Fréttablaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 2
2 20. september 2010 MÁNUDAGUR
SAMFÉLAG Talsverðar sveiflur eru
í fæðingum eftir dögum ársins,
en þær voru þó umtalsvert meiri
fyrr á árum. Flestir Íslendingar
eiga afmæli í sumarmánuðunum,
en fæstir yfir háveturinn, sam-
kvæmt upplýsingum frá Hagstofu
Íslands.
Fæstir Íslendingar eiga afmæli
á jóladag, 25. desember, 666 tals-
ins. Aðrir dagar í kringum jóla-
hátíðina virðast ekki heldur vin-
sælir til barneigna. Alls eiga 705
Íslendingar afmæli 31. desember,
og litlu færri 24. desember og 26.
desember.
Ólöf Garðarsdóttir, dósent í
sagnfræði á menntavísindasviði
Háskóla Íslands, segir þetta eiga
sér eðlilegar skýringar. Fæðingar
séu ekki settar í gang þessa daga,
og börn ekki tekin með keisara-
skurði nema slík aðgerð þoli enga
bið.
Langsamlega fæstir eiga þó auð-
vitað afmæli 29. febrúar, enda bæt-
ast aðeins ný afmælisbörn í hópinn
fjórða hvert ár.
Algengasti afmælisdagur lands-
manna er 16. júlí, en 974 eiga
afmæli þann dag, nær helmingi
fleiri en eiga afmæli á jóladag.
Litlu færri eiga afmæli 2. október,
og fjölmargir eiga einnig afmæli í
byrjun ágúst, eins og sjá má í með-
fylgjandi súluriti.
Þróunin hefur verið sú að algeng-
ara er að börn fæðist á sumrin en
á veturna, segir Ólöf. Mikið hefur
dregið úr slíkum árstíðasveiflum
á undanförnum þremur áratugum
og þær séu nú að hverfa.
Ólöf segir skýringuna á þessu
ekki hafa verið rannsakaða í þaula.
Margt geti komið til. Þannig hafi
giftingar oft farið fram á haustin,
og ekki óalgengt að fyrsta barnið
hafi verið komið undir þegar athöfn-
in hafi farið fram. Þá geti líka spil-
að inn í að karlmenn hafi víða farið
í verbúðir yfir vetrartímann og kyn-
líf því minna stundað á meðan.
Ólöf segir að áhugavert væri
að rannsaka áhrif næringarlegs
ástands mæðra, enda yfirleitt mest
til í búinu í lok sumars og þær því
mögulega betur í stakk búnar til að
ala börn. Mögulega geti það skýrt
hluta árstíðasveiflunnar.
brjann@frettabladid.is
Langfæstir fæðast í
kringum hátíðirnar
Fæstir Íslendingar eiga afmæli á jóladag og aðra daga í kringum hátíðirnar.
Flestir eiga afmæli einhvern tímann yfir sumarið. Árstíðabundin sveifla hefur
verið á fæðingum, en hún er nú óðum að hverfa segir sagnfræðingur.
LÖGREGLUMÁL Starfsmaður HB Granda á Vopnafirði
vann mikil spjöll á tækjum og tólum með sleggju
í frystihúsi fyrirtækisins aðfaranótt laugardags.
Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, var handtekinn á
laugardag og sleppt eftir yfirheyrslur. Hann játaði
verknaðinn og telst málið upplýst af hálfu lögreglu.
Maðurinn fór inn í húsnæði fyrirtækisins aðfara-
nótt laugardags og skemmdi tæki og búnað, meðal
annars prentara og tölvur. Við atganginn fór bruna-
varnakerfi af stað og í kjölfarið kom vakthafandi
vélstjóri að manninum, sem þá hafði látið af iðju
sinni. Í kjölfarið var Magnús Róbertsson vinnslu-
stjóri kvaddur á vettvang, og var maðurinn sóttur
af bróður sínum skömmu síðar.
Magnús segir manninn hafa verið talsvert drukk-
inn en þó rólegan þegar aðra bar að garði eftir ber-
serksganginn. „Þetta er mjög leiðinlegt mál því
þetta er dagfarsprúður piltur og góður starfskraft-
ur. Ég veit ekki til þess að hann hafi átt nokkuð
sökótt við fyrirtækið og held að honum hafi liðið
vel í vinnunni. Það var líf í bænum þetta kvöld og
ég skrifa þetta frekar á að hann hafi fengið sér of
marga bjóra,“ segir Magnús. Enn á eftir að reikna
út hversu mikið tjónið er en það hleypur minnst á
hundruðum þúsunda króna.
