Morgunn - 01.06.1927, Side 133
MORGUNN
127
þá þyrstir eí'tir því ferska lofti, sem trúarbrögbin eiga aS
flytja mannkyninu. Og vér eigum það öll sameiginlegt, aö
vér verðum aö leita að áhrifum og innblæstri út úr okkar
eigin liring, út til hinna miklu spámanna og andans ljósa, sem
guð hefir sent mannkyninu. Og eins og allur kristinn lieimur,
lítum vér fyrst og fremst þangað og leitum þangað, sem er-
hin mikla uppspretta kristninnar — Jesús sjálfur. Það liefir
veriö sameiginlegt liugboð sívaxandi fjölda manna, síðan
hann var uppi, aö hans lífsstefna heföi í sér fólgna ráðning-
una á lífsins gátu. Gátan hefir aldrei verið ráðin, því að allar-
kynslóðir og allar tegundir af menningu hafa gefist upp, áö-
ur en hans lífsstefna liefir komist í framlcvæmd, eða. áður en
menn hafa farið að lifa eftir henni til hlítar. Þetta er einnig
vor trú. En vér finnum til þess með blygðun, aðþótt það sje trú
vor, þá nær hún ekki nema hálfa leið inn að hjartarótum vorum,
þá nær hún ekki nema hálfa leið inn að hjartarótum vorum,
frekar en annara trúarflokka, sem uppi hafa verið. Yér get-
um tekið undir með andvarpi spámannsins: ,,Eg vildi, að
allur lýður drottins væri spámenn, svo að drottinn legði anda
sinn yfir þá,“ því að vér finnum, að andi vísdóms og kær-
leika er ekki yfir oss eða í oss, nema á einstökum fáum
stundum æfi vorrar.
En vér vitum jafnfram.t, að þetta sama hefir átt við
um alla, sem á öllum öldum hafa litið til Jesú sem liinnar-
miklu opinberunar um lögmál og rök lífsins. Hver tími hefir
orðið að líta til spámanna simutr samtíSar, til þess að túlka-
einhverja tegund af lians boðskap fyrir sér — einliverja þá
hlið ha.ns, sem þeim tíma var meira áríðandi en alt annað.
Yér í okkar litla kirkjufélagi erum að leitast. við að fá skiln-
ing á þessu atriði umfram alt. Vér lítum til þeirra manna og
þeirra hreyfinga, sem nú eru uppi í heiminum, og oss finst
með mestu afii færa oss lieim sanninn um, hvernig liugsjónir
Krists verði gróðursettar í lífi voru og lífi nútímans, eins
og vér reynum að læra af öllum hreyfingum og stefnum og
tilraunum fyrri alda, er að ])essu sama marki hafa stefnt..