Fréttablaðið - 13.09.2010, Síða 42

Fréttablaðið - 13.09.2010, Síða 42
18 13. september 2010 MÁNUDAGUR BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Jón er kominn! Slökkva á sjónvarpinu, vera upptekin! Jón er kominn! Slökkva á sjónvarpinu, vera upptekin! Æ Æ Solla vill að þú breiðir yfir hana. Ég? Varst þú ekki hjá henni? Jú, en ég er búin að vera á fullu síðan sex í morgun og er alveg búin á því. Ég gat ekki lyft sænginni. Kex með Nutella Ýmis batterí Köngull Tannbursti 2 geisladiskar Tómatsósu- bréf Karamella Geisladiskahulstur (Passar ekki) Gulur yfirstrik- unarpenni (virkar ekki) 3 leikfimi- sokkar Ég var ein- mitt að leita að þessum tannbursta! Og þetta er bara það sem ég fann í sængur- verinu þínu þegar ég skipti á rúminu í morgun! Krumpaður þúsundkall Taktu partíið á næsta stig með PlayStation MOVE! 9. hvervinnur! Vinningar afhendir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Lendir15. sept! Sendu SMS EST MOVE á númerið 1900. Svaraðu einni spurningu og þú gætir unnið! Aðalvinningur er MOVE ásamt fjórum (Move)lei kjum. Fullt af auka vinningum: Tölvuleikir · DVD myndir · PS3 aukahlutir og fleira! l i i Fyrir rúmum tuttugu árum voru Stíga-mót – grasrótarhreyfing gegn kynferð- isofbeldi stofnuð. Starfsemin mætti oft skilningsleysi fyrstu árin en samtökin, þá undir styrkri stjórn dr. Guðrúnar Jónsdótt- ur félagsfræðings, stóðu allan mótbyr af sér, enda sást strax í upphafi að brýn þörf var fyrir þau. Guðrún og aðrar starfskon- ur Stígamóta gengu fram fyrir skjöldu og fræddu þjóð sína. Þær sögðu okkur að kyn- ferðisofbeldi væri alvarlegur glæpur og útskýrðu afleiðingar þess fyrir þolendurna. Starfið bar ávöxt og engum vafa undirorpið hvað Stígamót hafa hjálpað mörgum. DAG nokkurn birtist Thelma Ásdísardótt- ir og hrærði upp í samfélaginu með sögu sinni. Hátt og snjallt vísaði hún skömm- inni – bókstaflega – til föðurhúsanna. Síðar kom Breiðavíkurmálið upp og fjöldi íslenskra karlmanna treysti sér til að skýra frá ömurlegri bernsku. Rétt eins og í tilfelli Thelmu og systra henn- ar hafði félagskerfið brugðist ungum börnum. Áhrif þessara vitnisburða voru sterk. Íslenska þjóðin horfðist í augu við sjálfa sig og lofaði að gera allt til að voðaatburðir á borð við þá sem áttu sér stað í gula húsinu í Hafnarfirðinum, Breiðavík, Bjargi og öðrum upptöku- heimilum gerðust aftur. NÚ hefur komið á daginn að fyrr- verandi biskup þessa lands, hr. Ólaf- ur Skúlason, var kynferðisofbeldismaður. Dóttir hans steig fram og sagði frá því hvaða mann pabbi hennar hafði að geyma. Og þá rifjaðist upp að einn þolenda hans, Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sem sagði sögu sína fyrir einum 14 árum, fékk ekki þá aðstoð sem henni bar. Frásögn Sigrún- ar Pálínu vakti vitaskuld mikla athygli á sínum tíma. Þöggunin fór því heldur ekki fram hjá neinum og það er skelfilegt að ímynda sér áhrifin sem þetta afskiptaleysi hlýtur að hafa haft, ekki aðeins á Sigrúnu sem flutti úr landi ásamt fjölskyldu sinni, heldur aðra þolendur kynferðisofbeldis. ÞARNA sáu þeir svart á hvítu hvernig við- brögðin yrðu ef þeir dirfðust að skýra frá reynslu sinni, hvað þá að ganga svo langt að kæra. Á meðan léku misyndismenn lausum hala og sá hugsunarháttur að nauðgun og annað kynferðisofbeldi væri eins og hvert annað sakleysislegt sprell fékk að grassera. Skaðinn sem þessi þöggun hefur haft í för með sér gæti verið meiri en okkur grunar. Enn hefur speglinum verið brugðið á loft en nú er hann borinn upp að vitum okkar til að ganga úr skugga um að með okkur bærist lífsmark, fólkinu sem hvorki gat skenkt Sig- rúnu Pálínu skilning né samúð. Næst þegar til okkar verður leitað skulum við bjóða gestinum til sætis, ljúka hurðinni aftur, slökkva á símanum og leggja við hlustir. Eitt getum við nefnilega verið viss um, fleiri eiga eftir að biðja okkur um áheyrn. Þjóð með spegil

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.