Fréttablaðið - 09.09.2010, Síða 42
26 9. september 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
Fólk opinberar misjafnleg viðhorf sín til samkynhneigðar þessa dagana eftir
að Jenis av Rana, þingmaður og formaður
Miðjuflokksins í Færeyjum, vildi ekki setj-
ast til borðs með íslenska forsætisráðherr-
anum og konu hennar. Flestir Færeyingar
dauðskammast sín og segja viðhorf Jenis av
Rana alls ekki endurspegla viðhorf Færey-
inga almennt. Þeim svíður að fjallað sé um
málið í fjölmiðlum, sérstaklega í dönskum
fjölmiðlum og vilja ekki sýnast þröngsýn og
forpokuð smáþjóð í augum stóra bróður.
ÞEGAR Færeyingar hlupu undir bagga og
lánuðu okkur fullt af peningum eftir að við
höfðum gloprað niður öllum okkar aurum
og meiru til, voru þeir svo sannarlega
ekki forpokuð smáþjóð í okkar augum.
Sjálfsagt þótti einhverjum Íslendingn-
um erfitt að viðurkenna að litlu frænd-
ur okkar væru meiri menn en margur.
Hlakkar jafnvel í þeim núna að geta
aftur hrist hausinn yfirlætislega
yfir þessum frændum okkar,
hvað þeir geta verið gamal-
dags, þröngsýnir og púkó.
ÞAÐ finnast þó hér einstakl-
ingar sem deila viðhorfum
Jenis av Rana. Það sýna stuðn-
ingsbréf sem nokkrir Íslend-
ingar hafa sent Jenis og hann
lesið upp og látið birta í fjölmiðl-
um, nafnlaus reyndar. Þar vitnar
fólk í Biblíuna og ber fyrir sig orði Guðs.
Talar um að íslenskt samfélag sé á vonarvöl
vegna kynvillu! Þrátt fyrir að hér sé loksins
staðfest með lögum að samkynhneigðir hafi
jafnan rétt til að ganga í heilagt hjónaband
er hér enn að finna þröngsýnt fólk.
VIÐ höfum merkilega lítið um það að segja
hver sest í háttvirt þingsæti í lýðræðisrík-
inu Íslandi enda kjósum við flokka, ekki
fólk þangað inn. Það situr því alls konar fólk
á þingi. Misjafnlega innrætt með misjafnar
skoðanir, misjafnlega tengt og með misjafn-
an feril að baki.
EINHVERJIR íslenskir ráðamenn hafa sagt
álit sitt á upphlaupi Jenis av Rana. Utan-
ríkisráðherra sagði ummælin vera Jenis til
skammar. Fjármálaráðherra sagði þau dap-
urleg og varpa skugga á opinbera heimsókn
forsætisráðherrans til Færeyja. Einn af
þeim háttvirtu þingmönnum sem tjáðu sig
um orð Jenisar sagði þó eitthvað á þá leið að
virða skyldi skoðanir Jenisar av Rana, hann
væri grundvallarmaður!
JENIS av Rana er í forsvari fyrir hinn
kristilega arm í Færeyjum og því mætti
ímynda sér að sá háttvirti hefði meint
að Jenis sé maður hinna 10 grundvallar-
reglna kristninnar, boðorðanna tíu. Sjálfur
hefði hann þá jafnvel mátt skerpa á boðorði
númer 7 áður en hann taldi sig eiga erindi
á þing.
Misjafn situr á þingi
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Það er ekki séns
að ég fari út á
þennan völl ef
þú, þú og þú
ætlið að vera í
sama dressi
og ég!
Ástæða þess að
kvennafótbolti
er ekki eins
vinsæll og hann
gæti verið
Gaman
í gær?
Njaa...
bara frekar
rólegt.
Drakkstu
mikið?
Nei, nei, nei!
Ég var bara
rólegur á því!
Kjaftæði!
Kebableifarn-
ar á bolnum
þínum segja
aðra sögu!
Ókei,
ég var
á rass-
gatinu!
Ég fann líka
gular baunir
og kálblað í
buxnavösun-
um þínum!
Og spark-
ar svo í
liggjandi
mann!
Hvað nú? Ég fékk ábendingar hjá Birgittu um
paraframmistöðu
mína.
Og hvað
sagði hún?
Það sama
og
venjulega.
Ekki gera það
sem þú gerir,
gerðu þver-
öfugt við það.
Meistari
þrautseigj-
unnar!
Af hverju
ekki?
Þetta er bara rugl, þú getur
ekki gifst manni sem þú
hefur aldrei hitt!
Ókei, þið eigið kannski
margt sameiginlegt og
hafið sömu lífsskoðanir
en þú hefur aldrei verið
í sama
herbergi og
þessi náungi!
ROP!
Ertu ennþá
hérna?
Og ókosturinn
við það er...?
Árbæjarkirkja
Föstudaginn 10. september
hefst vetrarstarf Barnakórs
Árbæjarkirkju.
Öll börn á aldrinum 7-14 ára eru
velkomin í kórinn en kennt verður í
tveimur deildum, yngri og eldri deild.
Stjórnandi kórsins í vetur er
Margrét Sigurðardóttir.
Innritun og kynning á kórnum fer fram í safnaðarsal kirkjunnar
föstudaginn 10. september klukkan 14.30.
...ég sá það á Vísi
Notaðu öfluga og ókeypis leit á Vísi til að finna allt sem þú
þarft að vita um stjörnurnar í Hollywood, vini þeirra, gæludýr
og samkvæmislíf – eða bara eitthvað allt annað. Leitaðu að
efni úr Fréttablaðinu og af Vísi. Það eina sem þarf er leitarorð.
Vísir er með það.
„Hollywood“