Fréttablaðið - 26.10.2010, Qupperneq 6
6 26. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Félagið Landnáms-
ferðir hefur sótt um lóð í Engey
undir landnámsþorp með víkinga-
þema en feng-
ið synjun hjá
skipulagssviði
Reykjavíkur-
borgar.
Sveinn Hjört-
ur Guðfinnsson,
framkvæmda-
stjóri L and-
námsferða,
segir að þrátt
fyrir þessa fyrir-
stöðu hjá skipulagsyfirvöldum
haldi málið áfram. Ætlunin sé ekki
að tjalda til einnar nætur. Ára-
langur undirbúningur sé að baki
og samráð sé haft við hæfa forn-
leifafræðinga, meðal annars dr.
Völu Garðarsdóttur, sem stjórn-
aði uppgreftrinum á Alþingisreitn-
um. Þorpið verði byggt eftir nám-
kvæmri forskrift fræðimanna.
„Þetta er einstakt tækifæri
fyrir ferðaþjónustu. Við höfum
verið í Þýskalandi þar sem fólk
dáir íslenska menningu og vill
vita meira um landnámið og
hvernig þetta byrjaði allt saman,“
segir Sveinn sem kveður verkefn-
ið munu verða fjármagnað af ein-
staklingum sem ekki sé tímabært
að nefna. „Þetta eru að minnsta
kosti engir útrásarvíkingar.“
Sveinn segir erlenda handverks-
fræðinga bíða í röðum eftir að
leggja verkefninu lið. Innlendir
námsmenn, meðal annars í Tækni-
skólanum, geti einnig lagt hönd á
plóginn. Nýta eigi trjágróður sem
til falli á höfuðborgarsvæðinu í
uppbyggingu þorpsins og smíði
víkingaskipa.
„Við gerum okkur grein fyrir
því hversu dýrmæt saga Íslands
er. Sagan af landnáminu og fólk-
inu sem byggði landið er gríðar-
lega sterk en henni hafa ekki verið
gerð nógu góð skil. Ef einhvern
tíma er mikilvægt fyrir þjóðina
að horfa til arfsins þá er það nú,“
segir Sveinn.
„Fornleifar í Engey hafa enn
ekki verið skráðar en það er
algjört grundvallaratriði að slíkt
verði gert, ef til einhverrar upp-
byggingar kemur,“ segir Minja-
safn Reykjavíkur meðal annars í
sinni umsögn.
„Rétt er að víkingaþorp og stað-
ir þar sem byggt er upp sögulegt
umhverfi hafa mikið aðdráttarafl
fyrir ferðamenn. En slíkur staður
þarf að vera vel hugsaður og hann-
aður til að virðast sannfærandi,“
segir í umsögn Minjasafnsins sem
telur umsóknina of ófullkomna til
að geta talist raunhæf.
Sveinn segir umsagnir Minja-
safnsins og skipulagssviðs byggja
á þekkingarleysi og nefnir þar
möguleika til hafnaraðstöðu sér-
staklega. Þá standi ekki til að reisa
þorpið þar sem minjar séu fyrir
heldur á svæði sem þegar hafi
verið plægt.
Sveinn undirstrikar að mikil-
vægt sé að þorpið verði einmitt í
Engey. „Þannig komast gestirnir
frá borginni og inn í tímavél sem
flytur þá aftur til landnámsaldar.“
gar@frettabladid.is
Hafna víkingaþorpi í Engey
Landnámsþorp í Engey fær synjun skipulagsyfirvalda sem segja hafnaraðstöðu skorta og stefnan sé að
halda eynni óbyggðri. Einstakt tækifæri í ferðaþjónustu segir umsækjandinn sem heldur málinu til streitu.
LANDNÁMSÞORP Í ENGEY Áætlað er að það taki fimm ár að byggja upp víkingaþorp í Engey, meðal annars með aðstoð innlendra og erlendra sjálfboðaliða. MYNDIR/CASPER ART
SVEINN HJÖRTUR
GUÐFINNSSON
EFNAHAGSMÁL Mánaðarleg launa-
vísitala í september hækkaði
um 0,3 prósent frá fyrra mánuði
og 6,0 prósent miðað við sama
mánuð í fyrra, samkvæmt nýjum
tölum Hagstofunnar. Eins jókst
kaupmáttur launa um 0,3 prósent
milli mánaða, en um 2,2 prósent
síðustu tólf mánuði.
