Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.09.2010, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 09.09.2010, Qupperneq 10
10 9. september 2010 FIMMTUDAGUR BLÍÐAN Í BRASILÍU Tvær manneskjur í gönguferð um Arpoador-ströndina í Rio de Janeiro, stærstu borg Brasilíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP AUSTURRÍKI „Ég tel núna að Wolf- gang Priklopil hafi, með því að fremja hræðilegan glæp, viljað búa sér til ekkert annað en lítinn fullkominn heim fyrir sjálfan sig með manneskju sem gæti verið þarna bara fyrir hann,“ skrifar Natascha Kampusch í ævisögu sinni, sem þessa dagana er að koma út í Austurríki. Ævisagan nefnist „3.096 dagar“ og þar lýsir hún reynslu sinni af Priklopil, sem rændi henni úti á götu í Vínarborg þegar hún var tíu ára og hélt henni fanginni í litlum klefa á heimili sínu í átta og hálft ár. Árið 2006 tókst henni að flýja og sama dag svipti hann sig lífi. „Á margan hátt var mannræn- inginn skepna og grimmari en orð fá lýst,“ skrifar hún. „Stundum barði hann mig svo lengi að mér fannst barsmíðarnar standa yfir klukkustundum saman.“ Stundum hafi hann ekki bara notað hend- urnar, heldur garðklippur, kúbein og sementspoka. Hann lét hana svelta lengi, sagði hana vera of feita, en síðar hafi hún áttað sig á því að hann hafi með þessu dregið úr henni mátt svo hún ætti erfiðara með að flýja eða sýna mótspyrnu. Hún segir hann hafa dáð Adolf Hitler og lagt að henni að lesa bók Hitlers, Mein Kampf. Hann hafi lagt alla áherslu á að hún yrði honum undirgefin. „Þú átt enga fjölskyldu lengur. Ég er faðir þinn, móðir þín, amma þín og systur þínar. Ég er þér allt,“ segir hún hann hafa sagt. „Ég hef skap- að þig,“ sagði hann líka. Hún segist þó alla tíð hafa neitað að krjúpa fyrir framan hann, þótt hann hafi aftur og aftur heimtað það af henni. Hann hafi neytt hana til þess að ganga um hálfnakta bæði í húsinu og úti í garði. Það hafi bæði verið gert til að niðurlægja hana og til þess að koma í veg fyrir flótta. „Hann vissi sem var að ég myndi ekki þora að flýja hálfnakin.“ Hún segir hvergi frá nauðgun- um, en tekur þó fram að hún vilji halda því versta eftir fyrir sjálfa sig. Fólk viti nú þegar of mikið. Eftir fjórtán ára aldur lét hann hana stundum sofa við hliðina á sér í rúminu uppi í íbúðinni, hlekkjaða við hann með hand- járnum. Ekki hafi hann þó reynt að nauðga henni. „Maðurinn sem barði mig, lokaði mig niðri í kjall- ara og svelti mig, vildi bara hafa einhvern til að hjúfra sig upp að,“ segir hún. Hún hefur í viðtölum vegna útkomu bókarinnar sagt einna erfiðast að útskýra fyrir fólki að stundum hafi hún þrátt fyrir allt átt góðar stundir með kvalara sínum. Hann var eini félagsskap- urinn sem hún átti kost á allan þennan tíma. Hún hafi þó haft betur á endan- um og aldrei gerst honum undir- gefin eins og hann vildi. „Honum mistókst,“ segir hún í einu viðtalinu. „Það er ekki hægt að stjórna neinum algerlega, því ef maður reynir það þá verður sá sem reynt er að stjórna sá sem stjórnar – því athyglin er öll á honum.“ gudsteinn@frettabladid.is Var grimmari en orð fá lýst „Mótþróinn varð mér nauðsynlegur til að lifa af,“ segir Natascha Kampusch í ævisögu sinni, sem þessa dag- ana er að koma út í Austurríki. Hún var í átta ár fangi mannræningjans Wolfgangs Priklopil í Austurríki. Í SJÓNVARPSVIÐTALI Natascha Kampusch segir nú sögu sína í viðtölum og ævisögu, sem brátt verður kvikmynduð. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært fyrrverandi skólastjóra grunnskólans á Tálknafirði fyrir Héraðsdómi Vestfjarða fyrir fjár- drátt og brot í starfi. Skólastjóranum fyrrverandi er gefið að sök að hafa dregið sér rúmlega eina og hálfa milljón króna af fjármunum skólans. Í ákæru segir að maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, hafi á tímabili frá 5. nóvember 2008 til 30. júlí 2009 misnotað aðstöðu sína sem skólastjóri, bæði á þáverandi heimili sínu að Innstu- Tungu í Tálknafirði, og í hús- næði Grunnskólans á Tálkna- firði, að Sveinseyri. Hann hafi dregið sér samtals rúmlega eina og hálfa milljón með óheimilum millifærslum af bankareikningi skólans hjá Sparisjóði Vestfirð- inga, sem skólastjórinn fór með vörslu á og hafði aðgang að með heimabanka. Af heildarupphæð- inni færði maðurinn inn á eigin bankareikning tæpar 1,3 millj- ónir í nítján færslum. Samtals 230 þúsund færði hann svo í sex færslum inn á bankareikning eig- inkonu sinnar. Þessa