Fréttablaðið - 01.09.2010, Page 42

Fréttablaðið - 01.09.2010, Page 42
34 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI Gylfi Sigurðsson varð dýrasti leikmaður sem Reading hefur selt frá sér í vikunni. Hann kostar Hoffenheim sjö milljónir punda. Félagið seldi Gylfa til að geta borgað skuldir en aðeins um 300 þúsund pund fóru í að kaupa nýja leikmenn. Reading fær tíu prósent af næstu sölu Gylfa líkt og Breiðablik fær fyrir söluna núna. „Ég hef verið ársmiðahafi í 20 ár og stutt klúbbinn en þetta er það síðasta hjá mér. Fyrir mér er Madjeski orðinn leiður á leikfang- inu sínu og hann á að selja klúbb- inn einhverjum sem hefur metn- að,“ sagði einn stuðningsmanna félagsins í gær, bálreiður yfir sölunni á Gylfa. Forráðamenn Hoffenheim eru í skýjunum með kaupin. Þeir sögðu á heimasíðu félagsins að þeir vænt- uðu mikils af Gylfa sem kom til landsins rétt fyrir landsliðsæfingu seinni partinn í gær. Anthony Smith er blaðamaður hjá staðarblaðinu Reading Chron- icle. Hann sagði við Fréttablaðið í gær að stuðningsmenn félagsins væru mjög reiðir út í klúbbinn. „Fjárhagur félagsins hefur farið versnandi. Það fær ekki lengur styrk frá ensku úrvalsdeildinni og það þurfti einfaldlega að selja til að grynnka skuldirnar,“ sagði Smith. „Aðeins 300 þúsund pund- um er eytt í nýja leikmenn. Við fáum Zurab Khizanishvili lánað- an frá Blackburn og svo fáum við Ian Harte,“ segir Smith sem er þó ánægður með að klúbburinn græði vel á leikmanni sem kemur í gegnum unglingalið félagsins. „Hann kostaði okkur ekkert og það var einfaldlega ekki hægt að hafna þessu. Ég talaði við menn hjá klúbbnum í dag [í gær] og þeir staðfestu að hann yrði dýrasti leik- maður í sögu félagsins. Hoffen- heim er toppklúbbur og hann gat augljóslega ekki sagt nei heldur,“ segir blaðamaðurinn. Hann staðfesti einnig að Bolt- on, Fulham og Newcastle hefðu viljað kaupa Gylfa sem skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Reading fyrir stuttu. „Stuðningsmennirnir skilja Gylfa ekki allir, þeir segja að hann hafi ætlað að vera áfram. En það eru bara nokkrir hörundsár- ir, nánast allir samgleðjast honum. Hann er einkar geðþekkur strákur og öllum líkar vel við hann. Stuðn- ingsmennirnir eru brjálaðir út í klúbbinn og segja að það skorti upp á metnað, en í sannleika sagt erum við nokkuð frá því að eiga mögu- leika á því að komast aftur upp í úrvalsdeildina,“ sagði Smith. Stjórnarformaður Reading telur að það hafi verið rétt að gera þenn- an samning fyrir félagið. „Ég er annálaður stuðningsmaður félags- ins og á meðan ég er stjórnarfor- maður geri ég hlutina á réttan hátt. Núna erum við komnir með fjár- málin á réttan kjöl,“ sagði hann og óskaði Gylfa velfarnaðar á nýjum vettvangi. - hþh ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 51 32 1 09 /1 0 ALLT Í RÆKTINA HAUSTVÖRURNAR 2010 HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS FÓTBOLTI Gylfi Sigurðsson sagði bless við Reading á mánudaginn, mörgum stuðningsmönnum félagsins til sárra vonbrigða. „Reading mun alltaf eiga sér- stakan stað í mínu hjarta. Ég fór að heiman þegar ég var fimmtán ára til að koma hingað og það var erfitt að segja bless við alla. En ég held að Reading hafi fengið góða upphæð fyrir mig og allt hjá Reading hefur verið fullkom- ið fyrir mig. Mér líður eins og ég hafi vaxið með klúbbnum og stuðningsmennirnir hafa verið frábærir við mig líka,“ sagði Gylfi. Hann hefur lýst yfir gríðarlegri ánægju með samninginn sinn við Hoffenheim og félagið sjálft. - hþh Gylfi kveður Reading: Erfitt að segja bless við alla NÚMER 11 Gylfi verður í treyju númer 11 hjá Hoffenheim. Hér er hann með treyjuna strax eftir undirskriftina. HOFFENHEIM Stuðningsmenn Reading eru brjálaðir yfir því að félagið hafi selt sinn besta leikmann: Sjö milljónir punda fyrir Gylfa í skuldir FARINN Gylfi er farinn til Þýskalands.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.