Í fréttabréfi Samtaka atvinnu-
lífsins er hækkunin fyrst og
fremst sögð eiga sér skýringu
í tveimur samningsbundnum
hækkunum samkvæmt almenn-
um kjarasamningum. Þá komi
til áhrif árstíðasveiflna þar sem
bónusar, þar sem um þá er að
ræða, lækki yfir sumarmánuðina
og hækki aftur í september. - óká
Launavísitalan hefur hækkað:
Kaupmáttur
eykst lítillega
Vistbyggðarráð opnar vef
Vistbyggðarráð, sem stofnað var í
febrúarlok á þessu ári, hefur opnað
nýjan vef, www.vbr.is. Ráðinu er
ætlað að vera leiðandi vettvangur á
sviði sjálfbærrar þróunar við skipulag,
hönnun, byggingu, rekstur og viðhald
mannvirkja hér á landi.
UMHVERFISMÁL
DÓMSMÁL Ragnar Aðalsteinsson,
lögmaður fjögurra af þeim níu
einstaklingum, sem hafa meðal
annars verið ákærðir fyrir að ráð-
ast á Alþingi árið 2008, krafðist
þess í fyrirtöku málsins í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær að fá
aðgang að meintum leynigögnum
um málið.
Í frétt Vísis.is segir að Ragnar
hafi ekki getað sýnt eða sannað að
gögnum hafi verið haldið frá sér
og sínum skjólstæðingum, en taldi
margt benda til þess.
Dómarinn tók kröfuna fyrir
og mun kveða upp úrskurð von
bráðar. - vg, þj
Nímenningar fyrir dómi:
Vildi fá aðgang
að leyniskjölum
SVÍÞJÓÐ Lögreglan í Malmö telur
að byssumaðurinn óþekkti beri
ábyrgð á 19 þeirra skotárása, sem
óupplýstar eru í borginni. Reynist
þetta rétt hefur þessi maður vald-
ið dauða einnar konu og sært átta
manns illa.
Lögreglan bíður nú niðurstöðu
rannsókna á lífsýnum, sem fund-
ist hafa á vettvangi.
Ljóst þykir einnig að sama skot-
vopnið hefur verið notað í sumum
árásanna, en lögreglan vill ekki
gefa upp hve oft þetta vopn hefur
verið notað.
Í sænskum fjölmiðlum kemur
fram að fyrrverandi meðlimir
glæpagengja séu farnir að leita
uppi byssumanninn.
„Við þekkjum þetta svæði. Það
er miklu auðveldara fyrir okkur en
lögregluna að hafa hendur í hári
hans,“ er haft eftir einum þeirra
á vefsíðu dagblaðsins Sydsvensk-
an. „Hann getur bara vonað að við
finnum hann ekki fyrst.“
Alls eru 50 skotárásir óupplýst-
ar sem framdar hafa verið frá því
í október á síðasta ári. Allt bendir
til þess að einn og sami maðurinn
hafi verið að verki í nítján þeirra.
- gb
Byssumaðurinn í Malmö talinn hafa gert nítján árásir undanfarið ár í borginni:
Glæpamenn leita mannsins
BÖRJE SJÖHOLM Lögreglustjórinn á
Skáni segir allar líkur á því að einn og
sami maðurinn hafi verið að verki.
NORDICPHOTOS/AFP
Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift
*Árleg nafnávöxtun frá 15.01.2001 til 31.09.2010. Ávöxtun í fortíð er ekki
ávísun á ávöxtun í framtíð.
Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003
um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV
hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt
að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér
útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.
@Hafðu samband við
ráðgjafa okkar í síma
460 4700 eða kynntu þér
málið á www.iv.is
UMHVERFISMÁL Norrænir orku-
málaráðherrar blésu í gær
formlega til keppni um titilinn
„Norrænt orkusveitarfélag“.
Keppninni er ætlað að vekja
athygli á og styðja við aðgerðir
sem stuðla að sjálfbærum lausn-
um í orku- og loftslagsmálum.
„Orkunotkun heimsins og losun
gróðurhúsalofttegunda er lang-
mest í borgum og bæjum. Því
eru aðgerðir einstakra sveitar-
félaga afar mikilvægar,“ segir á
vef Orkustofnunar. Samkeppnin
stendur yfir árin 2010 og 2011. - óká
Orku- og loftslagsaðgerðir:
Sveitarfélögin
keppa sín á milli
Finnst þér mikið um fordóma í
garð feitra?
JÁ 59,7%
NEI 40,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú farið í bíó á þessu ári
og séð íslenska kvikmynd?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN