Morgunn - 01.06.1973, Blaðsíða 15
FIMM ÆVINTÝRI
SKRIFUÐ ÓSJÁLFRÁTT AF GUÐMUNDI KAMBAN
SKÁLDI 17 ÁRA
Dagana 18., 19., 25. og 26. marz árið 1906 gerðist það undur í Reykja-
vik, að 17 ára gamall piltur i 2. bekk Menntaskólans tók að skrifa ævintýri
ósjálfrátt. Hann hafði ekki minnslu hugmynd um það sem hann var að
skrifa fyrr en á eftir, þegar hann eða aðrir höfðu lesið það. Þó las hann það
stundum jafnóðum og blýanturinn skrifaði. 1 eitt skipti var sú tilraun gerð,
að binda fyrir augu hans, þegar hann varð fyrir þessum dulrænu áhrifum,
en það virtist engu máli skipta. Hann skrifaði engu að siður jafnviðstöðu-
laust, glöggt og línurétt.
Þessi piltur hét Guðmundur Jónsson og var frá Bakka í Arnarfirði.
Hann varð síðar þjóðkunnur sem skáld og rithöfundur undir nafninu Guð-
mundur Kamban.
Ösjálfráð skrift er engin nýlunda í heiminum fremur en önnur dulræn
fyrirbæri og vafalaust jafngömul skriftinni sjálfri.
Þegar liið mikla sagnaskáld Breta, Charles Dickens dó árið 1870 var
liann hálfnaður með skáldsöguna Edwin Drood. Þrjátíu árum síðar tók
ómenntaður verkamaður í New York að skrifa ósjálfrátt framhald sögunn-
ar. Var stílbragð, orðfæri og allur andi þessa söguhelmings svo líkt Dickens,
að færustu bókmennta-sérfræðingar þeirra tima gáfust upp á þvi að greina
þar á milli.
Þá má geta þess, að einn af merkustu brautryðjendmn spiritismans,
enski kennimaðurinn William Stainton Moses (1830—92) skrifaði einnig
ósjálfrátt frægustu bók sina Spirit Teachings. Sýndi hann mikið hugrekki
með útgáfu þessarar bókar, þvi þar var kreddum og kenningum hans eigin
kirkju boðið byrginn, og bókstafstn'mni yfirlcitt.
Þá má og nefna William T. Stead, hinn fræga sálarrannsóknamann og
mannvin, sem rétt fyrir aldamótin gaf út bók, sem margir Islendingar hafa
lesið, Bréf frá Júlíu, sem hann skrifaði ósjálfrátt.
1 sambandi við merkar bókmenntir skrifaðar ósjálfrátt er dæmið um frú
Curran i Missouri í Bandarikjunum liklega frægast. Árið 1913 komst hún
með hjálp ouija-borðs í samband við veru, sem kallaði sig Patience Wortli
og kvaðst hafa látizt á seytjándu öld. Þetta dularfulla samband ómenntaðrar
ameriskrar húsfreyju og seytjándualdar-rithöfundarins Patience Worth hélt
áfram allt til dauðadags hinnar fyrrnefndu árið 1937. En þá var hún búin
að skrifa sex skáldsögur og þúsundir ljóða eftir fyrirsögn hinnar látnu veru.