Fréttablaðið - 09.09.2010, Side 56
9. september 2010 FIMMTUDAGUR40
sport@frettabladid.is
UTAN VALLAR
Henry Birgir
Gunnarsson
segir sína skoðun
henry@frettabladid.is
694 DAGAR síðan íslenska landsliðið vann alvöru landsleik undir stjórn Ólafs Jóhann-essonar. Ísland fær næst tækifæri til þess að vinna alvöruleik er Portúgal kemur í
heimsókn í október.
FÓTBOLTI Þrátt fyrir ágæta tilburði
á köflum situr íslenska landslið-
ið stigalaust á botni síns riðils í
undankeppni EM 2012. Margt er
líkt með því sem nú er að gerast
og þegar Ólafur tók við liðinu á
sínum tíma. Liðið er að leggja sig
ágætlega fram en sóknarleikur-
inn er slakur og árangurinn eng-
inn. Þetta er í rauninni endurtek-
ið efni.
Ólafur fékk tíu mánuði til þess
að undirbúa liðið fyrir síðustu
undankeppni. Hann fékk aragrúa
æfingaleikja, njósnara og í raun-
inni allt sem hann óskaði sér.
Það skilaði sér í frábæru stigi
gegn Norðmönnum ytra í leik þar
sem liðið sýndi þann baráttuanda
sem íslenskir áhorfendur krefj-
ast að liðið sýni en það sýnir allt
of sjaldan.
Eiður Smári Guðjohnsen sagði
eftir þann leik. „Það sem stendur
upp úr er hvað við sýndum mik-
inn karakter og börðumst vel.
Baráttugleðin er að sjálfsögðu
það sem á að einkenna íslenska
landsliðið og það var kominn tími
til að liðið sýndi hvað í því býr,“
sagði Eiður Smári réttilega.
Tap gegn Skotum í næsta leik
var köld vatnsgusa framan í
íslenska liðið sem lék vel. Klaufa-
mistök, einbeitingarleysi og
dapur sóknarleikur felldi íslenska
liðið í þeim leik og þannig hefur
það verið í ansi mörgum leikjum
síðan Ólafur tók við liðinu.
Eftir því sem leið á undan-
keppnina datt botninn úr leik
íslenska liðsins þó svo það hafi
innbyrt sinn eina alvörusigur
gegn Makedóníu á Laugardals-
velli 15. október árið 2008. Loka-
niðurstaða síðustu undankeppni
var síðan gríðarleg vonbrigði.
Margir hafa bent á að Ólafur
sé að byggja upp nýtt lið eins og
sjá má á þeim fjölda ungra leik-
manna sem var í hópnum í síð-
ustu leikjum. Það má vissulega
til sanns vegar færa.
Ólafur var einnig að reyna að
byggja upp nýtt lið er hann tók
við á sínum tíma. Sú uppbygging
mistókst. Þeir ungu leikmenn sem
eru komnir í liðið núna eru þar af
ástæðu. Af því að hinir leikmenn-
irnir brugðust. Margir þeirra leik-
manna sem Ólafur veðjaði á þá, og
voru með áskrift að sæti í landslið-
inu, brugðust. Það má því vel velta
fyrir sér hvort Ólafur sé rétti mað-
urinn til þess að standa að nýrri
uppbyggingu. Húsin sem smið-
urinn hefur reist hingað til hafa
ítrekað hrunið til grunna.
Ísland hefur annars verið að
byggja upp nýtt lið ansi lengi án
árangurs. Ábyrgðin þar hlýtur að
liggja að stóru leyti hjá KSÍ sem
velur þjálfarana sem síðan stýra
landsliðinu. Síðustu ráðningar hafa
verið nokkuð umdeildar.
Það er grátlegt að uppskeran í
þessum ellefu alvöruleikjum undir
stjórn Ólafs sé eins rýr og raun
ber vitni. Andstæðingarnir hafa
síður en svo verið mikið sterkari
en við. Ísland hefur verið að mæta
liðum eins og Noregi, Skotlandi
og Makedóníu. Allt lið sem Ísland
á að geta unnið á nokkuð góðum
degi. Íslenska landsliðið er ekki
eins lélegt og árangurinn gefur til
kynna.
Ólafur sagði eftir tap gegn Make-
dóníu í júní í fyrra að hann stæði og
félli með ákvörðunum sínum. Stóra
spurningin er samt hvort hann sé
til í axla einhverja ábyrgð á þeim
slaka árangri sem landsliðið hefur
náð undir hans stjórn.
Hefur aðeins unnið einn alvöruleik
Byrjunin á undankeppni EM 2012 er nánast eins og byrjunin á undankeppni HM 2010. Eini munurinn er sá
að árangurinn er lakari núna. Annars er þetta endurtekið efni. Ólafur Jóhannesson hefur stýrt landsliðinu
í tæp þrjú ár og aðeins tekist að vinna einn alvöruleik. Sá sigur kom í október árið 2008.
