Morgunn - 01.06.1973, Blaðsíða 62
60
MORGUNN
mikillar undrunar — kunni hann hana. Og ekki eingöngu
þessa lexíu, heldur alla bókina, eins og hún lagði sig!
1 fyrstu varð Cayce óðalsbóndi reiður, því hann hélt að son-
ur hans hefði allan tímann kunnað þetta, en einungis verið með
látalæti. Hann var því tekinn alvarlega til bæna, flengdur og
sendur í rúmið. Edgar htli tók þetta ekki sérstaklega nærri sér,
heldur fór glaður í rúmið, því nú hafði hann uppgötvað hjá sér
einhvers konar hæfileika, sem síðan átti eftir að fylgja honum
ævilangt. Hann þurfti sem sagt ekki annað en sofa á bók, þá
gat hann að því loknu rausað upp úr sér efni hennar orðrétt.
Lucian frænda sínum til stórfurðu varð Edgar bezti nem-
andi skólans, svo að segja í einni svipan. Hann virtist vita allt,
sem stóð í kennslubókunum. Eins og eðlilegt er botnaði faðir
drengsins ekkert í þessari breytingu og tók að spyrja hann
hvað ylli þessum skínandi framförum; og Edgar sagði föður
sínum frá röddinni, sem hann heyrði, og hvemig hann aflaði
sér þekkingarinnar meðan hann svæfi.
Cayce óðalsbóndi þóttist litlu nær og vissi varla, hvort hann
ætti að trúa þessu. En er árin liðu varð hann ekki einn um
vmdrun sína, þvi læknar, sálfræðingar og aðrir hámenntaðir
menn heimsóttu hann, athuguðu drenginn og hlýddu á hann,
en þessmn lærðu mönnum var þetta engu minni ráðgáta en
óðalsbóndanum.
Eftir því sem fjölskylda Edgars sagði, þá sannaði hann fyrst
þá hæfileika sína, sem áttu eftir að gera hann frægan, þegar
hann var sextán ára, síðasta ár hans í skóla. Þegar hann var
að leika á skólaflötinni lenti harður bolti á mænunni og hann
fór heim hálfruglaður með svima. Foreldrar hans skipuðu
honrnn að fara í rúmið og hlýddi hann því. Þá gerðist það allt
í einu, að hann varð mjög alvarlegur og myndugur í fasi og
skipaði móður sinni að úthúa grautarbakslur og leggja hann
við staðinn þar sem boltinn hafði hæft hann. Þetta var gert, og
daginn eftir var hann alveg eins og hann átti að sér, en mundi
þá ekkert, sem gerzt hafði frá því augnabliki að boltinn lenti
á honum.
En svo margt furðulegt hafði nú komið fram í sambandi við