Að sögn Magnúsar hefur framtíð mannsins innan
fyrirtækisins ekki verið ákveðin, en hann verið
sendur tímabundið í launalaust leyfi. - kg
Starfsmaður HB Granda á Vopnafirði skemmdi tæki og búnað með sleggju:
Drukkinn gekk berserksgang
VOPNAFJÖRÐUR Maðurinn vann spjöll á tækjum og búnaði
húsnæðis HB Granda.
VIÐSKIPTI Danski bankinn FIH
Erhvervsbank hefur verið seld-
ur dönsku lífeyrissjóðunum ATP
og PFA, sænska tryggingafyrir-
tækinu Folksam og fyrirtækinu
CPDyvig fyrir allt að 103 millj-
arða króna. Seðlabanki Íslands til-
kynnti um þetta í gær.
Seðlabankinn á veð í 99,89 pró-
senta hlut í bankanum vegna 500
milljóna evra þrautavaraláns sem
veitt var til Kaupþings haustið
2008. Strax eru greiddir 1,9 millj-
arðar danskra króna af fimm, eða
um 40 milljarðar íslenskra króna.
Haft er eftir Má Guðmunds-
syni seðlabankastjóra í tilkynn-
ingunni að salan sé ágæt miðað
við aðstæður. Seðlabankinn fái
strax talsverða upphæð í erlendum
gjaldeyri og eigi möguleika á að
endurheimta veð sitt að fullu. - sh
Seðlabankastjóri sáttur:
Búið að ganga
frá sölu á FIH
STJÓRNSÝSLA Skýrsla Magma-
nefndarinnar sýnir að kaup Magma
á HS orku samræmdust lögum, að
sögn Katrínar Júlíusdóttur iðnað-
arráðherra. „Ég sé ekki betur en að
nefndin komist að þeirri niðurstöðu
að samningaleiðin sé sú eina færa,“
segir hún.
Katrín segir að það myndi kosta
ríkið tugmilljarða að ganga inn
í kaupin á þessari stundu, og því
sé rétt að ganga til samninga við
Magma um forkaupsrétt ríkisins
og styttri leigutíma á auðlindinni
og láta þar við sitja.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra sagði í fréttum um
helgina að niðurstaða nefndar-
innar breytti engu um afstöðu
ríkisstjórnarinnar. Áfram skuli
stefnt að því að leiðrétta stöðuna
gagnvart HS orku með tilliti til
almannahagsmuna. Katrín segir að
samningar við Magma yrðu í þágu
almannahagsmuna og að þessu
leyti séu þær því sammála. - sh
Vill forkaupsrétt að HS orku:
Katrín er sam-
mála Svandísi
ÍRAK Tuttugu og þrír létust og
um hundrað særðust er tvær bíl-
sprengjur sprungu á tveimur stöð-
um í norðurhluta Bagdad í gær.
Sprengingarnar urðu í grennd
við símafyrirtæki í borginni, en
ekki er ljóst hvort það hafi verið
skotmark hryðjuverkamannanna.
Ofbeldishrina hefur riðið yfir
landið í sumar og voru júlí- og
ágústmánuðir þeir blóðugustu í
rúmt ár. - sm
Árásir í norðurhluta Bagdad:
Bílsprengjur
grönduðu 23
Árni, ertu búinn að gera garð-
inn frægan?
„Nei, við erum enn uppteknir við að
verka uppskeruna.“
Árni Sveinsson kvikmyndagerðarmaður
leikstýrði heimildarmyndinni Backyard
sem var opnunarmynd kvikmyndahússins
Bíós Paradísar.
VESTMANNAEYJAR Það var margt
um manninn og fólk á öllum aldri
sem tók þátt í leiðangrinum út í
Suðurey, suðvestur af Heimaey,
um helgina. Þangað fóru fjár-
bændur á tveimur „tuðrum“, eins
og bátarnir eru kallaðir, til að ná
í fé sitt og flytja til lands og til að
rýja og bólusetja féð sem verður
í eynni í vetur.
