Fréttablaðið - 09.09.2010, Side 48
32 9. september 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Framboð af tónleikaupptökum hefur aukist mikið síðustu ár. Sjó-
ræningjaútgáfur rata núna undantekningarlítið á netið þar sem auð-
velt er að nálgast þær og vefir eins og Wolfgangs Vault og Internet
Archive bjóða sömuleiðis upp á mikinn fjölda tónleika. Það hefur
líka færst í aukana að gamlar og rómaðar tónleikaupptökur sem
hafa gengið á milli aðdáenda
í misjöfnum gæðum fái opin-
bera útgáfu. Það á t.d. við um
tónleikana í Bootleg seríu Bob
Dylan og Santa Monica tón-
leika David Bowie frá 1972.
Og það er reyndin með tón-
leika Elvis Costello & the Att-
ractions frá Hollywood High
School 4. júní 1978 sem voru
loks gefnir út í heild sinni fyrir
nokkrum mánuðum.
Þrjú lög af þessum sömu
tónleikum voru á EP-plötu
sem fylgdi fyrstu eintökun-
um af Armed Forces og nokk-
ur þeirra voru sem aukalög á viðhafnarútgáfu þeirrar plötu fyrir
nokkrum árum. Nú koma hins vegar loksins öll 20 lögin út í fínum
gæðum. Og hvílíkir tónleikar! Þeir voru teknir upp á hápunkti fer-
ils Costello með hljómsveitinni The Attractions, mitt á milli útkomu
snilldarplatnanna This Year‘s Girl og Armed Forces. Lagalistinn
er algjört dúndur (lög af fyrrnefndum plötum, auk fyrstu Costello-
plötunnar, My Aim Is True og lagsins Stranger in the House sem
Costello samdi fyrir Rachel Sweet). Maður heyrir líka vel hvað Att-
ractions var svínslega þétt band. Krafturinn og spilagleðin eru í
hámarki. Og Costello sjálfur er auðvitað magnaður lagasmiður og
flytjandi.
Tónleikarnir í Hollywood High eru númer tvö í nýrri röð tónleika-
platna með Costello sem hefur hlotið nafnið The Costello Show. Nú
bíður maður bara spenntur eftir næstu útgáfum.
Heitir á hápunkti ferilsins
ELVIS COSTELLO Tónleikar Elvis Costello &
the Attractions frá 4. Júní 1978 eru loksins
komnir út í heild sinni.
> Í SPILARANUM
Interpol - Interpol
Mosi frændi - Grámosinn gólar
Underworld - Barking
The Charlatans - Who We Touch
Örför - Örför
INTERPOL ÖRFÖR
Hljómsveitin The XX hlaut
hin virtu Mercury-verðlaun
í Bretlandi fyrir samnefnda
plötu sína sem kom út í ágúst
í fyrra. Hún lenti ofarlega á
mörgum árslistum um síðustu
áramót, þar á meðal á Frétta-
blaðinu.
„Við áttum ekki von á
þessu,“ sagði Oliver Sim úr
The XX. „Þetta ár hefur
verið ótrúlegt. Það er eins og
við höfum vaknað á hverjum
degi og eitthvað spennandi
hafi verið í vændum sem við bjuggumst
ekki við.“ Söngkonan Romy Croft lagði til
að sveitin myndi kaupa eigið hljóðver fyrir
verðlaunaféð, sem nam um 3,6 milljón-
um króna. „Við tókum þessa
plötu upp í hljóðveri sem var
áður bílskúr og var jafnstórt
og baðherbergi,“ sagði hún.
„Við vorum mjög ánægð með
að fá að nota hljóðverið en ég
held við yrðum mjög ánægð
með okkar eigin hljóðver þar
sem við gætum prófað okkur
áfram.“
Á meðal annarra tilnefndra
voru Paul Weller, sem þótti lík-
legastur til sigurs, rapparinn
Dizzee Rascal og Biffy Clyro.
Hljómsveitirnar Elbow, Arctic Monkeys og
The Klaxons hafa allar unnið verðlaunin og
jókst sala á plötunum þeirra mjög í kjölfar-
ið.
Hljóðver fyrir verðlaunaféð
THE XX Hljómsveitin The XX
hlaut hin virtu Mercury-verð-
laun.
Önnur plata Grinderman
kemur út á þriðjudaginn.
Hrátt og kröftugt rokkið
er enn í fyrirrúmi ásamt
ögrandi og kynferðislegum
undirtóni.
Önnur plata hljómsveitarinn-
ar Grinderman, sem nefnist ein-
faldlega Grinderman 2, kemur út
á þriðjudaginn. Fyrsta plata sveit-
arinnar kom út fyrir þremur árum
og hlaut fínar viðtökur gagnrýn-
enda, enda hafði hún að geyma
hrá og kröftug rokklög á borð við
Get It On og No Pussy Blues þar
sem kynferðislegur undirtónninn
var aldrei langt undan.
Grinderman er skipuð fjórum
meðlimum úr sjö manna bandinu
Nick Cave And The Bad Seeds,
eða þeim Warren Ellis, Martyn
Casey, Jim Sclavunos og að sjálf-
sögðu forsprakkanum Nick Cave.
Hljómsveitin varð til árið 2005
eftir langa tónleikaferð The Bad
Seeds til að fylgja eftir tvöföldu
plötunni Abattoir Blues/The Lyre
of Orpheus. Cave byrjaði að semja
lög á gítar, sem hann hafði fram
að því vanrækt við lagasmíðar
sínar. Spilamennskan var hrá og
áhugaverð og í framhaldinu fóru
Cave og hinir þrír í hljóðver og
tóku upp frumburðinn Grinder-
man.
