Fréttablaðið - 09.09.2010, Síða 18
9. september 2010 FIMMTUDAGUR18
Umsjón: nánar á visir.is
16
Seðlabanki Íslands hefur keypt
gjaldeyri á millibankamarkaði
fyrir 1.147 milljónir króna frá því
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri tilkynnti á vaxtaákvörðun-
arfundi bankans 17. ágúst síðast-
liðinn að hann myndi gera slíkt um
mánaðamótin síðustu.
Gengi krónunnar styrktist um
rétt rúm tvö prósent gagnvart evru
í síðasta mánuði. Frá mánaða-
mótum hefur gengið styrkst
um tæp tvö prósent til við-
bótar. Gengi evrunnar
hafði í gær ekki verið veik-
ara gagnvart krónu síðan
um miðjan mars í fyrra.
Bankinn keypti gjaldeyri
fyrir 992 milljónir króna í
ágúst og 455 milljón-
ir það sem af er
þessum mán-
uði. Velta á
millibanka-
markaði
með gjald-
eyri nam
1.612 millj-
ónum króna
í ágúst og
jafngilda við-
skipti Seðla-
bankans því
61,5 prósentum af heildarveltunni,
samkvæmt upplýsingum frá bank-
anum.
Kaupin voru boðuð markaðs-
aðilum með tilboði á markaði og
tilkynnti Seðlabankinn þau tveim-
ur dögum síðar á vef bankans.
Áður en Seðlabankinn lét til sín
taka á gjaldeyrismarkaði hafði
hann ekki átt viðskipti
þar frá því í nóvember í
fyrra. Þá var ein evra
tæpum 36 krónum dýr-
ari en nú.
- jab
Seðlabankinn lætur til sín taka á gjaldeyrismarkaði:
Evran á svipuðu róli
og í mars í fyrra
190
180
170
160
150
23
.m
ar
.0
9
17
.a
pr
.0
9
15
.m
aí
.0
9
12
.jú
n.
09
9.
jú
l.0
9
5.
ág
ú.
09
31
.á
gú
.0
9
24
.s
ep
.0
9
20
.o
kt
.0
9
13
.n
óv
.0
9
9.
de
s.
09
7.
ja
n.
10
3.
fe
b.
10
1.
m
ar
.1
0
25
.m
ar
.1
0
26
.a
pr
.1
0
21
.m
aí
.1
0
18
.jú
n.
10
14
.jú
l.1
0
11
.á
gú
.1
0
8.
se
p.
10
Þróun á gengi evru gagnvart krónu frá mars 2009
Nokkur
sæti laus
// KYNNINGARFUNDUR
Fimmtudaginn 9. sept.
Kl.19 fyrir 13 -15 ára
Kl. 20 fyrir 16-20 ára og 21-25 ára
Ármúli 11, 3. hæð.
// NÁMSKEIÐ FYRIR 13-15 ÁRA
Mánudaginn 13. sept. kl. 17-21 - nokkur sæti laus
Þriðjudaginn 28. sept. kl. 17-21
// NÁMSKEIÐ FYRIR 16-20 ÁRA
Þriðjudaginn 14. sept. kl. 18-22 - uppselt
Miðvikudaginn 29. sept. kl. 18-22
// NÁMSKEIÐ FYRIR 21-25 ÁRA
Miðvikudaginn 15. sept. kl. 18-22 - uppselt
Fimmtudaginn 30. sept. kl. 18-22
Skilanefnd og slitastjórn Spari-
sjóðabankans, áður Icebank,
hefur hafnað 196 milljarða króna
kröfu Seðlabankans í bú bankans.
Þetta kom fram á kröfuhafafundi
bankans á þriðjudag.
Lýstar kröfur í bú Sparisjóða-
bankans nema 369 milljörðum
króna. Þar af nemur krafa Seðla-
bankans 225,4 milljörðum króna,
eða sextíu prósentum af heildar-
kröfum. Þær kröfur sem ekki
var vísað frá fengust samþykkt-
ar að litlu leyti. Á móti skuldum
á þrotabú Sparisjóðabankans 68
milljarða króna. Þar af er krafa
bankans á hendur viðskiptabönk-
um gömlu, Glitni, gamla Lands-
bankanum og Kaupþingi, upp á
25 milljarða króna.
