Fréttablaðið - 09.09.2010, Side 16
16 9. september 2010 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
„Ég kann nú ekki mörg húsráð og er
ekki sérstaklega
mikið gefin fyrir
húsverk nema þá
að þrífa heim-
ilið þannig að
óþrifnaður fari að
minnsta kosti ekki í
taugarnar á mér.
Mitt besta húsráð
er þó það að allir
í fjölskyldunni séu
vinir. Þá gengur allt
svo miklu betur,“
segir Sigrún Árnadóttir hómópati á
Skriðu við Esjurætur.
GÓÐ HÚSRÁÐ
ALLIR Í FJÖLSKYLDUNNI
SÉU VINIR
Þeir heitu pottar sem ganga
fyrir rafmagni eyða um
770 prósentum meira en
þeir sem nota hitaveitu-
vatn. Þurrkarar eru frek-
astir hreinlætistækja í
rafmagnsnotkun. Þrátt
fyrir mun meiri eyðslu eru
glóperur, sem hætta brátt
í framleiðslu, mun vinsælli
meðal almennings heldur en
sparperurnar.
Fjögurra manna fjölskylda í 150
fermetra fjölbýlishúsi eyðir að
meðaltali 7.700 krónum á mán-
uði í rafmagnsnotkun, samkvæmt
reiknivél Orkuveitu Reykjavíkur.
Er þetta miðað við gjaldskrá frá
1. október næstkomandi.
Miklu munar í kostnaði á notkun
sparpera og glópera í heimilislýs-
ingu, en hætt verður framleiðslu á
glóperum á næsta ári. Sparperur
henta þó ekki öllum, þar sem þær
eru ekki gerðar fyrir dimmera og
taka einhvern tíma að ná upp fullri
lýsingu. Lítil rými sem þarfn-
ast lýsingar í stuttan tíma í senn,
eins og búr og geymslur, væru til
dæmis ekki kjörinn staður fyrir
sparperur. En þær eru þó allt að
tíu sinnum sparneytnari heldur
en glóperur, sem eru þó vinsælli
meðal almennings.
Þurrkarar, uppþvottavélar, bök-
unarofnar og rafmagnsknúnir
heitir pottar eru þau heimilistæki
sem vega mest í rafmagnsnotk-
un heimilanna og eru þeir síðast-
nefndu dýrastir af þeim öllum í
notkun.
Það er 770 prósentum dýrara að
knýja heita potta með rafmagni en
hitaveitu. Heitir pottar sem hitað-
ir eru með rafmagni kosta að með-
altali 1.328 krónur skiptið, en séu
þeir knúnir með hitaveitu, kostar
skiptið 171 krónu. Er þetta sam-
kvæmt reiknivél á vef Orkuveitu
Reykjavíkur.
Þráinn Þráinsson, deildarstjóri í
hreinlætistækjum Húsasmiðjunn-
ar, segir rafmagnshitaða potta mun
vinsælli heldur en þá sem ganga á
hitaveituvatni. Rafmagnspottar
komi nær tilbúnir til notkunar, en
hinir komi einungis sem skel og
byggja þurfi í kringum þá og í þá
þurfi að láta renna í langan tíma.
Rafmagnspottar í Húsasmiðjunni
kosta í kringum 930 þúsund krón-
ur en skelin í hitaveitupottana
kostar á milli 300 og 350 þúsund.
Hann segir rafmagnskostnað við
hitaveitupotta ekki vera eins háan
og Orkuveitan segi til um.
„Kostnaðurinn er á milli 3.000
og 3.500 krónur á mánuði og það
er með talsverðri notkun, nánast á
hverjum degi,“ segir Þráinn. „Og
þegar potturinn er með lokinu á í
kyrrstöðu, er kostnaðurinn milli
1.000 og 1.500 krónur.“
Rafmagnspottar seljast þó mun
betur heldur en þeir sem ganga
fyrir hitaveituvatni, þrátt fyrir
að kosta þrisvar sinnum meira og
vera mun dýrari í rekstri.
sunna@frettabladid.is
Heitir pottar eyða mestu
rafmagni á heimilunum
HEITUR POTTUR Það kostar að meðaltali
um 1.300 krónur að hita rafmagnsknú-
inn heitan pott í hvert skipti, samkvæmt
verðskrá Orkuveitunnar.
