Fréttablaðið - 09.09.2010, Page 6
6 9. september 2010 FIMMTUDAGUR
SJÁVARÚTVEGSMÁL Jón Bjarnason
sjávarútvegsráðherra vill ekkert
tjá sig um einstök efnisatriði nýút-
kominnar skýrslu starfshóps um
endurskoðun fiskveiðistjórnunar-
kerfisins. Í viðtali Fréttablaðsins
við ráðherra kom ekki fram hve-
nær hann telur ástæðu til að tjá sig
þar sem hann hefur ekki kynnt sér
skýrsluna til hlítar.
Jón skipaði starfshópinn í júlí
2009 til að endurskoða fiskveiði-
stjórnunarkerfið, með vísan til
stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar
Samfylkingar og VG um endur-
skoðun laga um stjórn fiskveiða.
Verkefnið var að skilgreina helstu
álitaefni sem fyrir hendi eru og
setja fram valkosti sem líkleg-
ir væru til að sem víðtækust sátt
náist um fiskveiðistjórnunina
meðal þjóðarinnar.
Jón segist ánægður með að
hópurinn hafi skilað af sér. Hins
vegar hafi hann ekki náð að fara
í gegnum alla þætti skýrslunnar.
„Hún verður í framhaldinu tekin
til skoðunar og framhaldsvinnu í
ráðuneytinu,“ segir ráðherra.
Starfshópurinn mælir ein-
dregið með að farin verði svo-
kölluð samningaleið. Er það túlk-
un fulltrúa innan nefndarinnar
og hagsmunaaðila að það útiloki
fyrningarleiðina en í stjórnar-
sáttmála Samfylkingarinnar og
VG frá í maí 2009 stendur: „Lög
um stjórn fiskveiða verði endur-
skoðuð í heild með það að mark-
miði að skapa sátt meðal þjóðar-
innar um eignarhald og nýtingu
auðlinda sjávar og leggja grunn
að innköllun og endurráðstöfun
aflaheimilda á tuttugu ára tíma-
bili í samræmi við stefnu beggja
flokka.“
Fréttablaðinu lék forvitni á að
vita hvort Jón túlki niðurstöðu
starfshópsins með sama hætti.
Eins hvort hann sjái samninga-
leiðina sem kost.
Þessum spurningum svaraði
ráðherra með eftirfarandi hætti:
„Ég mun láta fara yfir alla kosti
og segi ekki meira að svo stöddu.“
svavar@frettabladid.is
Vill ekkert segja fyrr
en að lestri loknum
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra vill ekkert tjá sig um skýrslu nefndar um
endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins og þau álitamál sem nefndin hafði til
umfjöllunar. Framhald málsins er þó gerð lagafrumvarps, að hans sögn.
JÓN BJARNASON Hefur ekki kynnt sér skýrsluna í heild né vinnugögn nefndarinnar.
Tjáir sig því ekki að svo stöddu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Spurður hvort hann útiloki samningaleið eða ætli sér að
fylgja eftir upphaflegum hugmyndum ríkisstjórnarinnar
svaraði Jón: „Valkostirnir hafa verið lagðir upp og það var
hlutverk starfshópsins að leggja upp valkosti. Þarna eru
þeir lagðir upp og ráðuneytið fer yfir þá.“
Spurður um hvort niðurstaða nefndarinnar sé ekki langt
frá yfirlýstum markmiðum ríkisstjórnarinnar svaraði Jón:
„Nú hef ég ekki lesið þessa skýrslu.“
Spurður hvort hann þekki samt ekki þær leiðir sem til
umfjöllunar voru, samningaleið, tilboðsleið og svokallaða
pottaleið, svaraði Jón: „Málið er komið inn í ráðuneytið og
er til umfjöllunar þar.“
Spurður hvort hann vilji ekkert tjá sig um einstök
efnisatriði skýrslunnar svaraði Jón: „Skýrslan er komin til
ráðuneytisins.“
Spurður hvort hann hafi ekkert kynnt sér vinnu nefnd-
arinnar á því rúma ári sem hún hefur starfað svaraði Jón:
„Nefndin starfaði á eigin vegum án afskipta ráðuneytisins.“
Spurður hvort hann hafi séð gögn nefndarinnar eins og
sérfræðiálit, sem hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum
svaraði Jón: „Þær skýrslur sem hafa verið unnar hafa verið
skoðaðar.“
Spurður hvort hann hafni því alfarið að svara spurn-
ingum Fréttablaðsins um vinnu starfshópsins og þau
álitamál sem þar voru til umfjöllunar svaraði Jón: „Já, að
svo stöddu.“
Spurt og svarað:
LANDBÚNAÐUR Mikill meirihluti
almennings er á móti því að þau
mjólkursamlög sem taka á móti
mjólk umfram kvóta séu beitt
fjársektum, eða um 85 prósent.
