Morgunn - 01.06.1927, Blaðsíða 15
MORGUNN
9
inni smávægilegir í samanburði við þau andlegu sannindi,.
sem séu að birtast mönmmum.
Þið skiljið það vafalaust, að eg get ekki að þessu sinní
gert þess grein, á hverju séu reistar þær staðhæfingar Conans
Doyle, sem eg hefi nú iesið ykkur, Hvernig hefir það sann-
ast, sem sálarrannsóknirnar hafa leitt í ljós. Það er efni í
mikla bók, en ekki nokkurra mínútna tal. Bg verö að láta
mér nægja að taka það fram, að um það eru þeir yfirleitt
sammála, sem telja að sannanir liafi fengist fyrir öðrum
heimi. Menn iiafa fengið ógrynnin öll af staðhæfingum, sem
hafa tjáð sig vera frá öðrum heiini, og ef til vill liafa verið
það að einliverju eða öllu leyti, án þess að menn hafi fundið
sig knúða til þess að taka þær staðhæfingar gildar. Bn eg
tel mér óhætt að fullyrða, að undan þessu, sem hér liefir
verið tilgreint, hafa menn ekki séð að komist yrði með skyn-
samilegum hætti, ef menn hafa sannfærst um þetta samband
við framliðna menn á annað borð. Hitt þarf eg ekki að taka
fram, hve merkilegt þetta er, live óvenjulega mikilvæg við-
bót það er við þekkingu vora, sem tekið er fram í þessari
stuttu greinargerð eftir Conan Doyle.
Auðvitað mætti miklu við hana bæta. Öll hin nýja opin-
berun kemst ekki fyrir í örfáum línum. Eg skal nefna eitt
dæmi, sem miér skilst, að allir séu nú að verða sammála um,
að minsta kosti allur þorrinn. Það er þetta mikilvæga atriði,.
að næstu tilverustigin séu að einhverju miklu leyti langtum
líkari vorri tilveru, en mennirnir hafa gert sér í liugarlund..
Auðvitað hlýtur munurinn að vera töluverður. Vér erum eins
og gróðursettir hér í efninu. Svo virðist, sem vér séuin þar
gróðursettir í eternum, með eterlíkama, og það er eterumj-
ltverfi sem vér skynjum. Hvernig sem því umhverfi kann
að vera háttað í raun og veru, þá erum vér einhvern veginn
svo úr garði gerðir á næstu tilverustigunum, að vér skynj-
um eterinn eitthvað furðu líkt og vér skynjum efnið hér á
jörðunni. Með því er ekkert um það sagt, hvernig það um-