Morgunn - 01.12.1947, Blaðsíða 53
MORGUNN
131
1867 til 1894, en S. M. fékk lausn 1885. Má því svo segja,
að á fyrra aldarhelmingi bæri skólinn svip þessara þriggja
öndvegismanna. Þeir voru allir frá Kaupmannahafnarhá-
skóla, en þá höfðu um alllangt skeið verið í Danmörku
frægir og stórlærðir guðfræðingar. Og þótt uppi væri þar
um og eftir aldamótin 1800 svo kallaður ,,rationalismi,“
skynsemisstefna, þar sem mikill' lærdómsmaður, H. N.
Clausen (1793-1877), stóð einna fremstur, og þótt þeirrar
stefnu þætti að nokkru gæta hér á landi, t. d. í aldamóta-
sálmabókinni og prédikunum Árna biskups Helgasonar, þá
sveif þó yfir vötnum danskur guðfræði andi manna eins
og S. Kirkegaards, Grundtvigs, Mynsters og Martensens.
Og þó að þá greindi á, varð niðurstaðan sú, að íslenzki
Prestaskólinn tók í arf með fyrstu lærifeðrum sínum hrein-
an „orþódoxan" (,,rétttrúaðan“) Lúterdóm, þar sem helzt
engu átti að geta skeikað, og bar hæst kenningu Martensens
og trúfræði hans, sem fi’æg er og þýdd á önnur tungumál,
en hún var einnig aðaltrúfræðin, sem hér var kennd.
Kennslan í skólanum fór fram með fyrirlestrum, er
stúdentarnir rituðu eftir upplestri kennara, eða þegar
fram í sótti og fyrirlestraheftunum (Collegium) fjölgaði,
að þau gengu í arf frá einum kandidat til annars stúdents,
sem á eftir kom, ef þá kennari ekki ætlaði að breyta um
til muna og bæta nokkuð um, svo rita þyrfti á ný.
Fyrirlestrum Péturs biskups minnist ég ekki að hafa
kynnzt á námsárum mínum, 1882—4. Aðalkennarar á þeim
árum voru Sigurður Melsteð, lector, og Helgi Hálfdanarson,
fyrsti kennari, og höfðum vér nemendurnir á þeim mætur
og mikla virðing fyrir auðfundinn lærdóm þeirra og alla
framgöngu, og gjörðum vér að því leyti á þeim engan ann-
an mun en þann, að H. Hálfd. hélt eindregnar með ströng-
um rétttrúnaði en S. Melst. lét meira á vald nemenda sjálfra
að velja og dæma um. Ekki munu þeir hafa notazt við fyr-
irlestra dr. Péturs. Ég og félagar mínir vorum síðasti ár-
gangurinn, sem S. Melsteð útskrifaði, árið 1884. Auk þeirra
kenndi séra Eiríkur Briem, og var hann einnig mikils virt-