Fréttablaðið - 01.09.2010, Síða 2

Fréttablaðið - 01.09.2010, Síða 2
2 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR SKÓLI Stöðugildum í Álftanesskóla hefur fækkað um átta á síðustu tveimur árum. Nú eru 39 stöðu- gildi í skólanum en voru 47 skóla- árið 2008 til 2009, sem er 20 pró- senta fækkun. Nemendafjöldinn er sá sami, eða um 460 börn. Svein- björn Markús Njálsson skólastjóri segir ástæðuna kröfu um niður- skurð í öllu skólakerfinu. Gjald- þrot sveitarfélagsins bæti hins vegar ekki úr skák. „En þó svo að það hefði ekki orðið gjaldþrota þá hefði samt verið farið í þennan niðurskurð, öll sveitarfélög eru að draga til baka aukafjárveitingar sem þau hafa sett í skólana,“ segir Sveinbjörn. Meðal þess sem fækkun kennara hefur í för með sér er að nemend- ur í 2. bekk eru í tveimur bekkjum í stað þriggja í fyrra. 45 krakkar eru í árgangnum og 22 og 23 því í bekkjunum. Foreldrar í árgang- inum voru mjög ósáttir við þessa breytingu, enda hefur verið venj- an í Álftanesskóla að hafa ekki tvo bekki fyrr en í 3. bekk, nema árgangurinn sé stærri en 50 börn. Fjallað var um áskorun þeirra til skólayfirvalda um að halda bekkj- unum þremur í bæjarstjórn en bæjarstjórn bókaði stuðning við þá ákvörðun skólanefndar að fækka bekkjum. Ingólfur Sveinsson er eitt þeirra foreldra sem voru ósátt við breyt- inguna. „Mér finnst afleitt að hafa svona stóra bekki á meðan börn- in eru enn í öðrum bekk,“ segir Ingólfur sem meðal annars stakk upp á því við foreldra í árgangin- um að þeir myndu sjálfir borga fyrir þriðja kennarann, en sú hugmynd hlaut ekki undirtektir foreldra. Sveinbjörn segir eðlilegt að for- eldrar láti í sér heyra en bendir á að þrátt fyrir fækkun kennara sé meðalstærð bekkja í Álftanesi ekki nema 20 börn. - sbt Foreldrar nemenda í 2. bekk í Álftanesskóla ósáttir við fækkun bekkja: Kennurum fækkar um átta á tveimur árum ÁLFTANESSKÓLI Fækkun bekkja í öðrum bekk hefur valdið óánægju. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í gær fjögurra vikna gæsluvarð- haldsúrskurð héraðsdóms yfir manninum sem grunaður er um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana á heimili hans í Hafnar- firði aðfaranótt 15. ágúst síðast- liðinn. Héraðsdómur úrskurðaði hann daginn eftir í gæsluvarðhald til 24. september. Verjandi mannsins kærði úrskurðinn til Hæstarétt- ar, sem hefur nú staðfest úrskurð héraðsdóms. Rannsókn er enn í fullum gangi, að sögn Friðriks Smára Björgvins- sonar, yfirlögregluþjóns lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. - jss Hæstiréttur staðfesti úrskurð: Grunaður morð- ingi áfram inni MENNINGARMÁL „Það yrði menn- ingarsögulegt slys ef Skáldastígur hyrfi,“ segir Kristinn E. Hrafns- son, myndlistarmaður og eigandi Mjóstrætis 4, sem vill að borgin kaupi fornfrægan göngustíg á lóð hans. Skáldastígur liggur um lóð Krist- ins að hinu sögufræga Unuhúsi í Garðastræti 15 þar sem löngum var afdrep skálda á borð við Hall- dór Laxnes og Þórberg Þórðarson. Húsið þar og lóðina á Gestur Ólafs- son arkitekt. Hann hefur í áratugi reynt að fá borgina til samstarfs um Skáldastíg, meðal annars á árinu 1987 með bréfi til þáverandi borgarstjóra, Davíðs Oddssonar, og eftirmanna hans í ráðhúsinu. „Þetta mál hefur farið marga hringi hjá borginni,“ útskýrir Kristinn, sem sjálfur kom ekki að málinu fyrr en árið 2002 þegar hann eignaðist Mjóstræti 4. Kristinn og Gestur hafa sjálfir annast Skáldastíg og ávallt haldið honum opnum, jafnt fyrir þá sem leið eiga í gegn og þá sem gagngert koma til að skoða stíginn og Unuhús. En þeim finnst ósann- gjarnt að greiða fasteignagjöld af lóðinni undir stígnum. Þvert á móti telja þeir að borgin ætti að kaupa landið undir stígnum eða þá leigja það af þeim. Í augnablikinu er málið á leið til umfjöllunar hjá menningar- og ferðamálaráði borgarinnar eftir að hafa verið tekið fyrir í skipulags- ráði í síðustu viku þar sem lagðar voru fram umsagnir frá Minjasafni Reykjavíkur og skipulags- og bygg- ingarsviði borgarinnar. Niðurstöð- ur þessara tveggja aðila eru ósam- hljóma. Skipulagsráð mælir ekki með því að svo stöddu að eyða fé í að tryggja tilvist Skáldastígs „enda lifir sagan áfram þótt stígurinn hverfi,“ eins og segir í umsögn Ágústar Jónsson- ar skrifstofustjóra. Guðný Gerður Gunnarsdóttir. þjóðháttafræðingur hjá Minjasafni Reykjavíkur, minnir hins vegar á að Reykjavík hafi sótt um útnefn- ingu sem bókmenntaborg UNES- CO. „Hægt er að færa rök fyrir að þar sem stígurinn tengist sögu bókmennta og rithöfunda í borg- innu hafi hann mikið menningar- sögulegt gildi,“ segir Guðný í sinni umsögn. Kristinn E. Hrafnsson kveðst undrandi á því hversu illa gangi hjá borginni að taka ákvörðun. „Það er furðulegt að það skuli ekki vera hægt að taka á svona einföld- um hlutum. Hvernig gengur þá með allt hitt?“ gar@frettabladid.is Eigendur vilja selja borginni Skáldastíg Listamaður og arkitekt sem eiga lóðir undir göngustíg að Unuhúsi vilja að borgin kaupi stíginn. Menningarsögulegt gildi segir Minjasafn. Sagan lifir þótt stígurinn hverfi, segir framkvæmda- og eignasvið og vill ekki eyða fé í málið. SKÁLDASTÍGUR Áratugir hafa liðið án þess að borgaryfirvöld hafi tekið endanlega afstöðu til þess hvaða stöðu Skáldastígur eigi að hafa í skipulagi borgarinnar. Hér er séð frá Unuhúsi og niður stíginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KRISTINN E. HRAFNSSON Upp þetta dimma sund þar lá mín leið mart liðið kvöld og sæi eg ljós, þá var sem vanda og neyð væri nú lyft af heilli öld. HÖFUNDUR HALLDÓR LAXNESS. Laxness um Skáldastíg STJÓRNSÝSLA Kærunefnd útboðs- mála hefur stöðvað gerð samninga við arkitektastofuna sem varð hlut- skörpust í samkeppni um hönnun hjúkrunarheimilis í Fjarðabyggð. Annar þátttakandi í útboðinu kærði niðurstöðuna á þeim grund- velli að einn dómnefndarmanna, Einar Ólafsson, hefði í gegnum sína arkitektastofu áður átt í sam- starfi við vinningshafann. Það var um gerð tillögu sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um leik- skóla í Garðabæ. Kærunefndin segir að verulegur vafi leiki á hæfi Einars og því séu samningar við verðlaunahafana stöðvaðir þar til endan legur botn fáist í málið. - gar Meint vanhæfi í dómnefnd: Starfaði með verðlaunahafa NÁTTÚRA „Það er óvenjulega mikið af reyniberjum í ár eins og af öðrum jarðargróðri. Reyniberin eru stórkostlegt haustskraut en líka góð til átu með réttri meðhöndlun,“ segir Hildur Hákonardóttir, höfundur bókarinnar Ætigarðurinn – handbók grasnytjungs- ins. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að greinar reynitrjánna eru að sligast undan berjum. Svo verður aðeins um stuttan tíma því haustvindar munu senn slíta berjaklasana af trjánum sem verða þá engum til gagns. Margir líta þó ekki við berjunum þar sem þau eru römm og fara ekki vel í maga þess vegna. Hildur segir hins vegar að berin megi nota bæði í hlaup, til víngerðar og einnig í skreytingar. „Það er hægt að vinna á beiskjunni í berjunum með því að láta þau frjósa fyrst í einn sólarhring og liggja síðan í vatni í þrjá sólarhringa. Þá er nauðsynlegt að skipta um vatn oft á dag eða láta renna á þau.“ Hildur segir að frysting sé ævaforn aðferð til að ná remmu og jafnvel eitri úr plöntum. Suður-Ameríku- búar nýttu þessa aðferð til að ná remmu úr villtum kartöflum. Hildur segir að reyniberin gerjist gjarnan á trjánum þegar þau eldast. „Ég hef heyrt að það megi sjá á flugi þrasta á haustin þegar þeir fljúga gjarnan á gluggarúður að þeir séu þrælhífaðir.“ - shá Reynitrén eru að sligast undan berjum eftir einstaka sumarblíðu: Galdurinn liggur í frostinu BRAGÐVONT LOSTÆTI Þeir Hákon og Snorri eru ekki hrifnir af bragðinu af reyniberjunum. Þau eru reyndar óæt fyrr en eftir rétta meðhöndlun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fótbrotinn við Norðlingafljót Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði var kölluð út á tíunda tímanum í gær þegar tilkynning barst um fótbrotinn ferðalang í gljúfri við Norðlingafljót. Sveitarmeðlimir brugðust skjótt við og voru búnir að koma hinum slas- aða í bíl innan við klukkustund síðar. ÖRYGGISMÁL SJÁVARÚTVEGUR Hvalstöðin í Hval- firði tók á móti sinni 109. lang- reyði í gærmorgun, að því er Skessuhorn greinir frá. Það var Hvalur 8 sem þá kom til hafnar. Hvalur 9 kom með tvo hvali í land á sunnudaginn. Í við- tali við Skessuhorn segir Gunn- laugur Fjólar Gunnlaugsson skip- in skiptast á um að koma inn sinn hvern daginn. Veiðarnar gangi eins og í sögu, þrátt fyrir að þoka hafi legið svolítið við ströndina að undanförnu og skipin því þurft að sigla lengra eða allt upp í 200 mílur út. Hvalur hf. hefur leyfi til veiða 150 landreyðar í sumar og önnur 25 dýr frá síðustu vertíð. Góðar horfur eru á að takist að veiða kvótann á þessari vertíð. - shá Hvalveiðarnar í fullum gangi: Langreyðarnar eru orðnar 109 Kristján, er ekki hætta á að þú hlaupir aftur í spik? „Nei. Það þýðir ekkert hangs, ekkert hik, áfram áfram Breiðablik.“ Útvarpsmaðurinn Kristján Ingi Gunnars- son stendur í ströngu þessa dagana. Hann hefur einsett sér að missa 42,2 kíló og hlaupa síðan 42,2 kílómetra maraþon. Hann er harður stuðningsmaður Breiða- bliks og hleypur undir merkjum félagsins. FRÁ HVALFIRÐI Ef allt gengur að óskum nást 150 langreyðar á vertíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 57 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2010 samanbor- ið við 43,1 milljarð á sama tíma- bili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 14 milljarða eða 32,4 prósent á milli ára. Aflaverðmæti botnfisks var í lok maí orðið 43,7 milljarðar og jókst um 29,5 prósent frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 33,8 milljörðum. - shá Afli fyrstu fimm mánuðina: Verðmætið upp um 14 milljarða SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.