Fréttablaðið - 09.09.2010, Page 53

Fréttablaðið - 09.09.2010, Page 53
FIMMTUDAGUR 9. september 2010 37 Rokksveitin Deep Jimi & the Zep Creams heldur tónleika í tilefni af útgáfu á fjórðu plötu sinni, Bett- er When We´re Dead, á Faktorý í kvöld. Deep Jimi var stofnuð fyrir um tuttugu árum og hefur alltaf sótt mikið í sarp sjöunda áratugarins, sérstaklega hipparokks í þyngri kantinum. Þorvaldur Bjarni Þor- valdsson var upptökustjóri nýju plötunnar, þar sem vandað var meira til verks en oft áður. Ekki eru margir tónleikar fyrirhugaðir á næstunni. Sveitin leggur þó leið sína norð- ur yfir heiðar í byrjun október auk þess sem hún spilar á Airwaves- hátíðinni seinna í sama mánuði. „Námið er svo dýrt að námslánið dugar ekki fyrir skólagjöldunum, það er nú bara svo einfalt,“ segir Daníel Smári Hallgrímsson en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrr í sumar komst hann inn í þekkt- an tónlistarskóla í Los Angeles þar sem hann mun leggja stund á nám í gítarsmíði. Námið er dýrt og Lánasjóður íslenskra námsmanna dekkar ekki allan kostnaðinn sem náminu fylgir. „LÍN er að lána eins mikið og það hefur leyfi fyrir og þó að ég sé búinn að vera að safna í allt sumar dugar það ekki til,“ segir Daníel og bætir við að hann vanti nokkra hundrað þúsund kalla áður en hann geti haldið af stað. Daníel hefur því brugðið á það ráð að skipuleggja styrktartónleika sem fara fram í kvöld á skemmti- staðnum Venue og byrja klukkan 21.30. Það kostar 1.000 krónur inn og ágóðinn af tónleikunum rennur beint í skólasjóð Daníels. „Mér fannst þetta sniðug hug- mynd þar sem ég þekki fullt af yndislegu fólki og hljómsveitum sem eru til í að hjálpa mér að láta þennan draum rætast,“ segir Dan- íel en hljómsveitirnar sem koma fram í kvöld eru MOY, Blæti, Two Tickets to Japan, Mikado og For a Minor Reflection. Daníel er ein- mitt bassaleikari í hljómsveitinni Mikado en hann stefnir á að fara utan 19. september. - áp Safnar fyrir skólagjöldum Natalie Portman er þessa dagana orðuð við aðalhlutverkið í geim- mynd Alfonso Cuaron, Gravity. Upphaflega stóð til að Angelina Jolie léki umrætt hlutverk og svo hafði verið rætt við Rachel Weisz og Scarlett Johansson. En nú þykir Portman líklegust til að hreppa hnossið. Leikkonan hefur fengið lofsamlega dóma fyrir frammistöðu sína í Black Swan og eru fjölmiðlar þegar farnir að gera að því skóna að Óskar- inn kunni að vera innan seilingar. Þá mun Portman birtast í stórri myndasögumynd næsta sumar þegar hún leikur ástkonu þrumu- guðsins Þórs. Portman í stað Jolie EFTIRSÓTT Natalie Portman er ákaflega eftirsótt um þessar mundir. Tónleikar verða haldnir í Frum- leikhúsinu í Keflavík í kvöld og annað kvöld til minningar um ungu drengina tvo frá Reykja- nesbæ, þá Guðmund Jóhannsson og Sigfinn Pálsson, sem létust úr krabbameini fyrr á árinu. Í kvöld koma fram Of Mon- sters & Men, sem sigraði í Músíktilraunum fyrr á árinu, Valdimar, Sky Reports og Ást- þór Óðinn. Annað kvöld stíga á svið Klassart, Lifun, Reason to Believe og Heiður. Fyrirtækin Grágás, Hljóðkerfi.is og Geim- steinn eru á meðal styrktaraðila. Aðgangseyrir er 1.000 krónur og rennur allur ágóðinn til Styrktar- félags krabbameinssjúkra barna. Tónleikar í Frumleikhúsi Deep Jimi fagnar DEEP JIMI Rokksveitin Deep Jimi & The Zep Creams spilar á Faktorý í kvöld. LÁNIÐ DEKKAR EKKI SKÓLAGJÖLDIN Daníel Smári Hallgrímsson heldur tón- leika á Venue í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.