt fram á síðustu stundu hafi verið vonast til að hægt yrði að lenda í Berlín. Reyndin hafi þó orðið sú að lokað var fyrir flugum- ferð í Berlín og úti um allt í Evr- ópu þennan dag. Expressferðir buðu farþegunum að fá flughlutann endurgreiddan eða að fá sams konar ferð og greiða 25 þús- und krónur til viðbótar. Einn farþeginn sætti sig við hvorug- an kostinn og leitaði til Neyt- endasamtak- anna sem kærðu málið til Neyt- endastofu. Að sögn Lilju kostaði umrædd ferð um 83 þúsund krónur. Um helm- ingurinn hafi verið vegna gisting- arinnar. „Við reyndum að tala við hótel- ið en þeir bentu á að við værum með 34 herbergi sem þeir gætu ekki selt og spurðu hvernig okkur dytti þá í hug að við fengjum end- urgreitt. Þannig að við sátum uppi með allan kostnað við ferðina,“ útskýrir Lilja sem kveður lang- flesta viðskiptavinina hafa verið sátta við það hvernig Expressferð- ir tóku á málinu. „Fólk skildi þetta mjög vel.“ Þetta var eina ferðin sem Expressferðir þurftu að aflýsa vegna gossins en aðrar ferða- skrifstofur og flugfélög hérlend- is þurftu vitanlega að fella niður margar ferðir. Lilja kveður um algerlega einstakt mál að ræða. Búast megi við að endanleg nið- urstaða þess verði fordæmisgef- andi. „Spurningin er hvort allur kostn- aður eigi eingöngu að falla á ferða- skrifstofuna eða flugfélögin,“ segir hún. Í umfjöllun Neytenda- stofu kemur fram það sjónarmið Expressferða að þar sem fluginu hafi verið aflýst vegna ófyrirsjáan- legra aðstæðna – svokallaðs „force majeure“ bæri ferðaskrifstofunni ekki að endurgreiða ferðina alla. Var þar meðal annars vísað í grein- argerð laga um alferðir. Neytendastofa segir hins vegar misræmi milli greinargerðarinnar og lagatextans sjálfs sem sé skýr um þetta atriði. Endurgreiða beri slík- ar „alferðir“ að fullu óháð því hvers vegna þeim er aflýst. Á hinn bóginn eigi viðskiptavinir ekki rétt á skaða- bótum fyrir aukaútgjöld tengd ferð- inni ef aflýst er vegna ófyrirsján- legra aðstæðna. gar@frettabladid.is Endurgreiði ferð sem aflýst var í eldgosinu Neytendastofa segir að Expressferðum beri að endurgreiða gistingu en ekki aðeins flug í pakkaferð til Berlínar sem féll niður vegna gossins í Eyjafjallajökli. Aflýst var á síðustu stundu og hótelið neitaði að endurgreiða Expressferðum. BERLÍN Aflýsa þurfti flugi Expressferða til Berlínar hinn 16. apríl því flugvöllurinn var lokaður vegna gossins í Evrópu. LILJA HILMARSDÓTTIR […] við sátum uppi með allan kostnað við ferðina. LILJA HILMARSDÓTTIR REKSTRARSTJÓRI HJÁ EXPRESSFERÐUM ORKUMÁL Aldrei kom til greina af hálfu bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að leita til eftirlitsnefndar með fjár- málum sveitarfélaga vegna bágrar fjárhagsstöðu bæj- arins. Þetta segir bæjarstjórinn Árni Sigfússon. Reykjanesbær er í vanskilum með erlent lán upp á 1,8 milljarða króna en lánið féll í gjalddaga í byrjun ágúst. Morgunblaðið greindi frá þessu í gær. Eftirlits- nefnd með fjármálum sveitarfélaga hafði sent bænum viðvaranir vegna slæmrar fjárhagsstöðu en nefndin vissi hins vegar ekki um vanskilin. „Það vissi eftirlitsnefndin ekki um og það kom okkur mjög á óvart,“ sagði Kristján Möller samgönguráð- herra við fréttastofu Stöðvar 2 í gær. Ráðherra segir að ráðuneytið hafi engar heimildir til að grípa inn í að eigin frumkvæði. „Samkvæmt lögum og reglugerðum er það þannig. Sjálfstæði sveitarfélaga er það mikið.“ Í sveitarstjórnarlögum segir að bæjarstjórn eigi að tilkynna það til eftirlitsnefndar sjái hún fram á van- skil. „Það hefur nú ekki komið til greina að leita til eft- irlitsnefndar um þetta mál,“ sagði Árni Sigfússon, bæj- arstjóri Reykjanesbæjar, við Stöð 2. Árni segist hafa vonað að það tækist að endurfjármagna lánið og ekki sé útilokað að það takist að semja við lánveitandann. Í fjárhagsáætluninni var gert ráð fyrir 700 milljóna tekjum af álveri í Helguvík, en mikil óvissa ríkir um það verkefni. Árni segir að nauðsynlegt hafi verið að gera ráð fyrir tekjunum til að sýna fram á trú á verk- efninu. - smog Samgönguráðuneytið getur ekki gripið inn í fjárhagsmálefni Reykjanesbæjar: Aldrei litið til eftirlitsnefndarinnar BRATTUR BÆJARSTJÓRI Árni trúir því að bærinn muni rétta úr kútnum þegar fjárfestingaverkefni verða að veruleika. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA NEYTENDAMÁL Stjórn BSRB mót- mælir harðlega umfangsmiklum hækkunum á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt ályktun stjórnar BRSB. Þar segir að hækkanirnar hafi áhrif til hækkunar vísitölu og þar með talið vísitölutengdra lána og koma því almenningi sérstaklega illa. Með þeim veikir stjórn OR þá tilraun til stöðugleika sem reynt hefur verið að koma á í samfélag- inu og býður þeirri hættu heim að aðrir fylgi í kjölfarið með gjald- skrárhækkanir að mati stjórnar BSRB. BSRB mótmælir hækkun OR: Kemur illa við almenning TRÚMÁL „Það var gott að hitta konurnar og heyra þetta frá þeim og vonandi fyrir þær að heyra hvernig okkur líður,“ segir Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfirði. Tugir presta hittu þrjá konur sem Ólafur Skúlason biskup beitti kynferðisofbeldi í Vídal- ínskirkju í Garðabæ seinni- partinn í gær. Boðað hafði verið til fundarins í fyrradag. Sigríður Guðmarsdóttir prest- ur segir að það hafi verið erfitt að hlusta á konurnar. „Þetta var átakanleg saga. Það var ofboðslega erfitt að hlusta á þær og það voru margir sem voru klökkir og grétu.“ Sigríður segir að prestarn- ir hafi hlýtt þöglir á konurnar, síðan hafi verið umræður á eftir. „Síðan stóðum við upp, hittum hvert annað, föðmuðumst og kysstumst og það voru marg- ir sem sögðu fyrirgefðu,“ segir Sigríður. Fórnarlömb biskups á fundi: Prestar báðust fyrirgefningar SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.