Kemur þetta fram í nýrri könnun
sem Markaðs- og miðlarannsókn-
ir (MMR) gerðu á málinu. 15 pró-
sent svarenda voru fylgjandi því
að sekta ætti mjólkursamlög tækju
þau á móti mjólk umfram greiðslu-
mark.
Séu svörin borin saman við
stjórnmálaskoðanir kemur í ljós að
fylgjendur Framsóknarflokks og
Vinstri grænna eru hlynntari fjár-
sektum á mjólkursamlögin heldur
en fylgjendur Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar.
2 6 p r ó s e nt f y l g j e n d a
Framsóknarflokks eru fylgjandi
fjársektum og 23 prósent kjósenda
Vinstri grænna. 12 prósent stuðn-
ingsmanna Sjálfstæðisflokks vilja
fjársektir og um 11 prósent kjós-
enda Samfylkingarinnar.
Könnunin var framkvæmd dag-
ana 13. til 19. ágúst síðastliðna og
var heildarfjöldi svarenda 875 ein-
staklingar. - sv
Viðhorfskönnun um sektir taki mjólkursamlög á móti mjólk umfram kvóta:
Meirihluti andvígur sektum
ALÞINGI Þingmönnum varð heitt í hamsi í umræð-
um um störf Alþingis í gærmorgun og þar féllu
stór orð. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra var sérstaklega óánægður með málflutn-
ing Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, og
Árna Johnsen, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Árni hafði gagnrýnt ríkisstjórnina mjög, sagt
hana feyskna, ónýta og svikula og að hún ætti að
fara frá.
„Hverjir eiga að taka við?“ spurði Steingrím-
ur þá úr sæti sínu? Árni svaraði því til að allt-
af tæki einhver við, og það þýddi ekki að væla
á þennan hátt úr stól fjármálaráðherra. Því
næst gerði Árni að umtalsefni aðild Steingríms
að kaupum Herjólfs sem samgönguráðherra á
sínum tíma, og sagði hann hafa staðið illa að
verki.
Steingrímur kom í pontu í lok umræðunnar,
sagði Árna umgangast sannleikann af „sínum
alþekkta og hefðbundna sið“ og klykkti út með
þessum orðum: „Og skammastu þín Árni John-
sen!“
Þá vék Steingrímur orðum sínum að Þór Saari,
sem áður hafði farið mikinn og haft uppi stór orð
um svik sáttanefndar um fiskveiðistjórnunar-
kerfið við almenning. „Það er sorglegt að sitja
uppi á þingi með eintök eins og háttvirtan þing-
mann Þór Saari,“ sagði fjármálaráðherra.
Að lokum bað Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
þingforseti þingheim að gæta orða sinna. - sh
Fjármálaráðherra blöskraði ávirðingar þingmanna og svaraði fullum hálsi:
Sorglegt að sitja uppi með Þór Saari
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Byrsti sig á Alþingi
– ekki í fyrsta sinn. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
2.568kr/pk
Lady Cat
Kattamatur, 12.5 kg
Kostur
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
til 12
. se
p
t. e
ð
a
á
m
e
ð
a
n
b
irg
ð
ir e
n
d
a
st, m
e
ð
fyrirva
ra
u
m
p
re
tvillu
r.
gómsæt
Safarík
og
159kr/kg
Epli
Rauð, pink lady
ð ð
989 kr/kg
Goði
Frosið lambalæri
40
afsláttur
%
298kr/pk
Kókómjólk
6 saman í pakka
ð ð
ð ð
12.5 kg
STÓR
poki
verð
Frábært
kaup
Kosta
Fullt af frábærum tilboðum - líttu við
Ert þú vongóð(ur) um að sátt
náist um fiskveiðistjórnunar-
kerfið á næstunni?
Já 19,7%
Nei 80,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér samkeppni á elds-
neytismarkaði nógu virk?
Segðu þína skoðun á vísir.is
KJÖRKASSINN