Fréttablaðið - 12.10.2010, Síða 10
10 12. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
GRIKKLAND, AP Grískur lögreglu-
þjónn var í gær sakfelldur fyrir
að hafa myrt fimmtán ára ungling
með skotvopni í miðborg Aþenu
síðla árs 2008. Hann var dæmdur
í ævilangt fangelsi.
Meirihluti dómstólsins komst að
því að lögregluþjónninn, Epamin-
ondas Korkenas, hefði vísvitandi
skotið á piltinn, sem hét Alexand-
er Grigoropoulos. Annar lögreglu-
þjónn var dæmdur samsekur í
málinu og hlaut tíu ára fangelsis-
dóm.
Lát piltsins varð til þess að
heiftúðugar óeirðir brutust út víða
um Grikkland og stóðu þær linnu-
lítið í tvær vikur. Ungmenni fóru í
hópum um borgir landsins nánast
á hverju kvöldi, kveiktu í bifreið-
um og húsum, brutu gluggarúður,
brutust inn í verslanir og lentu í
átökum við lögreglu. Hópar anark-
ista hófu einnig árásir á lögreglu-
stöðvar og opinberar byggingar.
Í desember á síðasta ári, þegar
rétt ár var liðið frá láti piltsins,
brutust aftur út óeirðir, en þær
urðu ekki jafn viðamiklar.
Korkenas viðurkenndi að hafa
hleypt af byssunni, en sagði það
einungis hafa verið gert til við-
vörunar eftir að lögreglumönnum
lenti saman við hóp unglinga.
Þetta gerðist í hverfinu Exarchia,
þar sem næturlíf er fjörugt og
hópar stjórnleysingja safnast
saman.
Korkenas hefur hins vegar jafn-
an haldið því fram að hann hafi
ekki skotið beint á Grigoropolous,
heldur hafi pilturinn orðið fyrir
byssukúlunni eftir að hún endur-
kastaðist af vegg eða götu.
Sjö manna dómstóll, skipaður
þremur dómurum og fjórum kvið-
dómendum, klofnaði í afstöðu
sinni. Fjórir af sjö stóðu að
úrskurðinum, en tveir dómaranna
og einn kviðdómendanna vildu
sakfella Korkenas fyrir veiga-
minna brot, nefnilega manndráp
frekar en morð, sem hefði jafn-
framt haft í för með sér vægari
refsingu.
Réttarhöldin voru haldin í borg-
inni Amfissa, sem er 200 kíló-
metra vestur af Aþenu. Þetta var
gert af öryggisástæðum, því óttast
var að réttarhöldin yrðu kveikja
frekari óeirða.
gudsteinn@frettabladid.is
Lögregluþjónn fer í fangelsi
Réttarhöldum yfir tveimur grískum lögregluþjónum lauk í gær. Annar fer í ævilangt fangelsi fyrir að hafa
myrt unglingspilt en hinn fær tíu ára fangelsi. Lát piltsins hratt af stað hálfs mánaðar óeirðum árið 2008.
MINNINGARSKJÖLDUR UM GRIGOROPOULOS Á veggnum í miðborg Aþenu þar sem
Grigoropoulos lét lífið fyrir tæpum tveimur árum hefur verið settur upp minningar-
skjöldur. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUÞJÓNARNIR Vasilis Saraliotis
og Epaminondas Korkenas í réttarsal.
NORDICPHOTOS/AFP
MUNDAR MYNDAVÉL Einn af bisk-
upum kaþólsku kirkjunnar tók upp
myndavélina eftir að páfi hafði lokið
messu í Péturskirkjunni í Róm á
sunnudaginn. NORDICPHOTOS/AFP
Það er
800 4000 • siminn.is
Sveigjanleg
GSM áskrift með
eitt mínútuverð
óháð kerfi
F Y R I R TÆ K I
GSM Samband er sveigjanleg áskriftarlei› sem
sameinar hagsmuni fyrirtækja og starfsfólks.
Fyrirtæki› kaupir Grunnáskrift á 499 kr. á mánu›i*
og bætir sí›an vi› mismunandi pökkum, allt eftir
flörfum hvers og eins, sem anna›hvort fyrirtæki›
e›a starfsmenn grei›a fyrir. Lægra mínútuver›
og sveigjanlegar áskriftarlei›ir geta lækka›
símakostna› fyrirtækisins og starfsfólks.
GSM Samband fyrir fyrirtæki
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
3
3
*U
pp
ha
fs
gj
al
d
6,
50
k
r.
Niðurskurði
mótmælt
Alþýðusamband Norðurlands
gerir kröfu til þingmanna
Norðurlands að þeir beiti sér
af alefli fyrir endurskoðun á
fjárheimildum til heilbrigðis-
stofnana á Norðurlandi.
Ljóst sé að nái niður-
skurður fram að ganga muni
það leiða til fólksfækkunar á
svæðunum.
Framboðsfrestur fyrir kosning-
ar til stjórnlagaþings rennur út
á mánudag. Áhugsamir skulu
skila framboðsgögnum í hendur
landskjörstjórnar fyrir hádegi
þann 18. október, en 30 til 50
meðmælendur þurfa að fylgja
hverju framboði. Framboðsgögn
og frekari upplýsingar má finna
á vefnum stjornlagathing.is
Kosningar til stjórnlagaþings
fara fram 27. nóvember, eftir
að framboðsfrestur. Kjörstjórn
mun í framhaldinu gefa út kynn-
ingarefni með öllum frambjóð-
endum og dreifa á öll heimili.
Þingið kemur saman í febrúar
2011 og verður skipað minnst 25
og mest 31 þjóðkjörnum fulltrúa
þar sem hver kjósandi getur
merkt við allt að 25 nöfn á kjör-
seðli.
Á annan tug hefur tilkynnt
framboð. Þórhallur Vilhjálmsson,
ritari landskjörstjórnar, sagði í
samtali við Fréttablaðið að fram-
boðum hefði fjölgað merkjanlega
á síðustu dögum og að hann ætti
von á að enn færi að glæðast í
þeim efnum.
Framboð til Stjórnlagaþings:
Jóhannes Þór
Skúlason grunn-
skólakennari.
Friðrik Þór
Guðmundsson,
blaðamaður og
stjórnmálafræð-
ingur.
Gissur Péturs-
son, forstjóri
Vinnumálastofn-
unar.
Pawel Bartozsek
stærðfræðingur.
Valgarður
Guðjónsson,
tónlistarmaður
og tölvunarfræð-
ingur.
Jónas Kristjáns-
son, fyrrverandi
ritstjóri.
Stjórnlagaþing:
Á annan tug til-
kynnt framboð