Fréttablaðið - 28.09.2010, Blaðsíða 34
28. september 2010 ÞRIÐJUDAGUR18
BRIGITTE BARDOT leikkona og dýravinur er 76 ára
„Það er sorglegt að eldast, en notalegt að þroskast. Karlar nutu fegurðar minnar og ungdóms,
en dýrum gef ég visku mína og reynslu. Ég hef verið rík, falleg og fræg, en líka óhamingjusöm.“
„Ég vann hér í matvöruversluninni Hólagarði fyrir tuttugu
árum og sá þá kjörið tækifæri til að láta draum um lítið
fjölskyldufyrirtæki rætast,“ segir Bragi Björnsson kaup-
maður um Leiksport sem hann opnaði fyrir tuttugu árum í
verslunarmiðstöðinni Hólagarði í Efra-Breiðholti. Þar selur
hann íþróttavörur, ritföng og leikföng við miklar vinsæld-
ir Breiðhyltinga.
„Ég fór fljótlega í samstarf við ÍR og Leikni um að selja
keppnisbúninga þeirra, en ritföng, leikföng og íþróttavörur
passa vel saman. Hér tekur ein árstíð við af annarri og alltaf
nóg að gera,“ segir Bragi um viðskiptin, en Hólagarður er
ein fárra verslunarmiðstöðva sem enn lifa í úthverfum.
„Leiksport hefur lifað vegna þolinmæði og þrautseigju
því það gerist ekki á ári að byggja upp verslunarrekstur. Við
konan og börnin vinnum í þessu saman og alltaf jafn gaman
að koma í vinnuna. Nálægð við hverfisbúa er mikil og maður
þekkir hér nánast hvert andlit, enda búðin eins og hálfgerð
félagsmiðstöð,“ segir Bragi brosandi, en við búðarborðið
hefur hann séð tímana breytast og mennina með.
„Fyrir áratug voru fleiri húsmæður heima og heilmikið
að gera fyrir hádegi, en nú eru hverfin hálftóm til klukkan
tvö. Á meðan eru börnin meira ein og leita þá mikið hing-
að til að stytta sér stundir og brúa bilið meðan beðið er, en
eins til að ræða málin. Ég hef alltaf haft gaman af börnum
sem koma því þau spyrja svo mikið og skemmtilega, og á nú
marga góða kúnna sem komu hingað sem krakkar, því við
sinntum þeim og sýndum áhuga,“ segir Bragi sem nú merkir
enn meiri verslun Breiðhyltinga í heimabyggð.
„Eftir að kreppti að lætur fólk bílinn sinn kólna og labbar
í búðina, enda meðvitað um að gera þarf innkaupin heima
vilji það þjónustu verslana áfram,“ segir Bragi.
„Breiðholtið hefur óverðskuldað hlotið neikvæða umræðu
í svo mörgu, en það gæti breyst með uppbyggingu Jóns
Gnarr, sem vonandi hefst sem fyrst. Það verður gaman að
sjá hann poppa Breiðholtið upp.“ hordis@frettabladid.is
LEIKSPORT: 20 ÁR Í HÓLAGARÐI
Gaman saman
Í AFMÆLISSKAPI Bragi horfir björtum augum til framtíðar og hyggst
bjóða persónulega og góða þjónustu um ókomna tíð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og virðingu við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Kristjáns J. Gunnarssonar
fyrrv. fræðslustjóra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Skjóls fyrir umhyggju og hlýju.
Guð veri með ykkur öllum.
Guðrún Kristjánsdóttir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Kristján S. Kristjánsson Margrét Steinarsdóttir
Hörður Kristjánsson María Hrönn Gunnarsdóttir
Elín Kristjánsdóttir Baldur V. Hannesson
Ásdís Kristjánsdóttir Ársæll Kristjánsson
afabörn og langafabörn.
Eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
Jóhann Ágústsson,
Kópavogstúni 8, Kópavogi,
verður jarðsunginn í Bústaðakirkju, fimmtudaginn
30. september kl. 13.00.
