Fréttablaðið - 01.09.2010, Page 34

Fréttablaðið - 01.09.2010, Page 34
26 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR > LÆTUR GOTT AF SÉR LEIÐA Elin Nordegren situr ekki með hendur í skauti þótt erfiður skiln- aður við Tiger Woods sé nú að baki. Samkvæmt bandarískum fréttavefjum langar hana að nota peningana frá Tiger til að opna mið- stöð fyrir fátæk börn sem þjást af erfiðum geðsjúkdómum. Hótelerfinginn Paris Hilton var handtekin í Las Vegas um helgina eftir að fíkniefni fund- ust í fórum hennar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hilton kemst í kast við lögin því árið 2006 var hún fyrst handtek- in fyrir ölvunarakstur og var svipt ökuréttindum auk þess sem hún fékk 36 mánuði á skil- orði. Í byrjun árs 2007 var Hilt- on aftur handtekin, nú fyrir að aka án réttinda og í febrúar sama ár var stúlkan handtekin fyrir of hraðan akstur og fyrir að aka án ökuréttinda. Í júlí í ár var Hilton svo handtekin á flugvelli á eyjunni Korsíku með eiturlyf í fórum sínum. Lögreglumaðurinn sem handtók Hilton segir hana hafa misst tæpt gramm af kóka- íni úr handtösku sinni. Þegar hann spurði hana út í efnið sagðist Hilton ekki kannast við það. Hilton sagði að task- an tilheyrði vinkonu hennar en viðurkenndi að kreditkort, lyf- seðilsskyld lyf og annað smá- dót sem í töskunni var væru hennar eign, en þvertók fyrir að eiga kókaínið. Sérstakur saksóknari í Las Vegas, David Roger, sem sækir málið, er sá sami og kom O.J. Simpson á bak við lás og slá fyrir stuttu síðan. „Roger hefur litla þolinmæði fyrir fólki sem kemur til Las Vegas og heldur að það komist upp með að brjóta lögin. Það verður mjög erfitt fyrir Hilt- on að losna undan þessu máli, jafnvel með aðstoð lögfræðinga sinna,“ var haft eftir heimild- armanni. Verði Hilton fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér fangelsisvist, en hún sat inni í tvo sólarhringa árið 2007 eftir að hafa ítrekað brotið skilorð sitt. Paris Hilton í vondum málum VANDRÆÐAPÉSI Paris Hilton var enn og aftur handtekin fyrir að hafa eiturlyf í fórum sínum. Verði hún fundin sek á hún yfir höfði sér fangelsisvist. NORDICPHOTOS/GETTY Spaugstofan er komin yfir á Stöð 2 eftir tvo farsæla áratugi í Sjónvarpinu. Þátt- urinn verður með óbreyttu sniði og á sama tíma og áður, eða á laugardags- kvöldum klukkan 19.35. Meðlimir Spaugstofunnar undirrit- uðu tveggja ára samning við Stöð 2 í Þjóðmenningarhúsinu í gær um að ástsælasti sjónvarpsþáttur þjóðarinnar undanfarin tuttugu ár yrði þar á dagskrá frá og með 9. október. Spaugstofan verður áfram á sínum gamalgróna sýningar- tíma, á laugardögum kl. 19.35, og keppir því við nýjan skemmti- þátt Góa sem verður á sama tíma í Sjónvarpinu. „Þetta er eins og þeir segja í fótboltanum, það er enn þá mikill karakter í liðinu og við teljum okkur eiga mikið inni. Leiktíðinni hjá okkur er bara alls ekkert lokið,“ segir Sigurður Sigurjónsson. Vangaveltur höfðu verið uppi um hvort og þá hvar Spaugstof- an yrði á dagskrá í vetur eftir að Sjónvarpið ákvað að nýta sér ekki krafta hennar lengur. Skjár einn var helst nefndur til sögunnar en ekkert varð úr þeim viðræðum. „Þeirra hugmyndir voru um ein- faldari gerð af þætti en við sáum okkar hag bestan í að halda honum óbreyttum með því sniði sem hann var og verður áfram,“ segir Örn Árnason. Kollegi hans, Pálmi Gestsson, bætir við að margir hafi rætt við þá eftir að þeir hættu hjá Sjón- varpinu. „Það var vítamínsprauta að átta sig á því að þegar við geng- um út úr RÚV þá var töluverð ásókn í okkur,“ segir hann. „Það voru aðrir sem vildu gera bíó og alls konar hugmyndir voru í gangi sem fóru ekki lengra,“ segir hann og útilokar ekki að í framtíðinni verði einmitt gerð bíómynd með Spaugstofunni og hugsanlega verði þættirnir einnig gefnir út á mynd- diskum. Pálmi segir þá félaga eld- hressa og móralinn framúrskar- andi góðan sem fyrr. „Það eru til miklu betri grínistar og betri höf- undar og leikarar en við en það er hópurinn sem er galdurinn.