Fréttablaðið - 09.09.2010, Page 27
FIMMTUDAGUR 9. september 2010 3
Tískan á frönsku Rívíer-unni eða ,,Sur la Côte d‘Azur“ eins og Frakk-ar segja gjarnan, er
um margt ólík því sem gerist í
höfuðborginni þó flest tískuhús
sem og minni spámenn í geiran-
um selji vörur sínar suður frá. Í
suðrinu er auðvitað nokkuð ólíkt
veðurlag og allt annað hitastig,
varla hægt að tala um vetur.
Annars er oft á tíðum vorveður
svo ekki sé minnst á langa sum-
ardaga. Á dögunum þegar ég
var á þessum slóðum horfði ég
af athygli á klæðaburð og fatn-
að í verslunum í Nice, Cannes og
víðar og vissulega er munur.
En það er ekki aðeins veðr-
ið sem útskýrir þennan
mismunandi klæðnað
milli norðurs og suð-
urs hér í landi. Kjól-
ar og pils eru styttri
og hálsmálið nær oft
á tíðum lengra niður
hjá mörgum konum,
stundum má
spyrja hvort
það sé til að
sýna sem
best endur-
gerðan
barminn. Á
Rívíerunni er
sömuleiðis nauð-
synlegt að flíkin
glitri, hvort sem það
eru pallíettur, perlur
eða annað skraut. Allt
sem í boði er í gylltum
eða silfruðum litum
er afskaplega vinsælt.
Reyndar er einkenni-
legt að í sjónum við
eina af fáum ströndum
Cannes sem eru ókeyp-
is og opnar almenningi
virðast vera smágerðar
gylltar agnir í sjónum,
kannski komið úr sólar-
kremi og snyrtivörum
þeirra sem baða sig þar.
Þó að mikið sé um glam-
úr og stjörnur í Cannes er
tæpast pallíettum bætt í
sjóinn! Þegar gengið er eftir la
Crosette, breiðgötunni við sjóinn
í Cannes þar sem bæði er höll
kvikmyndahátíðarinnar og hótel-
in Carlton, Martinez og Majestic
en einnig þar sem öll fínu tísku-
húsin eru er ekki laust við að það
sé hægt að anda að sér peninga-
lyktinni og þá er ég ekki að tala
um gúanófýlu sem kölluð var
peningalykt í mínu ungdæmi.
En gatan sem er samliggjandi
Croisettunni er hins vegar öllu
venjulegri og þar má finna
margt áhugavert á öllu verði. Á
milli ólífuolíu, sandala og sápu
úr jurtum frá Provence-héraði,
leynist tíska heimamanna sem
ekki er eins þekkt og dýr.
Í Nice er tískan margbreyti-
legri og íbúarnir og gestirnir
eru fjölbreyttari en í Cannes
og kannski ekki eins ríkir, en
borgin er miklu stærri. Þrátt
fyrir það eiga Nice-búar
sitt fína hverfi. Það merki-
lega er þó að þrátt fyrir
að mikið sé um ,,gylltar
konur“ og glingur suður
frá er raunveruleg
eftirspurn eftir látlaus-
ari og glæsilegri tísku
sem ekki er alltaf í boði.
Þetta hef ég bæði heyrt
frá íbúum Rívíerunn-
ar sem og sölufólki.
Kannski einmitt vegna
ranghugmynda sem
fólk gerir sér um
suðurbúana.
Hvað sem um
ranghugmyndir
má segja skiptir
yfirborðið þó miklu
máli á Rívíerunni.
Þar eru ekki aðeins
stækkuð brjóst
sem flæða upp úr
víðum hálsmál-
um. Sund-skýlur
eru einnig seldar
með svamppúðum
að framan sem
er ætlað að ýkja
innihaldið.
bergb75@free.fr
Flegin hálsmál og gylltar konur
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Allt frá því að America‘s Next Top
Model hóf göngu sína 2003 hefur
súpermódelið Tyra Banks setið við
stjórnvölinn og af fenginni reynslu
veit hún að eitthvað nýtt þarf að
leggja á borðið í komandi seríu, enda
búast áhorfendur við því besta.
Nú hefur hún opinberað að Franca
Sozzani, ritstjóri ítalska Vogue, sem er
jú tískubiblía Ítala, verði gestadómari
í komandi þáttaröð, en hann hefur
samþykkt að leggja sitt á vogarskál-
arnar til að ögra þættinum svo að
hann verði það besta sem tískusjón-
varp býður upp á.
Að auki hefur Tyra fengið til liðs við
sig heimsfrægu ljósmyndarana Patrick
Demarchelier og Matthew Rolston.
„Nú hefur America‘s Next Top Model
allt í einu breyst í America‘s Next Top
Modelle, og það mun hefja tískuiðn-
aðinn til hærri metorða,“ sagði Tyra
sigurviss þegar hún kynnti nýja mann-
skapinn til sögunnar.
Önnur kunnugleg andlit verða
hönnuðirnir Diane von Furstenburg,
Zac Posen og Roberto Cavalli.
Áhorfendur geta því farið að
hlakka til að fylgjast með þættin-
um sem verður eins og að fylgjast
með heilu tískublaði lifna við, því nú
mun engum dyljast hvernig tískuiðn-
aðurinn fer fram í raun. Hvað meira
er hægt að biðja um í raunveruleika-
sjónvarpsþætti?
Mikils metinn dóm-
ari með Tyru Banks
FRANCA SOZZANI, RITSTJÓRI ÍTALSKA
VOGUE, VERÐUR GESTADÓMARI Í
NÆSTU ÞÁTTARÖÐ AMERICA´S NEXT
TOP MODEL.
Vaxmynd af Tyru Banks var frumsýnd
á Madame Tussaud í Lundúnum í
fyrrahaust.
50 ára og eldri
Uppri unarnámskeið!
Reyndasti danskennari
Íslandssögunnar kennir
Hann er 74 ára, ekki gráhærður (aldrei litað á sér
hárið). Ekki með hrukkur (aldrei farið í andlit-
slyftingu). Aldrei bakveikur og við hestaheilsu
… allt dansinum að þakka því dansinn er allra
meina bót. Kennarinn heitir Heiðar Ástvaldsson
og kennir á mánudögum, þriðjudögum og
fimmtudögum 50 ára og eldri og kemur öllum
í gott form á ný.
Konusalsa
Sjóðheit námskeið. Hentar öllum konum,
ungum og öldnum, liðugum og stirðum.
Í tímunum 50 plús og Salsa eru ávallt 3
kennarar.
Innritun og upplýsingar á
www.dansskoliheidars.is
og í síma 551 3129
kl 16 til 20 daglega
LÍN DESIGN LAUGAVEGI 176, GAMLA SJÓNVARPSHÚSIÐ | SÍMI: 533 2220 | NETFANG: LINDESIGN@LINDESIGN.IS
TILBOÐIN ERU
EINNIG Í VEFVE
RSLUN
LINDESIGN.IS
25% afsláttur af öllu í barnadeild fram á
laugardag. Falleg íslensk hönnun unnin
úr bestu fáanlegri bómull.
MJÚKT FYRIR BÖRNIN
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 90 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar
á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU