Fréttablaðið - 20.09.2010, Page 42
20. september 2010 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Fylkisvöllur, áhorf.: 1.187
Fylkir Haukar
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–9 (8–4)
Varin skot Fjalar 4 – Daði 5
Horn 4–4
Aukaspyrnur fengnar 7–11
Rangstöður 5–2
HAUKAR 4–3–3
Daði Lárusson 7
Grétar Grétarsson 4
Daníel Einarsson 4
Jamie McCunnie 4
Kristján Björnsson 5
Guðjón Lýðsson 4
Arnar Gunnlaugsson 6
Hilmar G. Eiðsson 5
Úlfar Hrafn Pálsson 4
(58. Magnús Björgv. 5
Hilmar Rafn Emilsson 5
(80. Garðar Geirsson -)
Ásgeir Ingólfsson 4
(58. Hilmar Arnarss. 4
*Maður leiksins
FYLKIR 4–3–2–1
Fjalar Þorgeisson 7
Ásgeir Arnþórsson 6
Þórir Hannesson 7
Davíð Ásbjörnsson 5
(18. Kristján Valdim. 6)
Kjartan Á. Breiðdal 7
Ingimundur Óskarss. 6
Valur Fannar Gíslason 7
Ásgeir B. Ásgeirsson 6
*Andrés Jóhannes. 8
(66. Ólafur Stígsson 6)
Tómas Þorsteinsson 6
Albert B. Ingason 5
(40. Andri Herma. 6)
1-0 Andrés Már Jóhannesson (7.)
2-0 Ingimundur N. Óskarsson (30.)
3-0 Andrés Már Jóhannesson (40.)
3-0
Einar Örn Daníelsson (7)
BREIÐABLIK 3-0 SELFOSS
1-0 Guðmundur Kristjánsson (59.)
2-0 Elfar Freyr Helgason (73.)
3-0 Alfreð Finnbogason (88.)
Kópavogsvöllur, áhorf.: 2.202
Dómari: Erlendur Eiríksson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–3 (5–1)
Varin skot Ingvar 0 – Jóhann 2
Horn 6–1
Aukaspyrnur fengnar 14–8
Rangstöður 2–3
Breiðablik 4–3–3 Ingvar Þór Kale 6 - Kristinn
Jónsson 6, Kári Ársælsson 6, Elfar Freyr Helgason
7, Arnór Sveinn Aðalsteinsson 5 (46., Andri Rafn
Yeoman 6) - Jökull Elísabetarson 6, *Guðmundur
Kristjánsson 7, Finnur Orri Margeirsson 7 - Hauk-
ur Baldvinsson 6 (84., Tómas Óli Garðarsson -),
Kristinn Steindórsson 6 (90., Rannver Sigurjónsson
-), Alfreð Finnbogason 7.
Selfoss 4–5–1 Jóhann Ólafur Sigurðsson 5 - Andri
Freyr Björnsson 4, Jón Guðbrandsson - (16., Agnar
Magnússon 7), Stefán Guðlaugsson 7, Ingþór
Guðmundsson 6 (80., Jean YaoYao -) - Ingólfur Þór-
arinsson 3, Martin Dohlsten 2, Arilíus Marteinsson
4, Jón Daði Böðvarsson 4, Sævar Þór Gíslason 3,
Viktor Unnar Illugason 4 (46., Viðar Kjartansson 5)
ALFREÐ FINNBOGASON lék væntanlega sinn síðasta leik fyrir Blika í gær.
Hann er í leikbanni í lokaumferðinni eins og fyrirliði liðsins, Kári Ársælsson. ÍBV
verður líka án Tryggva Guðmundssonar í lokaumferðinni.
Ármúli 36 • 108 Reykjavík
s. 588 1560 • joiutherji.is
Kr. 19.990.-
Adidas
Pro Model kvenna
Kr. 19.990.-
Adidas
CC7 herra
Kr. 29.990.-
Adidas
Court Dynamic barna
Kr. 11.990.-
Adidas
Court Dynamic barna
Kr. 11.990.-
Adidas
CC5 womans
Kr. 26.990.-
Adidas
CC3 womans
Kr. 17.990.-
Adidas
Court Rock herra
Kr. 12.990.-
Adidas
Court Rock kvenna
Kr. 12.990.-
Adidas
Pro Model herra
Adidas
Pro Model herra
Kr. 19.990.-
Adidas
Floater Glide barna
Kr. 12.990.-
Pepsi-deild karla:
Valur-Fram 1-3
Guðmundur Steinn Hafsteinsson - Joe Tillen,
Almarr Ormarsson, Daði Guðmundsson.