“ Randveri Þorlákssyni var á sínum tíma sagt upp hjá Spaug- stofunni vegna niðurskurðar og þótti mörgum það miður. Aðspurð- ur segir Pálmi það ekki á döfinni að taka hann aftur inn í hópinn nú þegar þátturinn er kominn yfir á Stöð 2. „Það hefur einhvern veg- inn ekki komið upp á borðið. Er ekki svo lítið eftir af peningum í þessu þjóðfélagi að það er betra að hafa færri en fleiri fyrir okkur?“ Ari Edwald, forstjóri 365, fagn- ar komu Spaugstofunnar til Stöðv- ar 2. Hann segist lengi hafa haft áhuga á að fá þáttinn yfir á Stöð 2. „Það hefur ekki verið raunhæft fyrr en þessi skrítna staða kom upp að RÚV gaf þá frá sér. Ég reyndar skil ekki þá ákvörðun en ég segi að sjálfsögðu „takk“,“ segir Ari. „Það sem skapar tekjurnar í þessari starfsemi er að hafa efni sem fólk vill horfa á. Ég hef engar áhyggj- ur af því að Spaugstofan muni ekki standa undir sér fjárhagslega.“ Framleiðsla Spaugstofunnar mun fara fram á vegum Sagafilm í gamla sjónvarpshúsinu við Lauga- veg 176 þar sem þættirnir voru ein- mitt framleiddir fyrstu árin sem þeir voru sýndir. Að vissu leyti má því segja að Spaugstofuhringnum hafi verið lokað. freyr@frettabladid.is Spaugstofuhringnum lokað SAMNINGUR Í HÖFN Spaugstofan og Ari Edwald, forstjóri 365, eftir að samningurinn hafði verið undirritaður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hundur plötusnúðsins Samönthu Ronson hefur verið sendur burt af heimili hennar eftir að hann drap hund nágrannans. Ronson á bola- bítinn Cadillac og hefur nú þurft að skilja við hundinn eftir að hann réðst á smáhund í eigu nágrannakonu. Hinn hundurinn, lítill Maltese- hundur, hafði sloppið fram á gang þegar lætin byrjuðu. Hávaðinn vakti athygli nágranna sem þustu þegar fram til að athuga málið en þá hafði Cadillac þegar drepið smáhundinn og síðan bitið eiganda hundsins þegar hann kom askvaðandi. Ronson sendi frá sér tilkynningu í gegnum Twitter-síðu sína stuttu síðar þar sem hún sagð- ist miður sín eftir atvikið. „Ég er afskaplega leið yfir því sem gerðist og ég vildi að ég gæti gefið annað og meira en samúð mína. Því miður eru engin orð sem geta lýst því hversu sorgmædd ég er yfir þessu atviki,“ skrifaði Ronson á Twitter- síðu sína. Beit annan hund til bana MIÐUR SÍN Hundur Samönthu Ronson drap hund nágrannakonu hennar. Hún er miður sín eftir atvikið. NORDICPHOTOS/GETTY folk@frettabladid.is Dæmi um það sem tekið er fyrir í náminu: Lita- og línufræði Tónalgreining Vaxtarbygging Heitt og kalt rými Stórt og lítið rými Uppröðun hluta Stílistun á: Baðherbergi Svefnherbergi Barnaherbergi Eldhúsi Garðhýsi Stofu Og margt fleira. The Academy of Colour and Style býður nú upp á nám í innanhússtílistun. Farið er í helstu grunnþætti í lita- og línufræði. Einnig er kennt að meta stíl út frá persónunni sjálfri. Þá er hún greind út frá vaxtarbyggingu og litgreiningu en þær upplýsingar segja mikið til um hvernig einstaklingur vill hafa sitt nánasta umhverfi eins og liti og stíl. Nemendur vinna svo verkefni í hverri viku og taka þá fyrir stílistun á stofu, baðherbergi, barnaherbergi o.fl. Gestafyrirlesarar koma í tíma og kynna fyrir nemendum ýmis atriði sem koma þeim til góða. Hver önn tekur þrjá mánuði. Kennsla fer fram í Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22. UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101 Anna F. Gunnarsdóttir Stílisti Helga Sigurbjarnadóttir Innanhúsarkitekt Þorsteinn Haraldsson Byggingafræðingur INNANHÚSSTÍLISTANÁM Auglýsingasími Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.