Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 Fimmtudagur skoðun 20 Silfur og gamalt gull Finnur Guðni Þórðarson gerir nýjar gersemar úr gömlu gulli allt 4 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Húð, hár og heilsa veðrið í dag 9. september 2010 211. tölublað 10. árgangur 9. september 2010 FIMMTUDAGUR 1 Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE F Á N M ér finnst síðkjóla- og síðpilsatískan skemmtileg og á marga síðkjóla. Þessi er einn af mínum uppáhalds, þunnur og þægilegur,“ segir Silvía Lind Þorvaldsdóttir háskólanemi og starfsmaður við frístundaheimilið Guluhlíð. Við kjólinn notar hún rauða, lágbotna skó og prjónapeysu og segist vera „svolítið pönk“ þegar kemur að fatavali.„Í vinnunni er ég oft í grófum skóm og karlmannsskyrtu eða stórri peysu og leggings. Mér finnst gaman að vera í leðri og gallaefni og stórum fötum. Stórar prjónapeysur eru í sérstöku uppáhaldi á haustin,“ segir Silvía sem sjálf er með íslenska lopapeysu á prjónunum. „Amma hjálpaði mér af stað. Svo sé ég bara til hvenær ég klára “Brúnu hlið Silvía Lind Þorvaldsdóttir blandar saman grófum hlutum og kvenlegum Kosning um bestu tímaritsforsíðu ársins fer nú fram á vefsíðunni Amazon.com/bestcovers. Hægt er að velja bestu forsíðuna í tólf flokkum. Flokkarnir eru til dæmis umdeildar forsíður, vampíruforsíður og lúffengasta síðan. Heppnir kjósendur geta unnið Kindle. Svolítið pönk í fatavali F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0 O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6 Skór & töskur í miklu úrvaliwww.gabor.is Sérverslun meðhúð, hár og heilsaFIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2010 NÝ BRAGÐ TEGUN D SKÓGA RBERJA NÝR JÓGÚRTDRYKKUR  Góður gestur hjá Bó Óperusöngkonan Summer Watson syngur á Íslandi. fólk 36 Aðeins einn sigur Ólafur Jóhannesson hefur ekki náð góðum árangri með íslenska landsliðið. sport 40 Grýla í augum trúaðra Bók Richards Dawkins, Ranghugmyndin um guð, er komin út á íslensku. menning 28 VÆTUSAMT Í dag verða víðast austan 3-8 m/s. Rigning eða skúrir einkum SA-til en úrkomuminna N-lands. Hiti 10-18 stig. VEÐUR 4 15 14 14 15 15 SAMGÖNGUR Flugrekstur þar sem óvopnaðar herþotur eru rekn- ar undir borgaralegu rekstrar- leyfi, eins og fyrirtækið ECA Program hyggst koma á fót hér á landi, þekkist ekki í öðrum lönd- um. Þar hafa hernaðaryfirvöld umsjón með rekstri herþotna án þess að borgaraleg stjórnsýsla komi þar að. Ætli íslensk stjórnvöld að greiða leið ECA Program verða þau að semja við önnur ríki um undanþágur. Eins og fram hefur komið vill ECA Program skrá hér á landi tuttugu óvopnaðar þotur og leigja út til þess að taka að sér hlutverk óvinaflugvéla á heræfingum víða um heim. Nú eru um sjötíu farþegaþotur skráðar í íslenska flugflotann. Um fjörutíu starfsmenn Flug- málastjórnar annast þá stjórn- sýslu. Helmingur kostnaðarins er greiddur af ríkissjóði en helm- ingur með gjaldtöku frá fyrir- tækjunum sem reka þoturnar. Ekki er víst hversu mikið þyrfti að fjölga hjá Flugmálastjórn fari svo að ECA fái að skrá flugher sinn hér á landi. -pg / sjá síðu 12 Semja þarf um undanþágur frá reglum verði einkarekinn flugher leyfður: Flugher ECA á ábyrgð heryfirvalda ytra VIÐSKIPTI Nýju bankarnir, eða þeir sem högnuð- ust á kaupum á eignum peningamarkaðssjóða gömlu bankanna, gætu þurft að greiða ríkinu til baka þá fjárhæð sem varið var til kaupanna. „Viðskiptavinir þeirra, fólkið sem lagði fé sitt í sjóðina þarf hins vegar ekki að greiða neitt,“ segir Per Sanderud, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, í samtali við Fréttablaðið. ESA greindi frá því í gær að hafin væri form- leg rannsókn á kaupum Arion banka, Íslands- banka og Landsbankans á skuldabréfum pen- ingamarkaðssjóða sem gömlu bankarnir starfræktu. Rannsóknin lýtur að því hvort kaupin feli í sér ríkisaðstoð í skilningi 61. grein- ar EES-samningsins. Á meðal þess sem ESA skoðar er hvort viðskiptalegar forsendur hafi legið að baki kaupum bankanna. Eftir bankahrunið varð mikil óánægja með að neyðarlögin sem sett voru við yfirtöku á bönkunum tryggðu ekki eign einstaklinga og fyrirtækja í peningamarkaðssjóðum með sama hætti og innstæður í bönkunum. Björgvin G. Sigurðsson, þá viðskiptaráðherra, sagði reynt að lágmarka tjón sjóðsfélaga. Fjármálaeftirlit- ið beindi þeim tilmælum til bankanna rétt eftir miðjan október, að slíta sjóðunum og greiða sjóðsfélögum út. Í kjölfarið keyptu bankarnir eignir sjóðanna fyrir 83,6 milljarða króna. Stór hluti eignanna hefur verið afskrifaður. Sjóðunum var slitið í lok október og var við- skiptavinum þeirra greitt út allt frá 69 prósent- um til 85 prósenta af eign þeirra. Fjögur fjármálafyrirtæki sem starfræktu álíka sjóði fengu ekki sambærilegt tilboð í eign sína. Þau töldu sig ekki sitja við sama borð. Lög- mannsstofan Lex kærði málið fyrir þeirra hönd til ESA í apríl í fyrra. Sum fyrirtækjanna hafa ekki getað greitt úr sjóðum sínum að fullu. Fjármálaráðuneytið hefur andmælt ESA og segir stjórnvöld ekki hafa gefið fyrirmæli um kaup á eignum sjóðanna. Slit þeirra hafi lotið einkaréttarlegu uppgjöri á þeim eftir fall bank- anna. Óháðir aðilar hafi metið virði eigna sjóð- anna. Sanderud segir niðurstöðu rannsóknar- innar kunna að liggja fyrir á næsta ári. - jab Sjóðsfélagar endurgreiði ekki Eftirlitsstofnun EFTA rannsakar kaup bankanna á eignum peningamarkaðssjóða. Kaupin gætu flokkast sem ólögmætur ríkisstyrkur. Fjögur fjármálafyrirtæki töldu sig ekki sitja við sama borð og kærðu málið. GLÍMT VIÐ DREKANN Ýmir Gíslason, 12 ára Vesturbæingur, mundaði flugdrekann fagmannlega í rokinu við Ægissíðu í gær. Eins og sést er drekinn af veglegri gerðinni, 2,5 fermetrar að stærð, og tekur Ýmir oft flugið þarna á túninu þar sem hann mætir alltaf þegar nógu hvasst er. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.