EKKI NEIN GÆÐASMÍÐI HJÁ TRÉSMIÐNUM Ólafur Jóhannesson hefur ekki náð nein-
um árangri með íslenska landsliðið sem er strax komið á botninn í undankeppni EM.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Árangur landsliðsins undir stjórn Ólafs í alvöruleikjum
Undankeppni EM 2008:
21. nóvember 2007 Danmörk-Ísland 3-0
Undankeppni HM 2010:
6. september 2008 Noregur-Ísland 2-2
10. september 2008 Ísland-Skotland 1-2
11. október 2008 Holland-Ísland 2-0
15. október 2008 Ísland-Makedónía 1-0
1. apríl 2009 Skotland-Ísland 2-1
6. júní 2009 Ísland-Holland 1-2
10. júní 2009 Makedónía-Ísland 2-0
5. september 2009 Ísland-Noregur 1-1
Undankeppni EM 2012:
3. september 2010 Ísland-Noregur 1-2
7. september 2010 Danmörk-Ísland 1-0
Alls 11 leikir Sigrar: 1, jafntefli 2, töp 8.
FÓTBOLTI Það kemur í ljós á morg-
un hvaða lið verður andstæðingur
Íslands í umspilinu fyrir EM en
Ísland er eitt fjórtán þjóða sem
tryggðu sér þátttökurétt í umspil-
inu.
Aðeins taka átta þjóðir þátt í
lokakeppninni. Gestgjafarnir,
Danir, fá sjálfkrafa þátttökurétt í
mótinu og því eru aðeins sjö sæti
í boði. Það væri því gríðarlegt
afrek ef íslenska liðinu tekst að
tryggja sig inn á mótið.
Ísland er í B-flokki þegar dreg-
ið verður á morgun en þar eru
líka sterk lið eins og England og
Spánn.
Þjóðirnar sem Ísland getur
mætt eru Svíþjóð, Holland, Rúm-
enía, Ítalía, Króatía eða Skotland.
- hbg
Íslenska U-21 árs landsliðið:
Dregið í um-
spilið á morgun
MAGNAÐIR Strákarnir í íslenska U-21 árs
liðinu hafa staðið sig frábærlega.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Breska blaðið The Guar-
dian greindi frá því í gær að
franski stjórinn Gerard Houllier
væri búinn að samþykkja þriggja
ára samning við enska úrvals-
deildarfélagið Aston Villa.
Houllier tekur við starfinu af
Martin O´Neill sem sagði mjög
óvænt upp störfum nokkrum
dögum áður en enska úrvals-
deildin hófst.
Houllier er ekki ókunnugur í
enska boltanum en hann stýrði
liði Liverpool frá 1998 til 2004.
Phil Thompson var aðstoðarmað-
ur hans þar en mun ekki koma
yfir til Villa. - hbg
Leit Villa að stjóra á enda:
Houllier á leið
til Aston Villa
FÓTBOLTI Íslenska karlalandslið-
ið þurfti að sætta sig við grátlegt
tap á Parken á þriðjudagskvöldið
þegar Danir tryggðu sér 1-0 sigur
með því að skora sigurmarkið sitt
í uppbótartíma.
Þetta er í tuttugasta sinn sem
íslenska karlalandsliðið tapar
leik 0-1 í undankeppnum
EM eða HM en aðeins
í þriðja sinn sem liðið
fær á sig slíkt sig-
urmark á loka-
mínútum leiks-
ins.
Íslenska
l iðið hafði
verið líklegra
til að skora á
lokakafla leiksins
á Parken en það
var þó Thomas
Kahlenberg sem nýtti
sér klaufaskap í
íslensku vörninni
til þess að skora
sigurmarkið með
laflausu skoti í
varnarmann og
inn.
Það má segja
að tapið í
fyrra-
kvöld velti nú tapi fyrir Skotum
frá árinu 1985 úr sessi sem grát-
legasta 0-1 tap íslenska landsliðs-
ins í undankeppni.
Skotar tryggðu sér þá ósann-
gjarnan 1-0 sigur á Laugardals-
vellinum í lok maí þegar Íslands-
vinurinn Jim Bett skoraði eina
mark leiksins þremur og hálfri
mínútu fyrir leikslok.
Jim Leighton, markvörður
Skota, var maður leiksins en hann
varði meðal annars vítaspynu frá
Teiti Þórðarsyni, fyrirliða íslenska
liðsins, í fyrri hálfleik og auk þess
fékk íslenska liðið fjölda færa.
Það eru líka aðeins rúm þrjú
ár síðan íslenska landsliðið tap-
aði 0-1 fyrir þá verðandi Evrópu-
og heimsmeisturum Spánverja í
hellidembu á Mallorca.
Líkt og á HM í Suður-Afríku í
sumar var það maður að nafni
Andrés Iniesta sem tryggði heima-
mönnum 1-0 sigur.
Markið hans kom aðeins níu
mínútum fyrir leikslok eftir send-
ingu frá David Villa og Iniesta átti
einnig eftir að tryggja Spánverjum
1-1 jafntefli á Laugardalsvellinum
fimm mánuðum síðar. - óój
Tuttugu 0-1 töp Íslands:
Íslenska landsliðið hefur 20 sinnum tapað 0-1
í undankeppni EM eða HM og hér fyrir neðan
má sjá hvenær sigurmark mótherjanna hefur
komið í þessum leikjum.
Sigurmark á 1.-40. mínúta 4
Sigurmark á 40.-45 mínúta 6
Sigurmark á 46.-60. mínúta 4
Sigurmark á 61.-79. mínúta 3
Sigurmark á 80.-90. mínúta 3
Ísland hefur þrisvar sinnum tapað með einu marki í blálokin í undankeppnum HM eða EM:
Grátlegustu 0-1 töp íslenska landsliðsins
ANDRÉS INIESTA Skoraði
sigurmark á móti Íslandi
á 81. mínútu í marslok
2007. MYND/XXXX
- gólfþvottavélar
- ryksugur
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta