Morgunn - 01.06.1933, Blaðsíða 30
24
M0E6UNN
þú takir þá burtu úr heiminum, heldur að þú varðveitir
þá frá illu . . . Helga þú þá með sannleikanum . . . En eg
bið ekki einungis fyrir þessum, heldur og fyrir þeim, sem
trúa á mig fyrir orð þeirra — allir eiga þeir að vera eitt. . .
Og eg vil að einnig þeir séu hjá mér þar sem eg er, til
þess að þeir sjái dýrð mína, sem þú hefir gefið mér“.
Og loks var þessi sannfæring um afskifti frá æðra.
heimi og um samfélag við Krist í dýrðinni nátengd hugs-
uninni um hina framliðnu. Það sýnir oss bezt textinn úr
opinberun Jóhannesar. Þar lýsir sjáandinn því, sem hann
sér í vitrun. Hann sér þar þá, sem hér á jörðu hafa liðið
erfiðleika og ofsóknir, einkum fyrir trú sína. ,,Nú er
um skift fyrir þeim“. Nú er öll neyð og sorg á enda kljáð.
Þeir eru komnir heim, hafa búist hvítum skikkjum, hafa
hiotið nýjan líkama, æðra eðlis. Nú þjóna þeir Guði dag
og nótt, hafa fengið ný og æðri verk að vinna í ríki hans.
Og Kristur, sem á líkingamáli er nefndur lamb Guðs, gæt-
ir þeirra, vakir yfir þeim og leiðir þá. Kærleikur hans til
þeirra hefir ekkert breyzt, en birtist þeim nú í nýju ljósi.
Hann var þá ekki aðeins lausnari þeirra og leiðtogi á jörð-
unni. Hann er líka Drottinn þeirra og ástvinur í dýrðinni.
Hann lét sér ekki nægja, að sanna þeim óslitið framhald
og eilíft eðli lifsins með því að birtast þeim hvað eftir
annað eftir krossdauða sinn, heldur er hann líka foringi
þeirra og vemdari á vegum eilífðarinnar.
Þetta alt var postulunum og fyrstu kristnu mönn-
unum ekki aðeins trúar- og vonaratriði, heldur þekkingar-
vissa. Orð og ummæli ritningarinnar um þessi efni eru
þrungin af persónulegri reynslu mannanna sjálfra, er
segja frá. Samfélag heilagra var þeim sannur og þraut-
reyndur veruleiki. Og sé þessi þróttur kristnu trúarinnar
oss nú á dögum dularfullur og óskiljanlegur, þá er það
sjálfsagt fyrst og fremst fyrir þá sök, að vér höfum gef-
ið miklu minni gaum en skyldi dularfullri og óvenjulegri
reynslu, sem ér hliðstæð því, sem frumkristnin vissi af eig-
in raun. Og þar er aftur nokkur sök hjá kirkjudeild vorri,.