Grindavík-KR 3-3
Gilles Ondo 2 (1 víti), Orri Freyr Hjaltalín - Baldur
Sigurðsson 3.
STAÐAN:
Breiðablik 21 13 4 4 47-23 43
ÍBV 21 13 3 5 35-23 42
FH 21 12 5 4 45-31 41
KR 21 10 5 6 42-31 35
Fram 21 9 5 7 42-29 32
Valur 21 7 7 7 33-39 28
Keflavík 21 7 6 8 26-31 27
Stjarnan 21 6 6 9 39-42 24
Fylkir 21 7 3 11 36-39 24
Grindavík 21 5 6 10 26-34 21
Haukar 21 3 8 10 27-44 17
Selfoss 21 4 2 15 27-49 14
FÓTBOLTI Blikastrákarnir sýndu
það gegn Selfossi í gær að þar eru
drengir orðnir að mönnum. Blika-
liðið sýndi yfirvegun og fór ekki
á taugum í erfiðum leik sem þeir
unnu 3-0.
Selfossliðið múraði hreinlega
fyrir framan teiginn hjá sér og
það var engu líkara en leikmönn-
um liðsins væri bannað að fara
fram yfir miðju. Þess utan leið Sel-
fyssingum illa með boltann og það
heyrði til undantekninga ef liðið
náði þrem sendingum sín í milli.
Frammistaða liðsins fram á við
var hörmuleg í einu orði sagt.
Varnarleikurinn var þó fínn
lengstum og Breiðablik náði aðeins
einu skoti á markið í fyrri hálfleik.
Það reyndi á taugar Blikanna í síð-
ari hálfleik og þeir sýndu gríðar-
lega yfirvegun í sínum leik. Það
var ekkert óðagot á leikmönnum
liðsins og þeir héldu áfram að spila
sinn leik. Það skilaði sér síðan í
marki eftir klukkutíma leik.
Eftir að fyrsta markið kom var
aldrei spurning hvernig leikurinn
færi. Selfoss ógnaði ekki af neinu
viti og Blikarnir bættu við tveimur
mörkum áður en yfir lauk og unnu
verðskuldaðan sigur.
„Það eru engir leikir auðveldir
og Selfoss var bananahýði. Þeir
voru vel skipulagðir og gerðu
okkur erfitt fyrir í fyrri hálfleik.
Við vorum líka sjálfum okkur
verstir því við vorum að klikka
á úrslitasendingum eftir að hafa
komið okkur í ágætar stöður. Í
hálfleik töluðum við um að vera
áfram þolinmóðir og reyna að
keyra upp hraðann. Það gekk ágæt-
lega,“ sagði brosmildur þjálfari
Breiðabliks, Ólafur Kristjánsson.
„Auðvitað var ég ekkert allt-
af rólegur á bekknum en ég hafði
samt alltaf trú á því að þetta myndi
detta fyrir okkur. Við eigum líka
vopn á bekknum eins og Andra
Yeoman sem hefur komið inn með
mikinn hraða. Tómas Óli kom einn-
ig sterkur inn og lagði upp þriðja
markið með glans.“
Blikaliðið er aðeins einum leik
frá því að verða Íslandsmeistari
í fyrsta skipti í meistaraflokki
karla. Ólafur er bjartsýnn á að
hans menn muni klára dæmið um
næstu helgi í Garðabænum.
„Það er góð tilfinning að eiga
eitt skref eftir og að örlögin séu í
okkar höndum. Við verðum að nýta
vikuna vel og auðvitað á spennu-
stigið eftir að magnast eftir því
sem líður á vikuna. Það er samt
búin að vera spenna í síðustu þrem-
ur leikjum og við hljótum að vera
farnir að sjóast. Ég hef fulla trú á
því að við verðum Íslandsmeistar-
ar um næstu helgi.“
Blikarnir hafa staðist nánast
öll próf hingað til í deildinni og
virðast vaxa með hverjum leik.
Lokaprófið er þó eftir og þar mun
reyna verulega á andlegan styrk
leikmanna. Miðað við það sem
Blikarnir hafa sýnt hingað til er
nákvæmlega ekkert sem bendir
til annars en að liðið klári dæmið
um næstu helgi.
