Fréttablaðið - 09.09.2010, Síða 64

Fréttablaðið - 09.09.2010, Síða 64
Mest lesið DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Sló á létta strengi Jóhannes Kristjánsson eftirherma gladdi gesti Melabúðarinnar í gærdag þegar hann kom þangað til að versla. Jóhannes er eflaust þekktastur fyrir að ná bæði Guðna Ágústssyni og Ólafi Ragnari Grímssyni betur en nokkur annar Íslendingur. Eftirherman stóðst hins vegar ekki mátið þegar kom að því að greiða fyrir vörurnar og brá sér í líki ákaflega þekkst neytendafröm- uðar þegar afgreiðslumaður bauð honum góðan daginn. Jóhannes svaraði að bragði: „Jú, góðan dag, Kristján heiti ég Ólafsson,“ með öllu tilheyrandi við mikla kátínu við- skiptavina og starfsmanna búðarinnar. Helga og Guðjón, garðyrkjubændur á Melum, eru bæði alin upp við garðyrkju og grænmetisrækt. Auk þess að vera með fjölbreytta tómataræktun allt árið, rækta þau kál af ýmsu tagi, m.a. blómkál. Grænmetið er ræktað með vistvænum aðferðum, handtýnt og handskorið. „Hér á landi notum við auðlindir jarðar við garðyrkjuna,“ segir Helga, stolt af uppskerunni. 1 The Stig rekinn frá Top Gear 2 Fór nafnavillt í samförum 3 Klámnotkun Jóns Gnarr rædd í borgarráði 4 Bannað að hlæja að þessu myndbandi 5 Steingrímur: Árni á að skammast sín og Þór er sorglegt eintak 6 Jenis fær baráttukveðjur frá Íslandi: Lesið skeytin Guðfinna í bankann? Sú saga gengur fjöllum hærra innan fjármálageirans að Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fái eina af þeim framkvæmdastjóra- stöðum sem Landsbankinn auglýsti á dögunum. Því til stuðnings vísa menn til áralangrar vináttu þeirra Guðfinnu og Gunnars Helga Hálfdánarsonar, stjórnarformanns Landsbankans. Hann var formaður skólanefndar Verslunarskólans á árum áður og hafði áhrif á að Guð- finna var ráðin rektor háskólans árið 1998. Guðfinna mun þegar komin með annan fótinn inn fyrir dyr Lands- bankans sem ráðgjafi stjórnar bankans. Einmitt þar sem Gunnar situr. -fgg, jab

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.