Fréttablaðið - 01.09.2010, Síða 32

Fréttablaðið - 01.09.2010, Síða 32
24 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR menning@frettabladid.is > Ekki missa af … Forsala á tónleika Friðriks Ómars í Hofi, menningar- miðstöð Norðurlands, þar sem hann heiðrar minningu Vilhjálms Vilhjálmssonar, hefst á föstudaginn á vefsíðunni menningarhus.is og í síma 450 1000. Friðrik hefur til full- tingis einvalalið hljóðfæraleik- ara á tónleikunum sem verða laugardaginn 2. október. Við opnun sýningarinnar Að elta fólk og drekka mjólk var kynnt nýtt verkefni á vegum Hafnar- borgar sem ætlað er að gefa sýningarstjórum tækifæri til að koma fram með nýstárlegar sýn- ingar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem hafnfirska listamiðstöðin sendi frá sér. Þar kemur jafnframt fram að sýningarstjórum verði gefinn kostur á að senda inn tillögur að haustsýningu 2011 og er sérstaklega óskað eftir tillögum að samsýningum. Þá er tekið fram að sérstaklega verði hugað að því að veita sýningarstjórum með stuttan feril að baki tækifæri. Frestur til að skila inn tillögum rennur út mánudaginn 1. nóvember á þessu ári. Umsóknar- ferlið er tvískipt og eru þeir sem hafa áhuga á að takast við verkefnið hvattir til að kynna sér það á heimasíðu Hafnarborgar, hafnarborg.is. Annars er rétt að geta þess að sýningin Að elta fólk og drekka mjólk hefur fengið ákaflega góðar viðtökur. Laugardaginn 25. september verður haldið sérstakt málþing í tengslum við sýninguna hjá Þjóðfræðistofu undir yfirskriftinni „Að grína í samfélagið“. Leitað til sýningarstjóra GRÓSKA Mikil gróska er í Hafnarborg um þessar mundir. Hljómsveitin Melchior hefur gefið út tvöföldu plötuna <1980. Um er að ræða endurútgáfu á vínilplötunum Silf- urgrænu ilmvatni og Balapoppi en öll lög þeirra platna voru tekin upp fyrir árið 1980. Sérstaklega má minn- ast lagsins Alan sem naut verulegra vinsælda. Þá mun hljómsveitin halda útgáfutónleika á Café Rosenberg á fimmtudaginn þar sem lög af plötunni verða leikin. Melchior var stofnuð árið 1973. Hún starfaði lengst af á seinni hluta áttunda áratugarins. Á þeim tíma gaf Melchior út eina tveggja laga plötu auk Silfurgræns ilmvatns og Balapopps. Þar til í fyrra hafði sveitin ekki komið saman á almennum tónleikum síðan árið 1978. Þá gaf hún út plötuna Melchior, sem innihélt hið vinsæla lag Fiskisúpa Sigríðar í Fjöruhúsinu. Klukkan 22 Tónleikar á tónleikastaðnum Faktorý, gamla Grand Rokki. Hljómsveitirnar Draumhvörf, Mikado og Two Tickets to Japan stíga á svið. Draum- hvörf leika progressive rokk undir áhrifum frá ýmsum ólíkum tónlistarstefnum, Mikado er progressive rokk- hljómsveit og Two Tickets to Japan spilar framúrstefnu- lega rokktónlist. Frítt er inn á tónleikana. Haustdagskrá sjónvarps- stöðvanna er smám saman að skýrast. Eins og kemur fram á öðrum stað í blaðinu er Spaugstofan gengin til liðs við Stöð 2 en tilkynnt hefur verið um fimm aðrar leiknar þáttaraðir. Stöð 2 verður sem fyrr með flest- ar leiknu þáttaraðirnar. Sjón- varpsstöðin stendur auðvitað frammi fyrir þeim „vanda“ að engin vaktar-sería verður í ár en vinsældir þeirra eru einsdæmi í íslenskri sjónvarpssögu. Spaug- stofan var flokkuð sem leikið efni hjá RÚV og fellur eflaust undir þann flokk hjá Stöð 2 en auk henn- ar má nefna Steindann okkar. Tökur á þeim