Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 32
 9. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● húð, hár og heilsa ● AUGNUMHIRÐA Baug- ar undir augum geta verið hvimleitt vandamál og lýti að sumra mati. Til eru ýmis ráð við því. Þannig er talið gagn- legt að skera niður þunn- ar sneiðar af hráum kartöfl- um og leggja yfir augun og geyma þar í minnst 20 mín- útur. Endurtaka svo leikinn í nokkra daga þar til baugarn- ir eru á bak og burt. Agúrkusneiðar og blautir tepokar eru taldir koma að svipuðu gagni. Húðlæknar eru almennt á því að stór hluti, jafnvel allt að 90 pró- sent þeirra breytinga sem verða á húðinni með aldr- inum, sé til kominn vegna skemmda af völdum sólar- ljóss. Þannig er ekki óalgengt að húð sem hefur verið mikið í sólarljósi sé með fleiri og dýpri hrukkur auk þess sem ójöfn lita- dreifing veldur litaskell- um. Þá hafa teygjanlegar prótíntrefjar í leðurhúð húðar sem hefur orðið fyrir miklum ljósskemmdum þykknað og flækst saman auk þess sem miklu minna er af kollageni en í húð sem hefur verið lítið í sólarljósi. Heimild: www.visindavefur.is Sólarljósið veldur hrukkum og skellum Kemur út laugardaginn 11. september Sérblaðið Heimili og hönnun Auglýsendur vinsamlegast hafið samband: Hlynur Þór • hlynurs@365.is • sími 512 5439 Daði Hendrikusson hjá Kompaníinu og Nína Kristjándsóttir hjá Mojo Senter eru sammála um að hártískan í vetur verði rómantísk, rokkuð og jafn vel örlítið pönkuð. Hártískan hefur að undanförnu einkennst af stuttum og áþekkum herra- og dömuklippingum undir áhrifum frá svokallaðri rockabilly-tísku, með rómantísku ívafi. Fátt bendir til að breyting verði þar á að sögn Nínu Kristjándsóttur hjá hárgreiðslustofunni Mojo Senter. „Það hefur verið vinsælt hjá báðum kynjum að vera með stutt hár, rakað í vöngum og svo síðara hár ofan á, sem einkennist af mjúkum línum. Allt stefnir í að þessar klippingar verði áfram vinsælar og því um að gera að leika sér með útfærslur, enda misjafnt hvað hentar hverjum og einum.“ Undir þau orð tekur Daði Hendrikusson hjá Kompaníinu. „Við munum áfram sjá einhverjar útfærslur af þessu.“ Nína bendir jafnframt á að hvað millisítt og sítt hár varði sé best að leyfa hárinu að vera sem náttúruleg- ustu. „Það er kominn tími til að leggja sléttujárninu og leyfa hárinu að vera sem eðlilegast, hvort sem það er slétt, liðað eða krullað.“ Náttúrulegir háralitir njóta, að sögn Daða, jafnframt mikilla vinsælda en á Komp- aníinu eru litasjampó sérblönduð fyrir viðskiptavin- ina. „Við blöndum litasjampó frá Pact sem draga fram eiginleika hvers háralitar og gljáa ásamt því að ljá hárinu fallegri tóna. Aðferðin laðar það besta fram hjá hverjum og einum.“ - rve Rokkað og rómantískt í vetur Stutt og platínum ljóst hár í anda Pink. Kompaníið. Hér er litasjampó frá Pact notað til að draga fram fallegan háralit. Kompaníið.Herraklipping undir áhrifum Inglorious Bastards. Mojo Senter. FR ÉT TA BL A Ð IÐ /P JE TU R FR ÉT TA BL A Ð IÐ /S TE FÁ N FR ÉT TA BL A Ð IÐ /P JE TU R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.