Morgunn - 01.06.1933, Blaðsíða 29
MORGUNN
23
Sjálfur talar Kristur um gleði englanna, gleðina á himni,
yfir einum syndara, er bætir ráð sitt. Hann segir, að verndar-
englar barnanna sjái jafnan auglit föður síns á himni.
Hann segir frá því, að englar séu sendir til þess að fylgja
sálum þeirra sem hólpnir verða, inn í Paradís, heimkynn-
ið, sem tekur við eftir dauðann. í einu bréfi sínu bendir
Páll postuli til þess, að englarnir taki þátt í guðsþjónust-
um kristinna manna, séu þannig í beinu samfélagi við
þá á helgustu augnablikum lífsins. Og í opinberun Jó-
hannesar lýsir sjáandinn því víðar en á einum stað, að
þeir taki þátt í bænum kristinna manna, og beri þær fram
fyrir Guð. Og af orðum Jesú sjálfs við Natanael: „Þér
munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og
stíga niður yfir manns-soninn“ — af þessum orðum mætti
ráða það, að þessi sannfæring um stöðugar samgöngur
xnilli heimanna hljóti jafnan að einkenna trúarlíf læri-
sveina hans. Og af því mætti aftur draga þá ályktun, að
ef þessi sannfæring um samfélag heilagra hyrfi úr trú
þeirra, þá sé hún farin að sneyðast mjög háskalega.
En máttugasti þátturinn í trúnni á samfélag heil-
agra var samband lærisveinanna við Krist í dýrðinni.
1 rauninni var þetta samband við drottin það, sem öll
trú þeirra spratt af og nærðist á. Kristur birtist þeim
upprisinn. Hann boðaði þeim, að þótt hann hyrfi þeim
að sýnilegri návist, væri hann samt með þeim alla daga,
alt til enda veraldar. Og síðar ættu þeir sjálfir til hans
að fara og með honum að vera að eilífu. Þeir voru sann-
færðir um, að í allri þrenging og baráttu jarðlífsins ættu
þeir talsmann hjá föðurnum, Jesúm Krist hinn réttláta.
Þeir lifðu daglegu lífi sínu í sannfæringu um þetta: „Vér
■eigum himneskan konung, ósýnilegan ástvin, hann sem
stöðugt biður fyrir oss og veit, hvað oss líður“. Um þá
trú ber vitni æðstaprests-bænin í 17. kafla Jóhannesar-
guðspjalls, þar sem finna má setningar eins og þessar:
>.Eg bið fyrir þeim, sem þú gafst mér . . . Eg er ekki leng-
xir í heiminum; þeir eru í heiminum . . . Ekki bið eg að