Svala Magnúsdóttir
Magnús Valur Jóhannsson Bjarnveig Ingvarsdóttir
Guðmundur Örn Jóhannsson Íris Gunnarsdóttir
Sólveig Fríða Jóhannsdóttir Ingimar Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
Erla Ingimundardóttir,
Dverghömrum 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 18.
september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Snjólfur Fanndal Kristbergsson
Anna Berglind Þorsteinsdóttir Guðmundur Valgeirsson
Ingimundur Heimir Hannesson Þórlaug Braga
Stefánsdóttir
Kristberg Snjólfsson Margrét Marísdóttir
Guðbjörg Dögg Snjólfsdóttir Ingólfur Snorri
Bjarnason
barnabörn og systkini hinnar látnu.
Ástkær sonur minn, bróðir okkar,
mágur og frændi,
Sölvi Heiðar Matthíasson
Melasíðu 6i, Akureyri
varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 17. sept-
ember. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni
á Akureyri föstudaginn 1. október kl. 13.30.
Anna María Þórhallsdóttir
Ásta Ottesen Páll H. Jónsson
Gunnlaug Ottesen Friðrik Diego
Þórhallur Ottesen Margrét Jóhannsdóttir
Kristín Ottesen Sigmundur Ásgeirsson
Vilhelm Ottesen
og frændsystkini.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir
tengdafaðir og afi,
Jens Sævar Guðbergsson
Garðbraut 83, Garði,
andaðist föstudaginn 24. september á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja.
Ólöf Hallsdóttir
Sveinn Magni Jensson Dagmar María Hrólfsdóttir
Jens Óli Jensson Harpa Mjöll Magnúsdóttir
Sveinborg Petrína Jensdóttir Ólafur Ómarsson
Særún Thelma Jensdóttir Bjarni Páll Tryggvason
Hallur Þór Jensson
Sævar Gunnóli Sveinsson
Agnes Gunnþóra Sveinsdóttir
Elvar Unndór Sveinsson
Júlía Mjöll Jensdóttir
Ísak Helgi Jensson
Ólöf Sólveig Ólafsdóttir
Bergrún Dögg Bjarnadóttir
Sæþór Elí Bjarnason
Svandís Huld Bjarnadóttir
Brynhildur Þöll Bjarnadóttir
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, bróður, afa, langafa og
langalangafa,
Rósmundar Sigurðssonar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 3. hæð
Sólvangs í Hafnarfirði, fyrir frábæra umönnun,
ljúft viðmót og hlýju.
Rósmundur H. Rósmundsson Guðbjörg Oddsdóttir
Richard Henry Eckard Oddný Guðjónsdóttir
Elísabet Kolbrún Hansdóttir Hafsteinn Guðmundsson
systkini, afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
Jóhannes Arason
fyrrverandi útvarpsþulur, Þórsötu 25,
lést sunnudaginn 26. september. Útförin verður auglýst
síðar.
Elísabet Einarsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
Kristín Stefanía
Kristjánsdóttir,
Keilusíðu 9a, Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð 17. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Lerkihlíð fyrir
yndislegheit og frábæra umönnun.
Hólmgeir Kristján Brynjólfsson Ingibjörg Sigurvinsdóttir
Brynjólfur Gunnar Brynjólfsson Halla Eyþórsdóttir
Rannveig Kristín Brynjólfsdóttir
Sigurður Magnús Brynjólfsson Kristín Stefánsdóttir
og ömmubörn.
Elskulegur ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús Blöndal
lést miðvikudaginn 15. september og verður jarðsung-
inn frá Grensáskirkju, miðvikudaginn 29. september kl.
13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
Jónas Blöndal Sigríður G. Blöndal
Arnþór Blöndal María G. Blöndal
Sigurður Blöndal
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Álfheiður Guðjónsdóttir,
Hlíf II, Torfnesi, Ísafirði,
lést á Öldrunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði
23. september og verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju
þriðjudaginn 5. október kl. 14.00. Blóm og kransar
eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði og
Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa.
Lára Guðbjörg Oddsdóttir Sigmar Ingason
Kristín Oddsdóttir Bonde Peter Bonde
Guðný Lilja Oddsdóttir Árni Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
76