Þvottahústæki
Tæki Verð á skipti Vikuleg notkun Verð á mánuði
Þvottavél 7 kr. skiptið, 40° 4 skipti 64 kr.
13 kr. skiptið, 60° 1 skipti 52 kr.
22 kr. skiptið, 90° 1 skipti 88 kr.
Þurrkari m/ barka 24 kr. skiptið 4 skipti 384 kr.
Samtals á mánuði: 588 kr.
Virðisaukaskattur (25.5%): 150 kr.
Samtals fyrir þvottahús á mánuði:* 738 kr.
Lýsing - miðað við 1 stykki
Pera Verð á klst. Notkun á viku Verð á mánuði*
Glópera (40w) 0,25 kr. 70 klst 70 kr.
Glópera (60w) 0,5 kr. 70 klst 140 kr.
Glópera (80w) 0,75 kr. 70 klst 210 kr.
Glópera (1000w) 1 kr. 70 klst 280 kr.
Sparpera (11w) 0,09 kr. 70 klst 25 kr.
Sparpera (14w) 0,1 kr. 70 klst 28 kr.
Flúrpera (8w) 0,06 kr. 70 klst 16,8 kr.
Flúrpera (20w) 0,15 kr. 70 klst 42 kr.
Eldhústæki
Tæki Verð á klukkustund Vikuleg notkun Verð á mánuði
Kæli- og frystiskápur 2,6 kr. Alltaf í gangi 440 kr.
Eldavélarhella, 1 stk. 14 kr. 14 klst. 196 kr. (392 kr.)
Uppþvottavél, gömul 22 kr. skiptið 7 skipti 154 kr
Uppþvottavél, ný 17 kr. skiptið 7 skipti 119 kr.
Kaffivél 1 kr. líterinn 7 lítrar 7 kr.
Bökunarofn (2.000w) 18 kr. 7 klst. 126 kr.
Vifta 1 kr. 6 klst. 6 kr.
Hrærivél 4 kr. 1 klst. 4 kr.
Örbylgjuofn 12 kr. 1 klst. 12 kr.
Vöfflujárn (900w) 8 kr. 1 klst. 8 kr.
Samtals á mánuði: 1.268 kr.
Virðisaukaskattur (25.5%): 323 kr.
Samtals fyrir eldhús á mánuði:* 1.591 kr.
*Verð er án orkuskatts og fastagjalds.
Stofu-, skrifstofu- og svefnherbergistæki
Tæki Verð á klukkustund Vikuleg notkun Verð á mánuði
Sjónvarp (100w) 1 kr. 35 klst. 70 kr. (2 stk)
Myndbandstæki 0,25 kr. 10 klst. 5 kr. (2 stk)
Myndlykill 0,25 kr. 35 klst. 8,75 kr.
Hljómflutningstæki 1 kr. 14 klst. 28 kr. (2 stk)
Útvarpstæki 0,25 kr. 7 klst. 1,75 kr.
Samtals á mánuði: 113,5 kr.
Virðisaukaskattur (25,5%): 28,9 kr.
Samtals fyrir stofu-, skrifstofu- og svefnherbergistæki á mánuði:* 142,4 kr.
20
02
20
04
20
06
20
08
20
10
824 kr.
Útgjöldin
> Kílóverð á nautahakki
940 kr.
1.157 kr.
1.251 kr.
1.217 kr.
Heimild: Hagstofa Íslands
„Það er leit að trúgjarnari og hrekklausari neyt-
anda en mér. Mín neytandasaga er ein samfelld
hrakfallasaga. Það er mjög erfitt að finna kaup
sem eru mjög góð, en að vandlega athuguðu
máli þá held ég að verstu og bestu kaup sem
ég hef gert, séu þau sömu,“ segir Steingrímur
Teague, hljómborðsleikari og söngvari í Moses
Hightower.
