Fréttablaðið - 13.09.2010, Page 42
18 13. september 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jón er kominn!
Slökkva á sjónvarpinu, vera upptekin!
Jón er kominn!
Slökkva á sjónvarpinu, vera upptekin!
Æ
Æ
Solla vill að þú breiðir yfir hana.
Ég?
Varst þú ekki
hjá henni?
Jú, en ég er búin að
vera á fullu síðan
sex í morgun og er
alveg búin á því.
Ég gat ekki lyft
sænginni.
Kex með
Nutella
Ýmis batterí
Köngull
Tannbursti
2 geisladiskar
Tómatsósu-
bréf
Karamella
Geisladiskahulstur
(Passar ekki)
Gulur yfirstrik-
unarpenni
(virkar ekki)
3 leikfimi-
sokkar
Ég var ein-
mitt að leita
að þessum
tannbursta!
Og þetta er bara það
sem ég fann í sængur-
verinu þínu þegar ég
skipti á rúminu
í morgun!
Krumpaður
þúsundkall
Taktu partíið á næsta stig með PlayStation
MOVE!
9. hvervinnur!
Vinningar afhendir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
Lendir15. sept!
Sendu SMS EST MOVE
á númerið 1900.
Svaraðu einni spurningu
og þú gætir unnið!
Aðalvinningur er
MOVE ásamt fjórum (Move)lei
kjum.
Fullt af auka vinningum:
Tölvuleikir · DVD myndir · PS3
aukahlutir og fleira!
l i i
Fyrir rúmum tuttugu árum voru Stíga-mót – grasrótarhreyfing gegn kynferð-
isofbeldi stofnuð. Starfsemin mætti oft
skilningsleysi fyrstu árin en samtökin, þá
undir styrkri stjórn dr. Guðrúnar Jónsdótt-
ur félagsfræðings, stóðu allan mótbyr af
sér, enda sást strax í upphafi að brýn þörf
var fyrir þau. Guðrún og aðrar starfskon-
ur Stígamóta gengu fram fyrir skjöldu og
fræddu þjóð sína. Þær sögðu okkur að kyn-
ferðisofbeldi væri alvarlegur glæpur og
útskýrðu afleiðingar þess fyrir þolendurna.
Starfið bar ávöxt og engum vafa undirorpið
hvað Stígamót hafa hjálpað mörgum.
DAG nokkurn birtist Thelma Ásdísardótt-
ir og hrærði upp í samfélaginu með sögu
sinni. Hátt og snjallt vísaði hún skömm-
inni – bókstaflega – til föðurhúsanna.
Síðar kom Breiðavíkurmálið upp og
fjöldi íslenskra karlmanna treysti sér
til að skýra frá ömurlegri bernsku. Rétt
eins og í tilfelli Thelmu og systra henn-
ar hafði félagskerfið brugðist ungum
börnum. Áhrif þessara vitnisburða voru
sterk. Íslenska þjóðin horfðist í augu við
sjálfa sig og lofaði að gera allt til að
voðaatburðir á borð við þá sem áttu sér
stað í gula húsinu í Hafnarfirðinum,
Breiðavík, Bjargi og öðrum upptöku-
heimilum gerðust aftur.
NÚ hefur komið á daginn að fyrr-
verandi biskup þessa lands, hr. Ólaf-
ur Skúlason, var kynferðisofbeldismaður.
Dóttir hans steig fram og sagði frá því
hvaða mann pabbi hennar hafði að geyma.
Og þá rifjaðist upp að einn þolenda hans,
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sem sagði
sögu sína fyrir einum 14 árum, fékk ekki
þá aðstoð sem henni bar. Frásögn Sigrún-
ar Pálínu vakti vitaskuld mikla athygli á
sínum tíma. Þöggunin fór því heldur ekki
fram hjá neinum og það er skelfilegt að
ímynda sér áhrifin sem þetta afskiptaleysi
hlýtur að hafa haft, ekki aðeins á Sigrúnu
sem flutti úr landi ásamt fjölskyldu sinni,
heldur aðra þolendur kynferðisofbeldis.
ÞARNA sáu þeir svart á hvítu hvernig við-
brögðin yrðu ef þeir dirfðust að skýra frá
reynslu sinni, hvað þá að ganga svo langt að
kæra. Á meðan léku misyndismenn lausum
hala og sá hugsunarháttur að nauðgun og
annað kynferðisofbeldi væri eins og hvert
annað sakleysislegt sprell fékk að grassera.
Skaðinn sem þessi þöggun hefur haft í för
með sér gæti verið meiri en okkur grunar.
Enn hefur speglinum verið brugðið á loft en
nú er hann borinn upp að vitum okkar til að
ganga úr skugga um að með okkur bærist
lífsmark, fólkinu sem hvorki gat skenkt Sig-
rúnu Pálínu skilning né samúð. Næst þegar
til okkar verður leitað skulum við bjóða
gestinum til sætis, ljúka hurðinni aftur,
slökkva á símanum og leggja við hlustir.
Eitt getum við nefnilega verið viss um,
fleiri eiga eftir að biðja okkur um áheyrn.
Þjóð með spegil