Fréttablaðið - 09.09.2010, Side 31

Fréttablaðið - 09.09.2010, Side 31
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2010 Meiri orka og betri einbeiting! Upplagt í próflesturinn og vorverkin! Énaxin er jurtabætiefni með m.a. Rhodiolu og Schisandra sem eru frábærar til að bæta orku, einbeitingu og lífgleði. Fáanlegt bæði í mixtúru- og töfluformi. Upplagt að byrja á kúr og taka fyrst inn mixtúruna og viðhalda áhrifun¬um með töflunum. Það er hægt að losna við hita og svitakófin. Chello er með 3 mismunandi gerðir því engin kona er eins. Allar innihalda þær rauðsmára sem hefur hjálpað konum við að glíma við erfiðleika á breytingaskeiðinu. NutriLenk er gott bætiefni og frábært byggingarefni sem hefur hjálpað fjölmörgum Íslendingum að bæta liðheilsuna og aukið lífsgæðin þeirra til muna! Sore No More er náttúrulegt gel sem gott er að nota á tímabund- na verki og ónot. Gelið er án alkahóls, kemískra íblöndunar of rotvarnar efna. Hentar vel á bakverki, sinabólgur, tennisolnboga, frosna öxl, íþróttameiðsla og svo mætti lengi telja. Komdu við og prófaðu. Náttúrleg lausn fyrir konur á breytingarskeiðinu. Bætt liðheilsa, betri lífsgæði Verkjagelið sem virkar! Ofangreindar vörur fást í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna KYNNING ● ÞRJÚ LÖG Húð okkar er gerð úr þremur lögum. Ysta lagið, það sem við horfum á, nefnist húðþekja (e. epidermis), þar fyrir innan er leðurhúðin (e. dermis) og innsta lagið nefnist undir- húð (e. subcutaneous layer). Öll vinna þessi lög saman að því að halda húð okkur í góðu ástandi. Sýningin Heilsa, húð og hár verður haldin í Vetrargarðin- um í Smáralind laugardaginn 11. og sunnudaginn 12. sept- ember. Gengur vel er á meðal þeirra fyrirtækja sem þar munu kynna vörur sínar. „Við munum kynna okkar vöruúrv- al og verðum að auki með sýnis- horn af völdum vörum, sem hafa hlotið góðar viðtökur hérlend- is,“ segir Pétur Sigurbjartsson, sölu og markaðsstjóri Gengur vel sem verður með bás á sýningunni Heilsa, húð og hár í Smáralind um helgina. „Við verðum með kynningu á Nutrilenk sem er efni sem hefur verið notað við liðverkjum og hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og er eitt mest selda efnið við liðverkjum hér á landi sem og Norðurlöndunum. Efnin tvö eru kölluð Nutrilenk Gold og Nu- trilenk Active. Nutrilenk Gold er fyrst og fremst ætlað fólki sem þjáist af sliti í liðunum og virkar því sem byggingarefni fyrir lið- ina, á meðan Nutrilenk Active er ætlað sem eins konar smurefni fyrir stirða og auma liði sem er algengt vandamál hjá íþróttafólki og einnig þeim sem eldri eru þar sem liðvökvinn minnkar oft með árunum.“ Énaxin er önnur vara sem Geng- ur vel verður með á sýningunni í Smáralind, efni sem er ætlað að auka orku og skerpa á einbeit- ingu. „Þetta er upplagt fyrir þá sem vilja auka orkuna á náttúru- legan hátt. Énaxin kemur bæði í töflum og mixtúru og inniheldur ýmsa jurtakjarna á við Rhodiola eða burnirót og Schisandra Chins- esis. Þess má geta að Énaxin er mjög frábrugðið kaffi þar sem það keyrir ekki upp taugakerfið eins og kaffi gerir, heldur gefur jafna orku yfir daginn. Gestir sýningar- innar munu fá að smakka og sann- reyna virkni Énaxin.“ Þá segist Pétur ætla að kynna verkjagelið Sore no more sem henti þeim sem glíma við hvers kyns verki, bólgur og meiðsl. „Þeir sem glíma við bak- og hálsmeiðsli hafa til dæmis verið að nota það og eru ánægðir með virkni þess. En það má líka benda á að Sore no more inniheldur engin aukaefni, á við Paraben eða önnur kemísk íblönd- unarefni sem talin eru óæskileg í dag.“ Loks nefnir Pétur til sögunnar fæðubótaefni fyrir konur, Chello, og gefur þá samstarfskonu sinni, Ástu Kjartansdóttur, orðið. „Við erum með þrjár gerðir af Chello sem er náttúrulegt bætiefni fyrir konur á breytingarskeiðinu og hefur reynst mörgum konum vel við að fást við kvilla eins og hita og svitakóf. Jurtirnar í Chello, meðal annars Dong Quai, rauðsmári, vallhumall, kamilla og soja, hafa verið notaðar í gegnum árhund- ruðin. Náttúrulegar lausnir eru að verða vinsælli með hverju árinu. Konur eru farnar að velja náttúru- legar lausnir í miklu meira mæli en áður með frábærum árangri.“ Náttúrulegar lausnir Pétur Sigurbjartarson og Ásta Kjartansdóttir hjá Gengur vel verða með bás á sýningunni Húð, hár og heilsa í Smáralind. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ● MESTA FJÖLBREYTNIN Í NORÐUR-AMERÍKU Hár- gerð fólks er afar mismunandi eftir heimshlutum. Á sumum svæð- um er hún nokkuð einsleit en á öðrum er breytileikinn mikill. Fólk af asískum uppruna er með þétt, svart og glansandi hár. Hver fullvaxta Asíubúi er að meðaltali með í kringum 150 þúsund hár á höfðinu og getur oft verið nokkuð vandasamt að greiða í gegnum það. Góð hárnæring er því oftar en ekki nauðsynleg. Skotar eru gjarnan rauðhærðir og eru hárstráin ívið þykkari en á Asíubúum. Evrópubúar eru ýmist dökkhærðir eða ljóshærðir og geta bæði skartað krullum og rennisléttu hári. Hárið er yfirleitt léttara en á Asíubúum og þéttleikinn er í kringum 90 þúsund hár á höfði. Afríkubúar eru með svart, þétt og krullað hár. Hárstráin sjálf eru fremur þunn og flöt sem skýrir af hverju þau krullast upp í loftið. Hárið þarf raka og ber að varast að greiða það um of enda slitnar það nokkuð auðveldlega. Krullujárn og hárblásara ætti að forðast Í Norður-Ameríku má sjá hvað mesta fjölbreytni í háralit fólks enda hafa hin ólíku þjóðarbrot blandast sökum mikils fjölda innflytjenda. - ve

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.