Hljómsveitin fylgdi plötunni
eftir með tónleikaferð en tók sér
hlé þegar upptökur og ferðalög í
kringum fjórtándu hljóðsvers-
plötu The Bad Seeds, Dig, Laz-
arus, Dig!!!, fóru af stað. Eftir
að túrnum í kringum hana lauk
haustið 2008 hófust upptökur á
næstu Grinderman-plötu og þeim
lauk í ágúst í fyrra. Upptökustjóri
var hinn sami og á þeirri fyrstu,
Nick Launay, góður vinur þeirra
félaga. Þar er krafturinn enn til
staðar eins og heyra má á fyrsta
smáskífulaginu Heathen Child.
Gallsúrt og flippað myndbandið
við lagið er einnig skemmtilega
hallærislegt.
„Þegar við gerðum báðar plöt-
urnar settumst við niður í fimm
daga og byrjuðum að spila saman
án þess að vera með margar fast-
mótaðar hugmyndir,“ segir fiðlu-
og gítarleikarinn Warren Ellis, í
viðtali við áströlsku síðuna The
Vine. „Á fyrstu plötunni vorum
við að reyna að finna rétta hljóm-
inn fyrir bandið. Við höfum spilað
lengi saman í Bad Seeds og gert
ýmsa hluti saman en okkur lang-
aði að athuga hvað við kæmumst
upp með mikið, bara við fjórir. Við
notuðum sömu aðferðina á ann-
arri plötunni. Við tókum bara upp
stanslaust í fimm daga en reynd-
um síðan að finna hugmyndir sem
okkur fannst ferskar.“
Hann bætir við að efnið sem
hafi litið dagsins ljós hafi sumt
verið fínt en annað hreint út sagt
skelfilegt. „Þessi aðferð hentar
okkur mjög vel. Það er gaman
að hafa ekki úr neinu að moða og
reyna síðan að búa til eitthvað
nýtt.“ freyr@frettabladid.is
Okkur langaði að at-
huga hvað við kæm-
umst upp með mikið, bara
við fjórir.“
WARREN ELLIS
> Plata vikunnar
Miri - Okkar
★★★★
„Á heildina litið frábær plata.
Nýtur sín best á miklum styrk í
góðum græjum.“ - TJ
Fyrsta sólóplata Brandons Flowers,
söngvara The Killers, kemur út í
næstu viku. Hún nefnist Flamingo
og er nefnd eftir götu í heimaborg
hans Las Vegas. „Ég ólst upp þarna
og þessi staður er mjög nærri hjarta
mínu,“ segir Flowers um Las Vegas.
„Mér finnst mér bera skylda til að
greina frá því hvaðan ég er og verja
mín heimkynni. Þetta er staður sem
margir fyrirlíta en ég elska hann.
Þegar ég ólst þarna upp gátu marg-
ir ekki beðið eftir því að flytja í
burtu en mér fannst það alltaf und-
arlegt.“
Tíu lög eru á Flamingo, flest
poppaðri en The Killers hafa sent
frá sér, þar á meðal smáskífulagið
The Crossfire. Og að sjálfsögðu eru
melódíurnar á sínum stað. Flowers
samdi lögin á eins og hálfs árs tón-
leikaferðalagi The Killers til að
fylgja eftir plötunni Day And Age.
Eftir hana vildu hinir meðlimirnir
taka sér gott frí en Flowers var ekki
á þeim buxunum og ákvað að nota
lögin í eigin sólóplötu í stað þess að
geyma þau fyrir The Killers. „Ég er
stanslaust að semja lög og mig lang-
aði að fylgja þessum lögum eftir. Ég
er líka hræddur um að ef ég hvíli
mig í eitt ár gæti það farið illa með
mig,“ sagði hann. „Ég hefði vilj-
að hafa þetta Killers-plötu en hún
hefði orðið allt öðruvísi ef ég hefði
gert hana með hljómsveitinni. The
Killers er ekki hætt og það er ekki
hægt að álasa strákunum fyrir að
hafa tekið sér hlé eftir að hafa verið
á fullu síðan 2003.“ - fb
Flowers syngur um Las Vegas
BRANDON FLOWERS Söngvari The
Killers gefur út sína fyrstu sólóplötu í
næstu viku.
Hráir, kraftmiklir og súrir
GRINDERMAN Rokkararnir í Grinderman senda í næstu viku frá sér sína aðra plötu.
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
Dæmi um það sem
tekið er fyrir í náminu:
Lita- og línufræði
Tónalgreining
Vaxtarbygging
Heitt og kalt rými
Stórt og lítið rými
Uppröðun hluta
Stílistun á:
Baðherbergi
Svefnherbergi
Barnaherbergi
Eldhúsi
Garðhýsi
Stofu
Og margt fleira.
The Academy of Colour and Style býður nú upp á nám í
innanhússtílistun. Farið er í helstu grunnþætti í lita- og
línufræði. Einnig er kennt að meta stíl út frá persónunni
sjálfri. Þá er hún greind út frá vaxtarbyggingu og
litgreiningu en þær upplýsingar segja mikið til um hvernig
einstaklingur vill hafa sitt nánasta umhverfi eins og liti og
stíl. Nemendur vinna svo verkefni í hverri viku og taka þá
fyrir stílistun á stofu, baðherbergi, barnaherbergi o.fl.
Gestafyrirlesarar koma í tíma og kynna fyrir nemendum
ýmis atriði sem koma þeim til góða.
Hver önn tekur þrjá mánuði. Kennsla fer fram í
Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101
Anna F. Gunnarsdóttir
Stílisti
Helga Sigurbjarnadóttir
Innanhúsarkitekt
Þorsteinn Haraldsson
Byggingafræðingur
INNANHÚSSTÍLISTANÁM