Sparisjóðabankinn var einn
af stórtækustu viðskiptavinum
Seðlabankans fyrir hrun banka-
kerfisins með svokölluð ástarbréf
allt frá því árið 2007 þegar dyr
lánsfjármarkaða voru að lokast.
Ástarbréfin voru skuldabréf sem
viðskiptabankarnir þrír gáfu út
og lögðu inn í Sparisjóðabank-
ann. Bankinn seldi þau áfram til
Seðlabankans í endurhverfum
viðskiptum. Lánsféð sem Seðla-
bankinn veitti í skiptum fyrir
skuldabréfin rann úr Sparisjóða-
bankanum aftur til viðskipta-
bankanna.
Þegar viðskiptabankarnir féllu
fyrir tæpum tveimur árum urðu
skuldabréfin verðlaus og stóð
Seðlabankinn uppi með tapið.
Eftir því sem næst verður kom-
ist telur slitastjórn Sparisjóða-
bankans að stjórnendur Seðla-
bankans hafi vitað af bágri stöðu
bankanna og verið kunnugt um að
þeir hafi staðið á bak við ástar-
bréfin. Látið hafi verið hjá líða
að að greina stjórnendum Spari-
sjóðabankans frá því.
Andri Árnason, formaður
slitastjórnar Sparisjóðabank-
ans, segir hafa komið til tals að
Seðlabankinn fái kröfu Spari-
sjóðabankans á hendur þrotabúa
gömlu viðskiptabankanna upp í
skuldir. „Það kemur til álita að
hann yfirtaki kröfu okkar á þá,“
segir Andri og telur að skriður
komist á málið á næstu vikum.
Verðmæti krafna Sparisjóða-
bankans í bú gömlu viðskipta-
bankanna miðast við væntar end-
urheimtur á markaði. Fari svo að
Seðlabankinn yfirtaki kröfuna
verður hann að afskrifa tæp níu-
tíu prósent skuldarinnar gagn-
vart Sparisjóðabankanum.
jonab@frettabladid.is
Senda ástarbréfin
aftur til föðurhúsa
Sparisjóðabankinn hafnar að mestu kröfu Seðlabankans í þrotabúið. Slitastjórn
býður í staðinn kröfu sína á hendur gömlu bönkunum. Verði það raunin fær
Seðlabankinn aðeins tíu prósent upp í skuldir vegna ástarbréfa bankanna.
Kostnaður við rekstur þrotabús Sparisjóðabankans nam 490 milljónum króna
á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 81 milljón umfram áætlanir. Andri
Árnason, formaður slitastjórnar Sparisjóðabankans, segir framúrkeyrsluna
öðru fremur skýrast af því að aðstoð og ráðgjöf hafi reynst dýrari en gert var
ráð fyrir. Hann bætir þó við að kostnaðurinn sé sambærilegur og hjá öðrum
fjármálafyrirtækjum af svipaðri stærðargráðu og Sparisjóðabankinn.
Áttatíu milljónir fram úr áætlun
Rekstrarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar*
Liður Áætlun Raunkostnaður Mismunur
Launakostnaður og launatengd gjöld 153 186 33
Kostnaður v. skilanefndar og slitastjórnar 49 69 20
Ráðgjafakostnaður 79 112 33
- innanlendur kostnaður 33 52 19
- erlendur kostnaður 38 60 22
Kostnaður við rekstur tölvukerfis 67 60 -7
Annar kostnaður 61 63 2
Samtals: 409 490 81
* Í milljónum króna
HÖFUÐSTÖÐVAR SPARISJÓÐABANKANS Slitastjórn hefur hafnað kröfu Seðlabankans
á hendur þrotabúi bankans. Í boði er að Seðlabankinn fái tíu prósent upp í kröfur.
FRÉTTABLAÐIÐ/EÓL
MILLJARÐAR KRÓNA er vaxtakostnaðurinn sem ríkið gæti þurft að
greiða á ári fyrir öll erlendu lánin sem tekin verða í tengslum við efnahags-
áætlun Alþjóðagjaldeyrisjóðsins og íslenskra stjórnvalda.
MÁR GUÐMUNDS-
SON Seðlabanka-
stjóri tilkynnti á
vaxtaákvörðun-
arfundi í ágúst
að bankinn
myndi hefja
kaup á gjald-
eyri.