fjármun- ii hagnýtti maðurinn sér í eigin þágu og fjölskyldu sinnar. Tálknafjarðarhreppur gerir skaðabótakröfu í málinu, vegna Grunnskólans á Tálknafirði. Þess er krafist að skólastjórinn fyrr- verandi greiði hreppnum tæpar tvær milljónir króna með vöxt- um. - jss Maður á fimmtugsaldri ákærður fyrir fjárdrátt: Fyrrverandi skólastjóri dró sér fé frá skólanum TÁLKNAFJÖRÐUR Tálknafjarðarhreppur krefur manninn um tæpar tvær milljónir í skaðabætur. ATVINNUMÁL Fjölsmiðja verður stofnuð á Suðurnesjum fyrir til- stilli Vinnumálastofnunar, Rauða kross Íslands og sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Fjölsmiðjan er atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á krossgöt- um sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu og felst starfsemi henn- ar einkum í framleiðslu vara, fag- legri verkþjálfun og ýmiss konar þjónustu. Ráðgert er að til að byrja með verði um 20 til 25 einstakling- ar í Fjölsmiðjunni á hverjum tíma. - shá Þriðja Fjölsmiðjan stofnsett: Ungt fólk fær ný tækifæri SJÁVARÚTVEGSMÁL Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur veitt 800 þúsund króna styrk til meðferðarúrræðisins Karlar til ábyrgðar. Styrkurinn er hugsað- ur til að hægt sé að halda rekstri óskertum til ársloka. Karlar til ábyrgðar er sérhæft meðferðarúrræði fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum. Rekstur þess og stjórnun er í höndum Jafn- réttisstofu og felst meðferðin í ein- staklingsmeðferð og hópmeðferð hjá sálfræðingum. Rekstrarkostn- aður verkefnisins á þessu ári verð- ur 6,8 milljónir króna að meðtöld- um styrk ráðuneytisins. - shá Ráðuneyti styrkir úrræði: Tryggja rekstur til áramóta BRESKT TUNDURDUFL Duflið á myndinni kom í troll skips árið 2008. MYND/LHG ÖRYGGISMÁL Sprengjusérfræðing- ar Landhelgisgæslunnar luku í gær við að eyða tundurdufli sem togbáturinn Skinney frá Horna- firði fékk í trollið við veiðar suður af Snæfellsjökli í gær- morgun. Var um að ræða breskt tundurdufl frá seinni heimsstyrj- öldinni sem var býsna heillegt, að sögn sprengjusveitarmanna. Reiknað er með að um 220 kíló af sprengiefni hafi verið inni í duflinu. Var tundurduflið flutt á afskekkt svæði utan við Rif á Snæfellsnesi þar sem því var eytt. Að sögn LHG er alltaf gert ráð fyrir hinu versta þegar tund- urdufl koma í veiðarfæri því ekki er útilokað að gamall búnaður springi þrátt fyrir langa legu í sjó. - shá Tundurdufl gert óvirkt: Innihélt 220 kíló af sprengiefni DÓMSMÁL Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra sakborninga af níu sem ákærðir eru fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn í Alþing- ishúsið í búsáhaldabyltingunni, krafðist þess í gær að málinu yrði vísað frá dómi. Ástæðuna segir hann vera vanhæfi setts ríkis- saksóknara, Láru V. Júlíusdóttur. Dómari tók málið til úrskurðar að málflutningi loknum. Ragnar benti á að Alþingi hefði kosið Láru til setu í bankaráði Seðlabankans og sé hún þar með trúnaðarmaður Alþingis í ráðinu. Þá las hann upp tölvupósta sem farið höfðu á milli saksóknar- ans og skrifstofustjóra Alþingis vegna málsins. Taldi lögmaður- inn póstana vera með sniði kunn- ingsskapar frekar en formlegheita. Loks benti hann á að ákærur rík- issaksóknara, sem síðan reyndist vanhæfur í málinu, og setts sak- sóknara væru með sama orðalagi, sem gæti bent til þess að sá síðar- nefndi hefði ekki unnið sjálfstætt að ákærunni. Lára sagði að Seðlabankinn væri sjálfstæð stofnun og ekkert vinnu- samband á milli bankaráðs Seðla- bankans og Alþingis. Starf sitt í bankaráði væri ekki til þess fall- ið að hægt væri að efast um óhlut- drægni sína. Bankaráðið hefði ekki neinna hagsmuna að gæta í málinu. Starfið í bankaráði snerist um eft- irlit með starfsemi bankans. Einu tengsl hennar við Alþingi séu þau að þingið hafi kosið hana til setu í ráðinu. Þá kvað hún Alþingi ekki hafa skipað sig sem ríkissaksóknara í málinu. Það hefði verið ráðherra. Tölvupóstinn sagði hún hafa mátt vera formlegri en eðli tölvu- pósta væri stundum þannig að þeir væru óformlegir. -jss Fyrirtaka með friðsamlegum hætti í máli níumenninganna sem sakaðir eru um árás á Alþingi: Tekist á um hæfi setts ríkissaksóknara HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Fyrirtaka málsins var í gær með friðsamlegri hætti en áður. Borði til stuðnings mótmæl- endunum var strekktur yfir götuna við dómhúsið. BÓKIN KOMIN Í BÚÐIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.