Fréttablaðið - 09.09.2010, Síða 30

Fréttablaðið - 09.09.2010, Síða 30
 9. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● húð, hár og heilsa Margir karlmenn eru á því að ein- göngu þurfi góða sköfu og raksápu til að ná viðunandi rakstri. Málið er þó aðeins flóknara eins og með- fylgjandi leiðbeiningar segja til um. Þannig er mælt með því að þeir sem nota sköfu þvoi andlitið vel með heitu vatni áður en rakstur hefst en varist að nota sápu. Sápa þurrkar húðina og eykur líkurn- ar á að menn skeri sig við rakst- ur. Þá er best að raka í sömu átt og skeggið vex en ekki á móti þar sem það eykur líkur á útbrotum. Þvoið andlit með volgu vatni eftir rakst- ur, þerrið og berið á rakakrem. Þá er mælt með því að nota rakvéla- blöð ekki oftar en tvisvar eða þri- svar. Eftir það verða þau yfirleitt bitlaus. Góður andlitsrakstur Sú árátta kvenna að vilja hvergi hafa stingandi strá á líkamanum nema á höfði er löngu orðin vel þekkt. Karlar eru þó einnig farnir að nýta sér einhverjar af þeim fjölmörgu leiðum sem til eru til að losna við óvelkominn hárvöxt. Hér eru þær helstu taldar upp. HÁREYÐING MEÐ LEISERTÆKNI Laserlækning ehf. býður upp á með- ferð þar sem leiserljósi með nógu háum hita er beint að hársekkjum. Við það laskast þeir og komið er í veg fyrir endurnýjun án þess að skaða húð eða nærliggjandi vefi. Meðferðin virkar best á dökk og gróf hár sem hafa mikið magn af melaníni, því mettun melaníns er mikil í hári sem drekkur í sig ljós- geisla án þess að skaða ysta lag húð- arinnar. Mun lengri tíma tekur að eyða ljósum, fínum hárum. Talið er að um þriðja hvert hár losni í hverri meðferð og því þarf að koma nokkrum sinnum til að fá varanlegan árangur. Lengd með- ferðar ræðst af umfangi hárvaxtar, gróf- og þéttleika hársins og ekki síst háralit. RAFMAGNSHÁREYÐING MEÐ NÁL Í rafmagnsháreyðingu, sem framkvæmd er á ýmsum snyrtistofum, er örþunnri nál stungið ofan í hársekkinn og hleypt af straumi. Við það verður efnabreyting sem hefur áhrif á hársekkinn. Meðferðin getur verið seinleg og nokkuð mörg skipti þarf til að sjá árangur en lokaniðurstaðan er yfirleitt ágæt. Þó skal þess getið að meðferðin er nokkuð sársaukafull. IPLLJÓSTÆKNI Sumar snyrtistofur eru farnar að bjóða upp á háreyðingu með svokallaðri IPL-ljóstækni sem byggist á Xenon-ljósi. Ljósið er í handfangi sem beint er að því svæði sem á að meðhöndla. Bak við ljósið er spegill og filter fyrir framan það sem dregur úr hita ljóssins. Xenon-ljósið gefur frá sér hita, hárin draga í sig hitann frá ljósinu og draga hann niður í rót sem veldur að sögn varanlegri eyðingu á hárfrumum í hársekk. Endurtaka þarf meðferðina í sex til tíu skipti á fjögurra til sex vikna fresti. Ekki má plokka eða vaxa hárin burt meðan á meðferðinni stendur en það sama á við um leiser- og rafmangsháreyðingu. Þess má geta að IPL-ljóstæknin er einnig notuð til að losna við hrukkur, sprungnar háræðar, litabreytingar í húð og unglingabólur. Helsti kosturinn við IPL- meðferðina er að hún er sársaukalítil miðað við annað sem er í boði í varanlegri háreyðingu. VAX Vaxið er löngu orðin viðurkennd aðferð í baráttunni við hár á stærri svæðum. Það er talið endast í fjór- ar til sex vikur og hægt er að velja um vax í andliti, vax á líkama allt frá fótleggjum og nára upp í handar- krika og handleggi. Einnig er boðið upp á vax fyrir karlmenn á öxlum, baki og bringu. Sumstaðar er boðið upp á brasilíska vaxið og er þá oft mælt með að nota súkkulaðivax sem aðeins límist við hárin en ekki húð- ina, annars er notað rúlluvax og pottvax en það fer eftir húðsvæð- um og óskum viðskiptavinar. RAKSTUR Rakstur er yfirleitt ekki talinn lík- leg leið til árangurs. Þó að vissu- lega megi losna við hárin í stutta stund koma þau fljótt aftur og eru þá yfirleitt harðari, dekkri og ill- meðfærilegri en áður. Ef á annað borð á að raka, til að mynda hár á fótum, er gott að gera það eftir heitt bað eða sturtu þegar hárin eru mjúk. AFLITUN Þeir sem ekki þola háreyðingar- meðferðir geta látið bera efni í hár líkamans til að lýsa þau. Það er auðvitað skammtímalausn. - sg Draumurinn um hárleysið Hárlaus líkami virðist vera draumur margra kvenna. Til þess að ná því markmiði eru notaðar ýmsar aðferðir. NORDICPHOTOS/GETTY ● KRULLUR Krullað hár er víkjandi. Það þýðir að sá sem er með krullað hár hefur erft það frá báðum foreldrum sínum og er arfhreinn hvað þennan eiginleika varðar. Einstaklingar með slétt hár eru annaðhvort arfhreinir hvað slétt hár varðar og geta þá ekki eignast barn með krullur, eða þeir eru arfblendnir og geta þá eignast krullhært barn að því gefnu að hitt foreldrið sé einn- ig arfblendið hvað þennan eiginleika varð- ar. Ef báðir foreldrar eru með krullað hár er ómögulegt að barnið fái erfðaupplýsingar um slétt hár og því verður það með krullur. Heimild: visindavefur.is. ● VARAÞURRKUR Teskeið af hunangi og sykri þykir vera góð á þurrar og sprungnar varir en það hefur sýnt sig að þessi blanda mýkir bæði varirnar og fjarlægir dauðar húðfrumur. Þá þykir sumum sniðugt að búa til stærri blöndur og bera á hendur og fætur og þvo sér svo upp úr heitu vatni. Karlar eru einnig í auknum mæli farnir að nýta sér þær fjölmörgu háreyðíngarmeð- ferðir sem eru í boði. Brasilískt vax naut til dæmis, að minnsta kosti um tíma, mikilla vinsælda hjá íslenskum karlmönnum. NÝ SENDING FRÁ PARÍS Í FLASH

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.