Fréttablaðið - 09.09.2010, Page 44
28 9. september 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Bókin Ranghugmyndin um
guð eftir Richard Dawkins
kom út í íslenskri þýðingu
í byrjun mánaðar. Bókin
hefur verið afar umdeild
frá því hún kom fyrst út
2006 en í henni ræðst Daw-
kins á hugmyndina um guð
og æðri máttarvöld.
Richard Dawkins er líffræðingur
og prófessor við Oxford-háskóla í
Englandi og hafði skrifað ýmis rit
og gert sjónvarpsþætti um þróunar-
líffræði og vísindi áður Ranghug-
myndin um guð kom út síðla árs
2006, þar sem hann hjólar í trúar-
brögð og hugmyndina um yfirnátt-
úruleg máttarvöld. Bókin hefur selst
í tveimur milljónum eintaka um
allan heim og vakið miklar deilur
um trúmál.
Torþýdd bók
Bókaútgáfan Ormstunga gefur bók-
ina út á Íslensku út en Reynir Harð-
arson, sálfræðingur og formað-
ur Vantrúar, félags trúleysingja á
Íslandi, þýðir. Hann hefur haft hug
á að þýða bókina allar götur síðan
Dawkins las valda kafla úr henni
á ráðstefnu trúleysingja á Íslandi
sumarið 2006.
„Við sáum strax að þetta var feit-
ur biti,“ segir Reynir, „og datt strax
í hug að þýða hana yfir á íslensku.
Árið eftir fékk Ormstunga leyfi
fyrir þýðingunni og þá stóð ekkert í
vegi fyrir að hefjast handa.
Þetta er hins vegar afskap-
lega torþýdd bók; Dawkins hefur
gaman af orðskrúði og vísar í ýmis
fræði máli sínu til stuðnings; vís-
indi, heimspeki, guðfræði og svo
framvegis.“
Reynir segir að helstu styrkleikar
röksemdafærslu Dawkins séu þekk-
ing hans á líffræði og þróunarkenn-
ingunni. „Hann er fyrst og fremst
raunvísindamaður og nálgast við-
fangsefnið sem slíkur, fremur en
heimspekingur eða guðfræðingur.
Bókin nýtur fyrst og fremst góðs
af því.“
Mála skrattann á vegginn
Mikill styr hefur staðið um bók-
ina frá því að hún kom út. Að mati
Reynis hefur Dawkins orðið að eins
konar Grýlu í augum trúmanna.
„Dawkins var mjög þekktur á sínu
Grýla í augum trúaðra
REYNIR HARÐARSON Telur bók Dawkins eiga sérlega mikið erindi við Íslendinga um
þessar mundir þegar umræða um trúmál og aðskilnað ríkis og kirkju eru ofarlega á
baugi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Richard Dawkins er afar umdeildur maður og ekki aðeins í
röðum trúaðra. Síðast í gær ritaði Jonathan Jones, pistlahöf-
undur breska dagblaðsins Guardian, grein þar sem hann
gagnrýnir Dawkins fyir að hafa misst tökin á vísindalegri og
fræðilegri nálgun á hugmyndir um trúarbrögð. Þess í stað
einkennist málflutningur hans af sjálfbirgingslegri þrætu-
bókarlist, þar sem markmiðið sé ekki að upplýsa heldur að
sannfæra.
Reynir bendir á að Dawkins svari sjónarmiðum sem þessum í kafla í bók-
inni, þar sem hann ræðir hvers vegna hann kýs að vera herskár í málflutningi.
Þegar trúmál eru annars vegar er eins og það sé ætlast til þess að allir tipli á
tánum,“ segir Reynir. „Dawkins tók þá afstöðu að tipla ekki á tánum heldur
tala hreint út. Fyrir vikið kann hann að virðast óvæginn, en þegar betur er að
gáð er ádeila hans ekkert óvægnari en gagnrýni stjórnmálamanna á andstæð-
inga. Trúarbrögð eru hins vegar viðkvæmt málefni sem auðvelt er að valda
ágreiningi útaf. Það er meðal annars hluti af gagnrýni hans.“
TIPLAR EKKI Á TÁNUM
sviði áður en hann skrifaði bókina
og starf hans fólst meðal annars í
að kynna vísindi fyrir almenningi.
Það var því mikið áfall fyrir marga
trúaða að maður af hans kalíberi
skyldi kveða svo fast að orði.“ Fyrir
vikið hafi andstæðingar Dawkins
málað hann dekkri litum en tilefni
sé til.
„Það á til dæmis við um hjónin
Alister og Joanna McGrath, sem
helguðu honum heila bók; Ranghug-
mynd Richards Dawkins. Í þeirri
bók fara höfundarnir beinlínis með
rangt mál og gera Dawkins upp
meiningar sem hann hefur aldrei
sett fram. Andstæðingar Dawkins
eru því gjarnir á að mála skrattann
á vegginn; búa til strámann sem
þeir síðan ráðast gegn.“
Reynir segir bókina eiga brýnt
erindi við Íslendinga um þessar
mundir þegar umræða um trúmál
og aðskilnað ríkis og kirkju er ofar-
lega á baugi.
„Ég býst fastlega við því að við
búum til einhvers konar dagskrá
eða viðburð í kringum bókina, sem
innlegg í þá umræðu.“
bergsteinn@frettabladid.is
Skáldsaga Hallgríms Helga-
sonar, Tíu ráð til að hætta að
drepa fólk og byrja að vaska
upp, hefur verið tilnefnd til
verðlauna fyrir „forvitnileg-
asta bókatitilinn“ á þýska
bókamarkaðnum 2010.
Bókin heitir á þýsku Zehn
Tipps, das Morden zu beend-
en und den Abwasch zu be-
ginnen. Almenningur getur
kosið bókatitla á heimasíð-
unni kuriosesterbuchtitel.de.
Bækurnar í sex efstu sætun-
um fara fyrir dómnefnd sem
velur vinningshafann.
Þegar þetta er skrifað eru
Tíu ráð í fjórða sæti en kosn-
ingin stendur til 20. septem-
ber.
Þess má geta að sigur-
vegarinn í fyrra var titill-
inn Lífið er enginn Waldorf-
skóli.
Tíu ráð tilnefnd til
þýskra verðlauna
HALLGRÍMUR HELGASON Titill síðustu skáldsögu
hans þykir með þeim forvitnilegri í Þýskalandi.
Þórarinn Eldjárn og
Sigurður Árnason verða
með uppistand í Safn-
arahorni Gerðubergs
á sunnudag, á síðasta
degi sýningar þar sem
fjölbreytt eldhúsáhöld
úr þeirra eigu hafa verið
til sýnis.
Sigurður og Þórarinn
hafa lengi verið félagar
og keppinautar í söfnun
sinni en á sýningunni
sameinuðu þeir krafta
sína.
Sum áhöldin á sýning-
unni eru kunnugleg og
til á flestum heimilum
en önnur eru framandi
og erfitt að ímynda sér
notagildi þeirra. Skanka-
skaft, eggjaklippur,
maís hefill og bananahylki
eru meðal þess sem fyrir
augu ber, auk þess sem
nöfnum eldhúsáhalda
eru gerð skil á vegg-
spjaldi. Dæmi um heiti
þeirra eru; flagari, merjari,
berjari, slítari, tætari,
þeytari eða afskeri,
alskeri, aðskeri, úrskeri,
ískeri, fráskeri, viðskeri,
hjáskeri
Uppistand Þórarins og
Sigurðar hefst klukkan 14.
Hjáskerar, ískerar og flagarar
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Borða, biðja, elska - kilja
Elizabeth Gilbert
Barnið í ferðatöskunni - kilja
Lene Kaaberbol/Agnete Frills
Ranghugmyndin um guð
Richard Dawkins
Matsveppir í náttúru Íslands
Ása Margrét Ásgrímsdóttir
Vitavörðurinn - kilja
Camilla Läckberg
Gásagátan - kilja
Brynhildur Þórarinsdóttir
Spói - Ólafur Jóhann Sigurðs-
son/Jón Baldur Hlíðberg
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
01.09.10 - 07.09.10
Eyjafjallajökull
Ari Trausti og Ragnar Th.
Ástandsbarnið - kilja
Camilla Läckberg
Íslensk-dönsk/Dönsk-
íslensk vasaorðabók
Klukkan 16
Laugardaginn 11. september
halda Einar Kárason rithöfundur
og William R. Short, fræðimaður
og rithöfundur frá Bandaríkjun-
um, fyrirlestra í Landnámssetr-
inu í Borgarnesi. Short fjallar
um landnámsöldina á Íslandi
og nýútkomna bók sína „Ice-
landers in the viking age“. Einar
Kárason ræðir hins vegar fyrstu
þætti Egilssögu. Aðgangur er frír
meðan húsrúm leyfir.
> Ekki missa af ...
Samstöðu- og styrktartón-
leikum fyrir íbúa Gasa á
tónleikastaðnum Sódómu
Reykjavík í kvöld. Fram koma
fimm hljómsveitir: Útidúr, For
a Minor Reflection, Endless
Dark, Orphic Oxtra og Sykur.
Félagið Ísland-Palestína
stendur fyrir tónleikunum sem
hefjast klukkan 21.