Fréttablaðið - 20.09.2010, Page 35
MÁNUDAGUR 20. september 2010 3
„Þetta er í fyrsta sinn sem verið
er að sýna þetta vörumerki utan
landsteinanna og sýningargestir
voru almennt mjög hrifnir. Þannig
að það er alveg óhætt að segja að
þetta hafi gengið vel í alla staði,“
segir Teitur Þorkelsson, talsmað-
ur íslenska hönnunarfyrirtækis-
ins Studio Bility, sem hlaut góðar
viðtökur á húsbúnaðarsýning-
unni Maison et Objet í París fyrir
skemmstu.
Hönnuðir Bility sýndu þar ýmsar
vörutegundir, svo sem kertastjaka,
veggskraut og nýja línu af bóka-
merkjum sem er væntanleg í nóv-
ember. „Útsendarar frá bókabúð-
um voru eðlilega mjög áhugasamir
um bókamerkin, sem eru sérstök
fyrir þær sakir að líkjast skordýr-
um og bæði Frökkum og Japönum
fannst veggskrautið stórkostlegt,
fiðrildin sem breiða úr vængjun-
um fyrir tilstuðlan samspil ljóss og
skugga,“ segir hann og getur þess
að fyrirtækinu hafi
borist fjöldi fyrir-
spurna erlendis
frá síðan sýning-
unni lauk.
„Við erum að
fá fullt af pönt-
unum að utan,
bæði minni fyr-
ir tækjum sem
vilja kannski 50
eintök og upp í stór-
ar keðjur sem eru að
óska eftir því að við
gerum þeim verð-
tilboð fyrir allt að
3.000 eintök,“ segir
Teitur en bætir við
að þótt útlitið sé
gott sé ekkert fast í
hendi.
Þegar hefur verið fjall-
að um framlag Bility á sýn-
ingunni í Frakklandi í vefmiðlum
á borð við Core77 og virt tímarit í
hönnunarheiminum eins og Marie
Claire Maison, franska útgáfan
af Elle og Elite Interior hafa sýnt
áhuga á því að fjalla um íslenska
vörumerkið. „Þau hafa verið að
óska eftir frekari upplýsingum um
Bility ásamt myndefni; það verður
bara spennandi að sjá hvort eitt-
hvað kemur út úr því,“ segir Teit-
ur og viðurkennir að hópurinn hafi
ekki átt von á því
að fá svona sterk
viðbrögð ytra.
„Satt best að
segja renndum
við blint í sjó-
inn með þátttöku
á sýningunni.
Sumir höfðu nefni-
lega haft orð á
því að vörur Stu-
dio Bility væru
eitthvað sem
aðeins
Íslending-
ar fíla, en
svo kom
annað
heldur betur á daginn,“
útskýrir hann glaður og segir
viðbrögðin sannkallað gleði-
efni fyrir hönnuði Bility.
roald@frettabladid.is
Skordýrin vöktu
hrifningu í París
Hönnuðir á bakvið íslenska vörumerkið Bility tóku þátt í stórri hús-
búnaðarsýningu í París fyrir skemmstu. Íslenskt veggskraut og bóka-
merki í líki skordýra vöktu almenna hrifningu meðal sýningargesta.
Vörumerkið Bility vakti athygli í París á dögunum, en Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir,
Alma Olsen og Rúna Thors standa meðal annarra að baki því. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22
Fákafeni 11 - www.boconcept.is
no limits
in details
Bility. Snigill, bókamerki. Hönnuður Rúna Thors.
Bility. Humla, ísskáps-
segull. Hönnuður
Jenny Ekdahl.