Fréttablaðið - 01.09.2010, Síða 12

Fréttablaðið - 01.09.2010, Síða 12
12 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR LÍFEYRISMÁL Miðstjórn Bandalags háskólamanna (BHM) kallar eftir því í ályktun að Framtakssjóð- ur Íslands sýni fram á með óyggj- andi hætti að fjárfestingar sjóðsins fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins og leggst gegn frekari framlögum í sjóðinn. „Við erum að hvetja til þess að hlutirnir séu gegnsæir,“ segir Guð- laug Kristjánsdóttir, formaður BHM. Hún segir að upp hafi komið efasemdir um ákvæði sjóðsins um hlutfall einstakra fjárfestinga af heildarfjárfestingum. Gagnrýnt hefur verið að sjóður- inn hafi samið um kaup á Vestia af Landsbankanum fyrir 19,5 millj- arða þegar sjóðurinn mun hafa um 30 milljarða til að fjárfesta næstu þrjú árin. „Við viljum að þetta sé alveg skýrt og ekki þurfi að vakna spurningar um það, þegar verið er að sýsla með fjármuni úr sjóðum launamanna,“ segir Guðlaug. „Við viljum að það sé sýnt með óyggjandi hætti fram á að fjárfestingarnar fylgi þessum tilgangi og skilmálum.“ Í ályktun miðstjórnar BHM er lagst alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna til Fram- takssjóðsins. Guðlaug segir að með þessu sé ekki verið að leggja til að framlög verði dregin til baka. Hún segir að BHM hafi lagst gegn stofn- un Framtakssjóðsins, og með þessu sé sú andstaða ítrekuð. „Þessi ályktun kemur mjög á óvart, við höfum ekki fengið neina fyrirspurn frá BHM,“ segir Finn- bogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Hann segir erfitt að átta sig á því hvað mið- stjórnin eigi við þegar talað sé um að gegnsæi þurfi að vera hjá sjóðn- um, enda sé þar nú þegar algert gegnsæi í fjárfestingum. Finnbogi segir stjórn Framtaks- sjóðsins taka ákvarðanir í samræmi við skilmála sjóðsins. Fyrirtæki séu ekki keypt nema stjórn sjóðsins telji þau lífvænleg og góða fjárfestingu. Finnbogi segir sjóðinn hafa lagt út 1,5 milljarða í fjárfestinguna í Vestia, um fimm prósent af þeim 30 milljörðum sem sjóðurinn fær frá lífeyrissjóðunum á þremur árum. Hann segir að átján milljarðar króna til viðbótar séu greiddir með hlutabréfum í sjóðnum. Finnbogi segir skýrt að sjóðirnir geti ekki hætt við þessi fjárframlög hvað svo sem miðstjórn BHM álykti. Stjórnin hafi í raun ekki aðkomu að sjóðnum öðruvísi en í gegnum stjórnarmenn í lífeyrissjóðum sinna félagsmanna. Finnbogi segir BHM ekki hafa óskað eftir neinum upplýsingum frá sjóðnum, og því sé einkennilegt að fara fram á með þessum hætti að sjóðurinn sýni fram á að skilmálar sjóðsins séu ekki brotnir. Framtakssjóður Íslands var stofnaður af sextán lífeyrissjóð- um í desember 2009. Sjóðurinn á að fjárfesta í íslenskum fyrirtækj- um sem eiga sér vænlegan rekstrar- grundvöll. brjann@frettabladid.is BHM leggst gegn frekari framlögum í Framtakssjóð HANDSALAÐ Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands (til vinstri), og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, handsöluðu nýverið kaup Framtaks- sjóðsins á Vestia. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SJÓNVÖRP SKOÐUÐ Kaupmáttur launa hefur aukist eftir bankahrunið. Það eykur bjartsýni neytenda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN EFNAHAGSMÁL Væntingavísitala Gallup mælist nú 69,9 stig og hefur hún ekki verið hærri frá bankahruni. Það er ekki þar með sagt að neytendur séu sérlega bjartsýnir enda miðast vísitalan við hundrað stig. Fari hún undir hundrað stig eru fleiri neytend- ur svartsýnir en bjartsýnir. Frá bankahruni hefur vísitalan staðið í kringum fjörutíu stig. Greining Íslandsbanka bendir á að bjartara sé yfir landanum en áður. Það komi ekki á óvart enda bendi margt til þess að botni kreppunnar sé náð. Til betri vegar horfi á vinnumarkaði, verðbólga hafi hjaðnað, krónan styrkst og kaupmáttur aukist. - jab Bjartsýni ekki meiri frá hruni: Horfir til betri vegar frá hruni BHM leggst alfarið gegn frekari framlögum til Framtakssjóðs Íslands. Kallar eftir því að sjóðurinn sýni fram á að tilgangi og skilmálum sjóðsins sé fylgt. Fimm prósent af fé sjóðsins fara í kaupin á Vestia. VIÐSKIPTI „Þeir gerðu verðmat út frá gögnum sem við feng- um í hendur. Aðkoma þeirra var ekki meiri en það,“ segir Finn- bogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, sem fékk ráðgjafafyrirtækið Arctica Fin- ance og fjárfestingarbankann Saga Capital til ráðgjafar um kaup sjóðsins á eignarhaldsfélaginu Vestia fyrir 19,5 milljarða króna á dögunum. Vestia var áður í eigu Lands- bankans. Starfsmenn Arctica Finance störfuðu allir hjá fyrir- tækjaráðgjöf bankans fyrir fall hans haustið 2008. Landsbankinn tók fyrirtækin yfir vegna skulda eigenda og fyrirtækjanna sjálfra við bankann. Finnbogi segir Framtakssjóð- inn hafa vitað að starfsmenn Arctica Finance hafi áður starf- að hjá fyrirtækjaráðgjöf Lands- bankans. Kostur sé að þeir hafi þekkt fyrirtækin áður en þeir gerðu verðmatið. „Þeir eru ekki eitraðir þótt þeir hafi unnið í bankanum,“ segir Finnbogi. Ekki liggur fyrir hvað fyrir- tækin fengu fyrir ráðgjöfina. Finnbogi segir upphæðina ekki hafa verið háa. Arctica Finance var ráðgjafi Orkuveitu Reykjavíkur við sölu á þrjátíu prósenta hlut í HS Orku í fyrra til Magma Energy. Þókn- un fyrirtækisins þá nam 0,85 prósentum af verðmæti samn- ingsins. Sé miðað við sama hlutfall nú má ætla að þóknunin hafi numið tæpum 166 milljónum króna, sem fyrirtækin tvö skiptu á milli sín. - jab Framtakssjóðurinn réði fyrrverandi starfsmenn Landsbankans við kaup á Vestia: Segir ráðgjafana ekki vera eitraða LANDSBANKINN Fyrrverandi starfsmenn Landsbankans voru Framtakssjóðnum innan handar við kaup á yfirteknum eignum bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VITI Í SKUGGA SKIPS Það verður lítið úr þessum snotra vita í Bremerhaven í Þýskalandi þegar skipsferlíkið Atlantic Hotel Sail City siglir fram hjá. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.