þætti eiga að hefj- ast á haustmánuðum en þættirn- ir nuta mikilla vinsælda á síðasta tímabili. Þá má ekki gleyma Mér er gamanmál, nýrri sjónvarps- þáttaröð með Frímanni Gunn- arssyni þar sem hann heimsækir grínista á öllum Norðurlöndunum og í Englandi en Gunnar Hans- son verður auðvitað í hlutverki ólíkindatólsins. Ekkert lát verður heldur á hefð- bundnari leiknum þáttaröðum hjá Stöð 2. Hlemma Vídeó er ný þáttaröð með Pétri Jóhanni Sig- fússyni, Ágústu Evu Erlendsdótt- ur og Vigni Rafni Valþórssyni í aðalhlutverki. Tökur á þeim þátt- um eiga að hefjast á allra næstu dögum en hún segir frá ungum manni sem erfir myndbandaleigu. Hann sjálfur gengur þó með þann draum í maganum að verða einkaspæjari. Handritsgerðin er í höndum Sigurjóns Kjartansson- ar, Maríu Reyndal, Ara Eldjárn, Hugleiks Dagssonar og Péturs Jóhanns en leikstjóri er Styrmir Sigurðsson. Pressan II er einnig í farvatninu en fyrri þáttaröðin þótti heppnast með eindæmum vel. Sigurjón Kjartansson situr sveittur við handritsgerðina en líklegt verður að teljast að stór hluti leikhópsins úr fyrstu þátta- röðinni snúi aftur. Tökur eiga að hefjast í kringum áramótin. Skjár einn hyggst endurvekja leikið efni hjá sér eftir nokkurt hlé. Baldvin Z framleiðir nýja gamanþáttaröð undir heitinu Hæ Gosi sem er með bræðrunum Kjartani og Árna Pétri Guðjóns- sonum í aðalhlutverkum. Þætt- irnir voru teknir upp á Akureyri. Sjónvarpsveturinn skýrist FJÖLBREYTT EFNI Fjölbreytt leikið efni verður á dagskrá sjónvarpsstöðvanna í haust. Stöð 2 mun sýna Steindann okkar, Mér er gaman- mál, Hlemma Vídeó, Spaugstofuna og Pressu II. Skjár einn hefur innreið sína í leikna efnið með Hæ Gosa, gamanþáttaröð með Árna Pétri og Kjartani Guðjónssyni í aðalhlut- verkum og RÚV sýnir Tíma nornarinnar, spennuþáttaröð í fjórum hlutum eftir Friðrik Þór Friðriksson, sem byggir á samnefndri skáldsögu Árna Þór- arinssonar. Skemmtiþáttur Góa (RÚV) Logi í beinni (Stöð 2) Fyndnar fjölskyldumyndir (Skjár einn) Ameríski draumurinn (Stöð 2) Nýtt útlit (Skjár einn) Spjallið með Sölva (Skjár einn) Spjallþáttur Þórhalls Gunnarssonar (RÚV) Kiljan (RÚV) Silfur Egils (RÚV) Gettu betur (RÚV) Listinn er ekki tæmandi ANNAÐ ÍSLENSKT EFNI Langt er síðan Skjár einn var með leikið efni, eflaust var það Venni Páer sem hélt þeim fána á lofti, en þessi nýjung stöðvarinnar er mikið fagnaðaraefni. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær mun RÚV sýna nýja sjón- varpsþáttaröð úr smiðju Friðriks Þórs Friðrikssonar sem heitir Tími nornarinnar og er byggð á samnefndri bók Árna Þórarins- sonar. Ekki liggur fyrir hvort aðrar leiknar þáttaraðir eru í undirbúningi en Skaupið verð- ur að sjálfsögðu á sínum stað í leikstjórn Gunnars Björns Guð- mundssonar. freyrgigja@frettabladid.is Tvöfalt frá Melchior MELCHIOR Hljóm- sveitin Melchior hefur gefið út tvöfalda plötu. Kennsla hefst 13. september GIUSEPPE VERDI ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON ÞÓRA EINARSDÓTTIR JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON SESSELJA KRISTJÁNSDÓTTIR BERGÞÓR PÁLSSON HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON LEIKSTJÓRI: STEFÁN BALDURSSON FRUMSÝNING 9. OKTÓBER 2010 RIGOLETTO MIÐASALAN HEFST Í DAG KL. 10 Í SÍMA 511-4200 OG Á WWW.OPERA.IS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.