Fréttablaðið - 09.09.2010, Page 64
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sló á létta strengi
Jóhannes Kristjánsson eftirherma
gladdi gesti Melabúðarinnar í
gærdag þegar hann kom þangað
til að versla. Jóhannes er eflaust
þekktastur fyrir að ná bæði Guðna
Ágústssyni og Ólafi Ragnari
Grímssyni betur en nokkur annar
Íslendingur. Eftirherman stóðst hins
vegar ekki mátið þegar kom að því
að greiða fyrir vörurnar og brá sér í
líki ákaflega þekkst neytendafröm-
uðar þegar afgreiðslumaður
bauð honum góðan
daginn. Jóhannes
svaraði að bragði:
„Jú, góðan dag,
Kristján heiti ég
Ólafsson,“ með
öllu tilheyrandi
við mikla
kátínu við-
skiptavina og
starfsmanna
búðarinnar.
Helga og Guðjón, garðyrkjubændur á Melum, eru bæði alin upp við
garðyrkju og grænmetisrækt. Auk þess að vera með fjölbreytta tómataræktun
allt árið, rækta þau kál af ýmsu tagi, m.a. blómkál. Grænmetið er ræktað með
vistvænum aðferðum, handtýnt og handskorið. „Hér á landi notum við auðlindir
jarðar við garðyrkjuna,“ segir Helga, stolt af uppskerunni.
1 The Stig rekinn frá Top Gear
2 Fór nafnavillt í samförum
3 Klámnotkun Jóns Gnarr rædd
í borgarráði
4 Bannað að hlæja að þessu
myndbandi
5 Steingrímur: Árni á að
skammast sín og Þór er
sorglegt eintak
6 Jenis fær baráttukveðjur frá
Íslandi: Lesið skeytin
Guðfinna í bankann?
Sú saga gengur fjöllum hærra
innan fjármálageirans að Guðfinna
Bjarnadóttir, fyrrverandi rektor
Háskólans í Reykjavík og fyrrum
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fái
eina af þeim framkvæmdastjóra-
stöðum sem Landsbankinn auglýsti
á dögunum. Því til stuðnings vísa
menn til áralangrar vináttu þeirra
Guðfinnu og Gunnars Helga
Hálfdánarsonar, stjórnarformanns
Landsbankans. Hann var formaður
skólanefndar Verslunarskólans á
árum áður og hafði áhrif á að Guð-
finna var ráðin rektor
háskólans árið 1998.
Guðfinna mun
þegar komin með
annan fótinn inn
fyrir dyr Lands-
bankans sem
ráðgjafi stjórnar
bankans. Einmitt
þar sem Gunnar
situr. -fgg, jab