Selfoss hefur lokið keppni í deild
þeirra bestu eftir skamma við-
veru. Félagið mætti til leiks með
ungmennafélagsandann að vopni.
Það átti að leyfa heimamönnum að
spila í efstu deild og því styrktu
Selfyssingar sig sama og ekkert
fyrir mótið.
„Reynsluleysið lét til sín taka
eftir því sem leið á mótið og við
vorum einfaldlega ekki nógu
góðir. Það er auðvelt að segja eftir
að við erum fallnir að það voru
mistök að styrkja ekki liðið meira
fyrir mótið. Ég held samt að þess-
ir strákar eigi eftir að koma sterk-
ari til baka fyrir vikið,“ sagði Guð-
mundur Benediktsson, þjálfari
Selfoss, en hann vildi lítið tjá sig
um framtíðaráform.
Uppsagnarákvæði af beggja
hálfu er í samningi hans og málin
verða skoðuð eftir tímabilið.
henry@frettabladid.is
Aðeins einu skrefi frá titlinum
Breiðablik heldur áfram að standast öll próf með glans. Liðið sýndi mikla þolinmæði og þroska er það
lagði varnarsinnað lið Selfoss og sendi Selfoss niður í 1. deild um leið. Blikar hafa alla ása á hendi fyrir
lokaumferðina. Vinni liðið Stjörnuna í lokaumferðinni verður Breiðablik Íslandsmeistari.
GLEÐIN VIÐ VÖLD Blikastrákarnir stigu stríðsdans eftir leikinn gegn Selfossi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Fylkismenn sendu Hauka aftur niður í
fyrstu deildina er þeir skelltu þeim sannfærandi,
3-0, í Árbænum í gær. Andrés Már Jóhannes-
son var allt í öllu í liði heimamanna en hann
skoraði tvö mörk og Ingimundur Níels Ósk-
arsson eitt.
Leikurinn byrjaði fjörlega og kom fyrsta
mark eftir aðeins sjö mínútur. Þá fékk Andr-
és Már boltann rétt fyrir utan vítateig og
hamraði knöttinn snyrtilega í fjærhorn-
ið. Ingimundur Níels bætti við öðru mark-
inu eftir hálftíma með skoti frá vítateigsl-
ínunni og staða Fylkismanna ansi góð gegn
andlausu liði Hauka.
Andrés Már var svo aftur á ferðinni tíu
mínútum síðar og skoraði úr stuttu færi
eftir mikil læti í teig gestanna. Haukarn-
ir komu með örlítið lífsmark inn í síðari
hálfleikinn og virtist sem þeir ætluðu sér
að taka þátt í leiknum en svo varð ekki.
Heimamenn sköpuðu sér fullt af færum
í leiknum og áttu að skora fleiri mörk en
Daði Lárusson var einn af fáum Hauka-
mönnum sem mætti til leiks gegn Fylki
og varði oft á tíðum frábærlega. Engin
mörk voru skoruð í seinni hálfleik og
þegar Einar Örn Daníelsson, góður
dómari leiksins, flautaði var ljóst að Haukar
voru að kveðja Pepsi-deildina þar sem
Grindvíkingar náðu jafntefli gegn KR.
„Við getum andað aðeins léttar þar sem
okkur brá í síðustu umferð þegar við frétt-
um að Haukar hefðu stolið sigrinum. Við
ákváðum að halda áfram að gera það sem
við höfum verið að gera í síðustu leikjum og
það skilaði sigri hér í dag,“ sagði Valur Fan-
nar Gíslason, leikmaður Fylkis, en honum var létt
í leikslok þegar ljóst var að Fylkir ætti öruggt sæti
í Pepsi-deildinni að ári.
„Það er alltaf leiðinlegt þegar lið falla en það eru
ekki síðustu leikirnir sem skipta máli heldur allt
sumarið. En úr því sem komið var hjá okkur þá er
ég bara sáttur að klára þetta með sæmd og gera
þetta almennilega. En ég er engan veginn sáttur
við tímabilið og menn vildu miklu meira. Ég verð
klárlega með á næsta ári og tek eitt til tvö tíma-
bil í viðbót,“ sagði Valur Fannar.
- rog
Haukar brugðust á ögurstundu er liðið mætti Fylki í sex stiga leik í Árbænum:
Fylkir sendi Hauka niður í 1. deild
Á LEIÐ NIÐUR Daði Lárusson og félagar í
Haukum fara beint niður aftur.