Steingrímur festi kaup á svörtum leður-
jakka fyrir nokkrum árum. „Ég hef aldrei á
ævinni verið svona mikill töffari. Allt í einu
var ég orðinn hættulegur og viðsjárverður
og naut kvenhylli sem ég hef aldrei náð
að toppa – hvorki fyrr né síðar,“ segir
Steingrímur. „En gallinn við þetta
var að hann var sniðinn eins og
ég vildi að ég væri í laginu, frekar en ég var í
raun. Þannig að ég þurfti að standa kyrr, alltaf,
sem var allt í lagi, því það samræmdist þeirri
kúl-ímynd sem ég var að reyna að tileinka mér.“
Svo gerðist það að Steingrímur þurfti að
hreyfa sig. „Þá kom að því af hverju
þetta voru verstu kaupin. Ég var
alltaf að láta gera við hann. Hann
rifnaði við minnsta áreiti. En þetta
var algjörlega þess virði – lengi
vel. Á endanum stóð valið á milli
gjaldþrots og kúls, það er nefni-
lega ekki ódýrt að láta gera við
svona leðurjakka. Þannig að ég
lét hann fara og hef því miður
verið lúðalegur síðan þá.“
NEYTANDINN: Steingrímur Teague, hljómborðsleikari og söngvari í Moses Hightower
Valið stóð á milli gjaldþrots og kúls
Á nýjum vef umboðsmanns skuldara
(ums.is) er að finna leiðarvísi sem
beinir fólki veginn að því úrræði sem
best hentar. Umboðsmað-
ur skuldara veitir fólki
í fjárhagserfiðleikum
ókeypis ráðgjöf.
„Það er mikilvægt
að fólk bregðist
sem fyrst við, ef
það sér fram á
erfiðleika við að
borga af skuldum
sínum,“ segir Ásta
S. Helgadóttir,
umboðsmaður
skuldara. Hún
segir ráðgjafa aðstoða fólk við
að komast að því hvaða leið henti.
„Stundum dugar almenn ráðgjöf,
sem getur meðal annars falist í
endurskipulagningu á fjármálum
heimilisins, aðstoð við umsókn um
greiðslufrestun eða aðstoð við að
semja við kröfuhafa eftir ráðgjöf.“ Í
öðrum tilfellum segir Ásta ef til vill
mælt með greiðsluaðlögun, þar sem
gerðir séu eins til þriggja ára samn-
ingar um að fólk greiði af skuldum
sínum í samræmi við greiðslugetu.
Hægt er að leita til umboðsmanns
skuldara á Hverfisgötu 6 í Reykja-
vík milli klukkan níu og fjögur alla
virka daga. Þá býður stofnunin upp
á netsamtal við ráðgjafa í gegnum
heimasíðuna ums.is. - óká
■ Vísar veginn:
Ráðgjöf umboðs-
manns á heimasíðu
KRINGLUNNI Sími 568 9400 | www.byggtogbuid.is
Hártækjadagar
Öll hársnyrtitæki með góðum afslætti en aðeins í nokkra daga.
Sléttujárn, bylgjujárn, vöfflujárn, hárklippur, krullujárn, nefhárasnyrtar, blásarar, hitaburstar,
rakvélar og margt fleira. Vörumerki á borð við Remington og Babyliss.
Fimmtungur þeirra sem nota í vinnu
sinni skrifborð sem hækka má og
lækka, þannig að hægt sé að standa
við það, nennir aldrei að hækka borð-
ið. Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun
á vef Erhvervsbladet í Danmörku.
Niðurstaða blaðsins er að Danir nenni
ekki að standa við vinnuna.
Annars leiddi könnunin í ljós að
29 prósent sem nota þessi skrifborð
standa við vinnuna einu sinni í mán-
uði, en rúmur fimmtungur, eða 21
prósent, gerir það daglega. Ellefu pró-
sent hækka borðið að minnsta kosti
þrisvar í viku og 20 prósent einu sinni
í viku. Síðan eru þessi 19 prósent
sem aldrei breyta stillingum borðsins
og sitja alltaf við vinnu sína.
■ Fróðleikur
Danir nenna ekki að
standa við vinnuna