Bændur í Suðurey eru lunda-
karlar sem hafa féð þar til að
halda eynni í ræktun, en einnig
býr féð til göngustíga fyrir lunda-
karlana og éta gras frá lundahol-
unum svo þær lokist ekki.
Sókningsbáturinn Lubba náði
í féð sem í land fór. Féð var sett í
net og slakað niður 65 metra frá
bjargbrúninni niður í bátinn. - kg
Smölun í Suðurey gekk vel:
Fénu slakað af
bjargbrúninni
NIÐURFERÐIN HAFIN Fénu var slakað 65
metra niður í sókningsbátinn Lubbu.
MYND/ÓSKAR PÉTUR FRIÐRIKSSON
ALÞINGI Það er einkennileg og
óþægileg staða að geta ekki rætt
inntak trúnaðargagna þingmanna-
nefndar Atla Gíslasonar með opin-
skáum hætti í þinginu vegna trún-
aðar sem á þeim hvílir. Þetta segir
Birgir Ármannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Birgir kynnti sér gögnin um
helgina og segir að efni þeirra hafi
í engu breytt afstöðu hans til hugs-
anlegrar málshöfðunar á hendur
fyrrverandi ráðherrum. „Það sem
vekur athygli er hvað þessi gögn
eru rýr miðað við það hve mikla
áherslu Atli Gíslason lagði á þau
í ræðu sinni á
föstudaginn,“
segir Birgir.
Í gögnunum
sé þó mikið um
lögfræðileg-
ar vangavelt-
ur álitsgjafa
nefndarinnar
sem Birgir hefði
viljað ræða á
Alþingi. Hluta
þeirra hafi Atli vísað til í ræðu
sinni en öðrum hafi hann sleppt.
Birgir segir að æskilegt hefði
verið að gögnin væru opinber svo
ekki þyrfti að ræða efni þeirra í
véfréttastíl eins og gera þarf með
trúnaðargögn.
Umræða um málið hefst í dag.
Ræðutími hvers þingmanns er tak-
markaður en óvíst er hversu lengi
umræðurnar munu vara. Atli Gísla-
son vill að þeim loknum fá málið
aftur til þingmannanefndar sinn-
ar, en Birgir er sammála formanni
allsherjarnefndar, Róberti Mars-
hall, um að skynsamlegt væri að
fá málið í allsherjarnefnd. Þannig
gæfist öðrum þingmönnum tæki-
færi til að leggja mat á störf þing-
mannanefndarinnar. - sh
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir trúnaðargögn þingmannanefndar rýr að efni:
Óþægilegt að geta ekki rætt gögnin
BIRGIR
ÁRMANNSSON
ÞJÓÐKIRKJAN Mál sex starfsmanna
þjóðkirkjunnar hafa borist
fag ráði kirkjunnar um kynferð-
isbrot frá því það tók til starfa
fyrir um ellefu árum.
Séra Gunnar R. Matthíasson,
formaður ráðsins, býst við því að
gerendurnir séu mun fleiri: „Ég
reikna með að þau gætu kannski
verið fleiri, kannski tvöfalt
fleiri,“ segir hann. Gunnar segist
ekki hafa nákvæma tölu um þol-
endur í málum starfsmannanna
sex en segir að allt að þrír þol-
endur tengist hverju máli.
Sex mál hafa borist fagráði:
Gerendur gætu
verið fleiri
9. ágú. 968
31. des. 705
Fjöldi landsmanna sem fæddur er hvern dag ársins
Heimild: Vefur Hagstofu Íslands
29. feb. 208
16. júl. 974
28. apr. 963
5. ágú. 968
2. okt. 970
24. des. 715
25. des. 666
26. des. 742
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
26. sep. 963
SPURNING DAGSINS
BRIDS
SKÓLINN
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Byrjendur ... 27. september ... 8 mánudagar frá 20-23
Framhald ... 29. september ... 8 miðvikudagar frá 20-23
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
• Byrjendanámskeið: Allir geta lært að spila brids, en það
tekur svolítinn tíma í upphafi að átta sig á leikreglunum.
Það er fólk á öllum aldri sem sækir skólann og ekkert mál
að mæta stakur/stök. Sjá bridge.is/fræðsla.
• Framhaldsnámskeið: Námskeiðið hentar breiðum hópi
spilara, bæði þeim sem töluvert kunna og eins hinum sem
eru tiltölulega nýbyrjaðir. Sjá bridge.is/fræðsla.
• Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