Morgunn - 01.06.1927, Blaðsíða 61
MORGUNN
55
arskálina síga niður, þar sem sú, er þunginn. livíldi á, liófst
upp. Nokkrar skemtilegar tilraunir voru reyndar með ýmsum
tegundum lóða. En Walter lagöi ótrauöur út í þær allar.
Iívort sem liann var beðinn að setja skálarnar upp eða nið-
ur eða jafna þær, eða rugga þeim, þá gerði liann það. Þetta
var mjög merkileg tilraun. í tali, sem varð um segulinn,
játaði dr. Crandon, að liann bæri á sér smásegul, en að liann
notaði hann blátt áfram til að lcomla kviltasilfrinu í gagnhita-
madi aftur í réttar stellingar. Síðar sagði dr. Crandon: „Ef
þér eruð í nokkrum efa, þá takið skálarnlar sundur.“ Það kom
þá í ijós, að allir málmpartar vogarskálanna voru gjörðir af
kopar, skálarnar sjálfar af tré, og að ekki var í þeim noklcur
ögn, sem hefði nokkurt aðdráttarafl fyrir segulimi. Staðhæf-
ingin um notkun segulsins var því með öllu ástæðulaus.
Ilvernig Walter framkvæmdi þessi fyrirbrigði, var ekki út-
skýrt á þessum tilraunafundi, en hann hafði skýrt svo frá,
að til þess að vega niður skálina, fylti hann millibil efnisins
sálrænu efni, svo að liann með þeim liætti gerði tómu skál-
ina töluvert þjmgri en þá skálina, er lóðin livíldu á. Ef gáski
væri í honum, eins og oft kæmi fyrir, væri hann vanur að
segja: „Eg hoppaði niður í skálina.“ Þegar hann væri
spurður, livernig liann færi að því að fá tómu skálina til
að hefjast aftur, segði hann, að liann hefði það, sem liann
kallaði sálrænan sprota eða eins og liann stundum nefndi það
„spaða-ásinn sinn“, og að hanru festi hann við skálina og
•drægi hana upp. Eftir uppástungu Walters höfðu tvær ljós-
myndir verið teknar í einu. Onnur við leifturljós með venju-
legum hætti, og liin með kvartz-linsu og kvikasilfurs-gufu-
lampa. Svo að þessi síðari mynd var tekin við ultra-fjólubláa
geisla. Á fyrri Ijósmyndinni sást ekkert óvenjulegt, en á
hinni síðari var sýnilegur sálræni sívalningurinn, sem Walter
sagðist liafa stungið út. Yissulega var á þessari mynd — sem
■sýnd var á tjaldinu — einhvers konar smíði, sem eldd liafði
veriö sýnileg mannlegu auga, þegar ljósmyndin var tekin,
eða á þeirri ljósmyndinni, sem tekin haföi verið með venju-
legum hætti.