Fréttablaðið - 01.09.2010, Side 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
FERÐAFÉLAGIÐ NORÐURSLÓÐ
stendur fyrir göngu laugardaginn 4. septem-
ber, þar sem farið verður um fáfarnar slóðir í
umhverfi Jökulsárgljúfra. Nánar á ganga.is.
„Þetta varð svona hestaferð þar
sem allt var gert annað en að vera á
hestunum,“ segir Hilmar Magnús-
son hlæjandi þegar hann er spurð-
ur út í ferðalag sem hann fór í í
sumar með konu sinni og gömlum
vinahópi úr Fáki.
Hann segir þá hefð hafa skapast
að fara í tvo langa útreiðartúra á
sumri með vinahópum. Annan
á vorin sem börnin eru með í og
hinn seinna að sumrinu, barn-
lausan. „Þetta sumarið ætluðum
við að ríða um Holt, Landsveit og
Rangárvelli, 25 til 35 kílómetra
dagleiðir,“ lýsir Hilmar. „Þegar
til kom voru hrossin ekki í neinni
þjálfun til að fara í langferð þótt
þau væru orðin hraust af pestinni.
Því varð að búa til plan B og nið-
urstaðan varð sú að dvelja bara í
bústað í Klettholti í Holtum. Þar
vorum við svo með hrossin í fimm
daga og fórum í þriggja til tuttugu
kílómetra útreiðartúra.“
Hilmar segir veðrið hafa leikið
við hópinn allan tímann og ferðina
verið vel heppnaða. „Mesta fjörið
var þegar við riðum að Hestheim-
um. Þar var okkur tekið eins og
kóngafólki, hestarnir settir á hús
og gefin tugga meðan við pöntuðum
mat og drykk og skemmtum okkur.
Eitt lag er ávallt sungið svona
fimmtíu sinnum í okkar ferðum,
það er „Ég er kominn heim“ sem
Óðinn Valdimarsson gerði frægt á
sínum tíma. Við tókum það að sjálf-
sögðu fyrir útlendingana. Í fram-
haldinu var efnt til söngkeppni þar
sem lagið María María var sung-
ið á mörgum tungumálum upp úr
sönghefti á staðnum. Að sjálfsögðu
unnum við af því dómararnir voru
okkur hliðhollir.“ gun@frettabladid.is
Tekið eins og kóngum
Margir sem skipulögðu langferðir á hestum í sumar urðu að hætta við vegna flensu sem herjaði á hesta-
stofninn. Hilmar Magnússon flugumferðarstjóri og ferðahópur sem hann er í sá við þeim vanda.
„Eitt lag er ávallt sungið svona fimmtíu sinnum í okkar ferðum, það er Ég er kominn heim,“ segir Hilmar Magnússon.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari