Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.09.2010, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 20.09.2010, Qupperneq 38
14 20. september 2010 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. vísupartur, 6. samanburðart., 8. að, 9. stormur, 11. svörð, 12. framrás, 14. ránfugl, 16. sjó, 17. aðstoð, 18. sprækur, 20. fyrir hönd, 21. faðmur. LÓÐRÉTT 1. land í S-ameríku, 3. tveir eins, 4. gufuskip, 5. skordýr, 7. nýta, 10. knæpa, 13. fiskur, 15. innyfla, 16. gras, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. stef, 6. en, 8. til, 9. rok, 11. mó, 12. útrás, 14. fálki, 16. sæ, 17. lið, 18. ern, 20. pr, 21. fang. LÓÐRÉTT: 1. perú, 3. tt, 4. eimskip, 5. fló, 7. notfæra, 10. krá, 13. áll, 15. iðra, 16. sef, 19. nn. ... og hér er reikningurinn frá fæðingar- lækninum. Ekki sitja bara og pota í matinn, Maggi, borðaðu! Er ekki svangur. Það er til nóg af fólki sem ekki fær neitt að borða. Hefurðu hugsað út í það? Þannig að ef ég borða þetta allt þá verður allt í lagi? Pondus... segðu eitthvað. Brokkólí er bara ágætt! Það er nú bara þannig! Gemsareikn- ingurinn kom í dag, Palli. Já? Viltu giska hversu hár hann er? Uuu, stærri en venjulega? UM 50 ÞÚS- UND KRÓNUM STÆRRI EN VENJULEGA! Ha? Er yfir höfuð hægt að senda svona mörg SMS? Veit ekki, ég skal spyrja Stanislaw. Stóri sárs- aukinn við barneignir ÝTA HRINDA SKELLA ÝTA! HRINDA! SKELLA! HRINDA! Þetta er ágætis tíma- punktur til að fara með þau að sofa. Grallaralegt ævintýri fyrir stelpur og stráka Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is GRÍMAN 2010 Barnasýning ársins JVJ, DV „Ein besta barna-sýning síðasta árs... skemmtileg tónlist, fallegt mál, smekkleg umgjörð og góður leikur.“ SG, Mbl. „Gaman!!!! Listamennirnir slá hvergi af kröfum sínum.“ EB, Fbl. í samstarfi við GRAL Forsala aðgöngumiða hafin Sýningadagar Lau. 18/9 kl. 14 ö rfá sæti Sun. 19/9 kl. 14 ö rfá sæti Lau. 25/9 kl. 14 ö rfá sæti Sun. 26/9 kl. 14 ö rfá sæti Lau. 2/10 kl. 14 Sun. 3/10 kl. 14 A u g lý si n g as ím i Allt sem þú þarft… Mannkynið á í sífelldum metingi um hver eigi stærsta og flottasta bíl- inn, fallegasta heimilið, mikilfenglegustu fjöll in, hreinustu orkuna og fallegustu kon- urnar. Metingurinn fylgir okkur í daglegu lífi, við berum okkur saman við vinnufé- lagana, fólkið á götunni og nágrannana. Það verður til þess að við högum lífi okkar oft á allt annan máta en við myndum kannski innst inni kjósa. ÞAÐ ER þetta með fegurðina og okkur konurnar. Sumir segja að fegurðin komi að innan, aðrir telja að slíkt segi aðeins ljót- ar konur. Hvað sem því líður þurfum við konurnar að leggja heilmikið á okkur til að stand- ast kröfurnar sem gerðar eru í samfélaginu. Við þurfum að vera smekklega til fara, setja upp andlitið og ekki gleyma að brosa perlu- hvítum tönnum. SJÁLF er ég yfirleitt óttalega tætingsleg. Líður best í heima- buxum með ógreitt hár. Þannig nennti ég varla í myndatöku fyrir þennan pistil því það þýddi að ég þyrfti að hafa mig til. ÞVÍ ER ekki að furða að mér þyki fjalla- og hestaferðir sérstaklega heillandi. Þar get ég verið eins og mér sýnist og allir í kring- um mig eru ámóta druslulegir. Spóka sig jafnvel í föðurlandinu í fjallaskálum án þess að neitt þyki að því. ÞVÍ ÞÓTTI mér leitt að heyra eina vinkonu mína segja um daginn að hún treysti sér ekki í sveitaferð því henni þætti hún alltaf svo ljót í slíkum ferðum. Er þá ekki fokið í flest skjól ef maður má ekki einu sinni vera haldinn ljótunni í náttúrunni? SAMT sem áður er ég vel meðvituð um að verða að fylgja hinum samfélagslegu regl- um. Ég fer ekki í heimabuxum í vinnuna, ég reyni að setja upp andlitið áður en ég fer í Kringluna og fer hjá mér ef ég fer í joggingbuxunum út í matvörubúð og hitti gamla kunningjakonu, sérstaklega ef við- komandi er sjálf mjög vel til höfð. ÉG RIFJAÐI upp skemmtilegan brandara á dögunum. „Góði guð, gerðu mig granna. Ef ekki, gerðu þá vinkonur mínar feitar.“ Kannski er það draumur minn að allar konur verði haldnar ljótunni dag hvern svo ég geti verið eins og mér líður best. Þá gætum við líka hætt að metast og farið að sinna því sem máli skiptir eins og vinskap, fjölskyldu og hver veit, jafnvel uppbygg- ingu atvinnulífsins. Bara ef ljótan væri algild BAKÞANKAR Sólveigar Gísladóttur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.